Má bjóða þér að skrá þig rafrænt á Heilsugæsluna Árbæ?
Almennar upplýsingar
Heilsugæslan Árbæ er opin 8:00 - 17:00
Svarað er í sima 8:00 til 16:00
Bráð erindi
1700 síminn og netspjall Heilsuveru veita ráðgjöf og geta komið erindum í farveg milli kl. 8 og 17. 1700 síminn er opinn allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru er opið frá kl. 8 til 22.
Viltu skrá þig hjá okkur?
Er erindið brátt?
Hvað viltu gera?
Blóðsýni eru tekin milli kl. 8:05 og 11:00 alla virka daga
Bóka þarf tíma í blóðtöku og þarf alltaf beiðni frá lækni að liggja fyrir.
Þvagsýni þurfa helst að berast fyrir kl. 10:00. Best er að koma með fyrsta morgunþvag (miðbunuþvag) nema annað hafi verið tekið fram.
Tímapantanir og nánari upplýsingar í síma 513-5200.
Þú getur bókað tíma í heilsuveru eða með því að hringja á stöðina.
Ef erindið er brátt getur þú haft samband í síma 1700 eða á netspjalli á heilsuvera.is
1700 síminn er opinn allan sólarhringinn og netspjall Heilsuveru er opið 8 til 22.
Á þekkingarvefnum Heilsuvera.is er fræðsluefni um sjúkdóma, forvarnir og fyrirbyggjandi leiðir til heilbrigðara og betra lífs.
Örugg gagnaskil
Hægt er að senda gögn með öruggum hætti til Heilsugæslunnar Árbæ með Signet transfer. Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki. Hlekkur í örugg gagnaskil
Öll eru velkomin á stöðina
Heilsugæslan Árbæ þjónar fyrst og fremst íbúum Árbæjar, Seláss, Ártúnsholts og Grafarholts en öll eru velkomin a stöðina. Skráning er í gegnum mínar síður á island.is.
Nánari upplýsingar um stöðina og þjónustu hennar eru í flipunum hér fyrir ofan: Læknisþjónusta, Opin móttaka, Heilsuverndin, Sálfræðiþjónusta og Um stöðina.
Með rafrænum skilríkjum er hægt að bóka tíma, endurnýja lyf og senda einfaldar fyrirspurnir á mínum síðum á heilsuvera.is
Við tökum vel á móti þér
Læknisþjónusta í Árbæ
Það eru nokkrar leiðir að þjónustu læknanna okkar.
Hvað hentar þér best?
Þjónusta í boði
Heimilislæknar á stöðinni eru með bókaða viðtalstíma frá kl. 8 - 16 og er hver tími 20 mínútur.
Þú bókar tíma í gegnum mínar síður á Heilsuveru eða með því að hringja á stöðina.
Á hverjum degi eru fráteknir nokkrir tímar sem eru ætlaðir fyrir skyndileg veikindi.
Hægt er að hringja að morgni í afgreiðsluna til að bóka í þessa tíma.
Milli kl. 16:00 og 17:00 eru læknar stöðvarinnar með síðdegisvakt.
Bókað er á síðdegisvakt á staðnum frá kl. 15:30 og takmarkaður fjöldi kemst að hverju sinn.
Í símaviðtali svara læknar stuttorðum fyrirspurnum, veita einfaldar ráðleggingar og/eða gefa upplýsingar um niðurstöður rannsókna.
Oft er þægilegra að senda stuttar fyrirspurnir í gegnum í mínar síður í Heilsuveru. Milli kl. 8 og 16 er líka alltaf hægt að fá símasamband við hjúkrunarfræðing í síma 513-5200.
Símaviðtöl við lækna eru pöntuð í síma 513-5200 fyrir kl. 9:00. Læknar hringja í uppgefið símanúmer samdægurs.
