Heilsugæslan Mjódd er hverfisstöð og er fyrst og fremst ætlað að þjóna íbúum neðra Breiðholts, það er hverfi 109, Bökkum, Stekkjum og Seljahverfi.
Í afgreiðslu heilsugæslustöðvarinnar taka móttökuritarar við tímapöntunum, gefa almennar upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar og koma áríðandi skilaboðum til starfsfólks. Nauðsynlegt er að láta móttökuritara vita þegar mætt er í pantaðan tíma.
- Læknismóttaka er alla virka daga skv. tímapöntun.
- Mæðraeftirlit skv. tímapöntun.
- Ungbarnaeftirlit skv. tímapöntun.
- Blóðrannsóknir eru í Þönglabakka 1 alla virka daga frá kl. 10:00 til 12:00.
- Ósk um lyfjaendurnýjun alla virka daga frá kl. 10:00 til 12:00 í síma 513-1515.
- Yfirlæknir er Samúel J. Samúelsson
- Yfirhjúkrunarfræðingur er Matthea G. Ólafsdóttir
- Skrifstofustjóri er Auður Kjartansdóttir
Bólusetningarátak gegn inflúensu A(H1N1)v, svínaflensu
Bókað er í bólusetningu gegn svínaflensu.
Bólusett er frá 13:00 – 15:00 á miðvikudögum og frá 9:00 – 11:00 , 13:00 – 15:00 á fimmtudögum.
Við hvetjum alla sem ekki hafa látið bólusetja sig að gera það sem fyrst