Hvatt til bólusetninga fyrir ferðalög til Evrópu og Bandaríkjanna

Mynd af frétt Hvatt til bólusetninga fyrir ferðalög til Evrópu og Bandaríkjanna
22.04.2024

Fólk sem hyggur á ferðalög ætti að fara yfir bólusetningar sínar og barna sinna hvort sem farið er á framandi slóðir eða stefnt á stutta ferð til nágrannalandanna. Mikilvægt er að kanna hvort bæta þurfi við bólusetningum með góðum fyrirvara áður en flogið er af landi brott.

„Hingað til hefur fólk aðallega skoðað bólusetningar fyrir ferðalög á fjarlægar slóðir, til Asíu, Afríku eða Suður-Ameríku til dæmis,“ segir Nanna Sigríður Kristinsdóttir, fagstjóri lækninga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. „Það hafa komið upp alvarlegir faraldrar í Evrópu og Bandaríkjunum undanfarið sem kalla á að við endurskoðum þá nálgun og tryggjum að við séum nægilega vel bólusett þó við ætlum ekki í langferð.“ 

Hægt er að fá ráðleggingar um bólusetningar fyrir ferðalög í netspjalli Heilsuveru. Fylla þarf inn upplýsingar um fyrirhugað ferðalag og fær viðkomandi sendar upplýsingar um ráðlagðar bólusetningar. Fólk sem býr á höfuðborgarsvæðinu og skráð er á heilsugæslustöðvar sem ekki tilheyra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins þarf að heyra í sinni stöð til að fá ráðleggingar um bólusetningar.

Meðal þess sem yfirfara þarf fyrir ferðalög til Evrópu er hvort nauðsynlegt sé að fá örvunarskammt af bóluefni við sjúkdómum sem börn eru bólusett fyrir, til dæmis barnaveiki, kíghósta, stífkrampa og mænusótt ásamt því hvort bólusetja þurfi við lifrarbólgu A og B.