Símaþjónusta lækna stöðvarinnar er á eftirfarandi dögum:
- Björn Blöndal - alla virka daga nema miðvikudaga
- Egill Rafn Sigurgeirsson - alla virka daga nema miðvikudaga
- Gríma Huld Blængsdóttir - alla virka daga nema þriðjudaga
- Guðmundur Björgvinsson - alla virka daga
- María Ólafsdóttir - alla virka daga nema þriðjudaga
- Víóletta Ósk Hlöðversdóttir - alla virka daga
Hægt er að óska eftir lyfjaendurnýjun rafrænt eða í síma. Þar er hægt að endurnýja lyf sem tekin eru að staðaldri og ávísað hefur verið af læknum stöðvarinnar.
Venjulega eru þessar lyfjaendurnýjanir tilbúnar til afgreiðslu í lyfjaverslunum eftir kl. 16:00 sama dag.
Rafræn lyfjaendurnýjun
Einfaldast er að óska eftir lyfjaendurnýjun í Heilsuvera.is. Þú þarft að hafa rafræn skilríki.
Lyfjaendurnýjun í síma
Lyfjaendurnýjun er virka daga frá kl. 9:00 til 10:00 í síma 513-5202. Ritarar taka við beiðnum um endurnýjun og koma þeim til viðkomandi læknis.
Ef þörf er á veikindavottorði vegna skóla eða vinnu, þarf að tilkynna veikindin á heilsugæslustöðina og fá samband við hjúkrunarfræðing eða lækni sem fyrst eftir að veikindi hefjast.
Hafa skal beint samband við lækni vegna lengri veikinda og annarra vottorða s.s. vinnuveitendavottorða.
Heimilislæknar gera tilvísanir til sérgreinalækna ef þarf vegna mála sem þeir hafa haft aðkomu að.
Þegar farið er til sérgreinalækna vinsamlegast biðjið þá um að senda heimilislækni læknabréf.
Læknar stöðvarinnar
Hjá okkur starfa sérfræðingar í heimilislækningum en einnig almennir læknar, sérnámslæknar og unglæknar.
- Bjarki Steinn Traustason heimilislæknir
- Björn Blöndal heimilislæknir
- Egill Rafn Sigurgeirsson heimilislæknir
- Gríma Huld Blængsdóttir heimilislæknir
- Guðmundur Björgvinsson heimilislæknir
- María Ólafsdóttir heimilislæknir
- Tinna Karen Árnadóttir heimilislæknir
- Víóletta Ósk Hlöðversdóttir heimilislæknir
Við erum á vaktinni allan daginn
Ráðgjöf hjúkrunarfræðinga
Hægt er að fá símaráðgjöf hjá hjúkrunarfræðingi frá kl. 8:00 til 16:00, alla virka daga í síma 513-5200.
Ef hjúkrunarfræðingurinn er upptekinn tekur móttökuritari niður skilaboð og haft er samband um leið og færi gefst.
1700 síminn og netspjall Heilsuveru veita ráðgjöf og geta komið erindum í farveg milli kl. 8 og 17.
1700 síminn er opinn allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru er opið frá kl. 8 til 22.
Skyndimóttaka fyrir smáslys og bráð veikindi
Það er líka hægt að koma í móttökuna á dagvinnutíma.
Öllum erindum sem koma á vaktina er sinnt, annaðhvort með því að veita þjónustuna á staðnum eða vísa í þann farveg sem við á í hverju tilviki.
Bókuð móttaka
Einnig er hægt að bóka tíma í móttöku hjúkrunarfræðinga.
Til dæmis fyrir sáraskiptingar, bólusetningar o.fl.
Hvað er í gert í opnu móttökunni?
Algengt er að fólk leiti aðstoðar eða ráðgjafar þegar um er að ræða veikindi, vanlíðan, óþægindi eða slys.
Til dæmis er algengt að foreldrar með lasin börn fái ráðleggingar varðandi umönnun og aðstoð við að meta þörf fyrir frekari þjónustu.
Einnig leita margir ráða vegna lyfjatöku eða vantar leiðbeiningar til að rata um heilbrigðiskerfið.
Hjúkrunarfræðingar sinna einnig erindum sem flokkast undir heilsuvernd, forvarnir og lífsstíl
Framkvæmdar eru rannsóknir og mælingar, t.d. mælingar á blóðþrýstingi
Heilsuvernd mæðra, ung- og smábarna, skólabarna, eldra fólks og allra hinna
Við fylgjumst með heilsu og þroska frá móðurkviði til unglingsára í mæðravernd, ung- og smábarnavernd og heilsuvernd skólabarna.
Á fullorðinsárum bjóðum við aðstoð við heilsueflingu með ráðgjöf, eftirliti og bólusetningum og heilsuvernd sem er ætluð eldra fólki.
Heilsuvernd og heilsuefling
Heilsuverndin hefst á mæðravernd.
Mæðraverndarþjónustan er ókeypis og verðandi mæður geta annað hvort farið á heilsugæslustöð í sínu hverfi eða valið aðra stöð og skráð sig á hana.
Viðtöl og skoðanir eru í boði frá upphafi meðgöngu og fram að fæðingu. Fyrsta viðtal við ljósmóður er gjarnan í síma fljótlega eftir að þungun er staðfest. Fjöldi mæðraskoðana fer svo eftir aðstæðum, oftast 7-10 skipti. Milli skoðana er hægt að fá símaráðgjöf hjá ljósmóður.
Ung- og smábarnavernd tekur við af mæðravernd þegar fjölskyldan kemur heim og heimaþjónustu ljósmæðra lýkur.
Fyrstu vikurnar eftir fæðingu fara hjúkrunarfræðingar stöðvarinnar í vitjanir heim til fjölskyldunnar. Foreldrar eru því beðnir um að hafa samband við hjúkrunarfræðing fljótlega eftir að heim er komið. Fyrsta læknisskoðun á heilsugæslustöðinni er svo við 6 vikna aldur.
Síðan eru reglubundnar skoðanir hjá hjúkrunarfræðingi og lækni til skólaaldurs. Þá fylgjumst við með vexti og þroska barnanna og bólusetjum. Í skoðunum ráðleggjum við m.a. um brjóstagjöf, svefnvandamál, aga og uppeldi, matarræði og slysavarnir. Auk þess er alltaf hægt að fá samband við hjúkrunarfræðing ef spurningar vakna varðandi barnið.
Heilsuvernd skólabarna tekur við þegar ung- og smábarnavernd lýkur.
Hjúkrunarfræðingar og læknar á heilsugæslustöðinni sjá um heilsuvernd skólabarna á þjónustusvæði stöðvarinnar.
- Árbæjarskóli
- Dalskóli
- Ingunnarskóli
- Selásskóli
- Sæmundarskóli
Hægt er að fá símasamband við skólahjúkrunarfræðingana í gegnum skiptiborð skólanna.
Heilsuverndin tekst á við heilsuáskoranir fullorðinsára í heilsueflandi móttöku.
Þar aðstoðum við þig við heilbrigðan lífsstíl með mælingum, ráðgjöf og stuðningi.
Oft kemur heilsueflandi móttaka til aðstoðar í framhaldi af viðtali við lækni en þú getur líka haft samband við hjúkrunarfræðing á stöðinni þinni ef þú þarft á þessari þjónustu að halda.
Við höfum það að leiðarljósi að mæta fólki þar sem það er statt og gera því kleift að búa sem lengst á eigin heimili.
Hafðu samband við okkur og pantaðu viðtal hjá hjúkrunarfræðingi í Heilsuvernd eldra fólks.
Í viðtölum eru m.a. veittar upplýsingar um þá þjónustu sem eldri borgurum stendur til boða í nærsamfélaginu. Við greinum áhættuþætti varðandi heilsufar og ráðleggjum um fyrirbyggjandi aðgerðir og meðhöndlun sjúkdóma svo eldra fólk viðhaldi sem lengst andlegri, líkamlegri og félagslegri færni sinni.
Þeir sem eru 70 ára og eldri eru hvattir til að panta tíma hjá okkur í almennt eftirlit þar sem heimilislæknir fer yfir lyfjalista, mælir blóðþrýsting, blóðsykur og fleira ef þarf.
Leghálsskimun
Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar annast sýnatöku fyrir skimun vegna krabbameins í leghálsi.
Skimanir eru á stöðinni fyrir hádegi á þriðjudögum og annan hvern föstudag eftir hádegi.
Ef það er komið að þér í skimun má panta tíma á mínum síðum heilsuveru eða með símtali.
Lestu meira um leghálskrabbameinsskimun
Hreyfiseðill
Hreyfiseðill er meðferðarúrræði við sjúkdómum, sem vitað er að regluleg hreyfing getur haft umtalsverð áhrif á.
Heimilislæknar, hjúkrunarfræðingar og ljósmæður vísa til sjúkraþjálfara. Ef þú heldur að hreyfiseðill henti þér, pantar þú fyrst tíma hjá þínum lækni.
Þjónusta sálfræðinga
Læknar stöðvarinnar vísa til sálfræðinga þannig að fyrsta skrefið er að panta tíma hjá heimilislækni.
Gunnar Karl Karlsson sálfræðingur sinnir meðferð og ráðgjöf fyrir börn og unglinga.
Atli Valur Jóhannsson og Gyða Dögg Einarsdóttir sálfræðingar sinna meðferð og ráðgjöf fyrir fullorðna
HAM námskeið
Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins býður upp á hugræna atferlismeðferð (HAM) fyrir fulllorðna.
Nánari upplýsingar:
Samvinna fyrir þig
Heilsugæslan Árbæ þjónar einkum íbúum Árbæjar, Seláss, Ártúnsholts og Grafarholts en allir eru velkomnir a stöðina.
Við veitum samfellda þjónusta með hag einstaklingsins og fjölskyldunnar í huga. Fagleg afstaða er tekin til allra erinda og annað hvort leyst úr þeim eða ráðlagt um önnur úrræði.
Þjónustan byggir á sérþekkingu starfstétta og þverfaglegri samvinnu.
Um heilsugæslustöðina
Heilsugæslustöðvum er stýrt af svæðisstjóra.
Fagstjórar lækninga og hjúkrunar leiða faglegt starf.
- Svæðisstjóri og fagstjóri hjúkrunar: Helga Sævarsdóttir - í leyfi
- Svæðisstjóri og fagstjóri lækninga: Tinna Karen Árnadóttir
- Fagstjóri hjúkrunar: Elín Gunnarsdóttir
- Skrifstofustjóri: Sigurbjörg Haraldsdóttir
Starfsmenn | Starfsheiti | Sími | Netfang |
---|---|---|---|
Agnes Svansdóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-5200 | |
Anna Álfheiður Brynjólfsdóttir | Móttökuritari | 513-5200 | |
Anna María Sigtryggsdóttir | Móttökuritari | 513-5200 | |
Anna Rósa Arnarsdóttir | Ljósmóðir | 513-5200 | |
Atli Valur Jóhannsson | Sálfræðingur | 513-5200 | |
Ása Unnur Bergmann Þorvaldsdóttir | Læknir | 513-5200 | |
Ásta María Runólfsdóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-5200 | |
Birna Sólveig Björnsdóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-5200 | |
Bjarki Steinn Traustason | Heimilislæknir | 513-5200 | |
Björn Blöndal | Heimilislæknir | 513-5200 | |
Borgný Skúladóttir | Sérnámslæknir í heimilislækningum | 513-5200 | |
Egill Rafn Sigurgeirsson | Heimilislæknir | 513-5200 | |
Elizabeth Ann Courtney | Heilsugæsluritari | 513-5200 | |
Elín Gunnarsdóttir | Fagstjóri hjúkrunar | 513-5200 | |
Elín Sigurbjörg Guðmundsdóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-5200 | |
Erla Björk Hauksdóttir | Heilsugæsluritari | 513-5200 | |
Eva Ösp Bergþórsdóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-5200 | |
Gríma Huld Blængsdóttir | Heimilislæknir | 513-5200 | |
Guðbjörg Ásta Jónsdóttir | Móttökuritari | 513-5200 | |
Guðlaug Anna Gunnarsdóttir | Læknanemi | 513-5200 | |
Guðmundur Björgvinsson | Heimilislæknir | 513-5200 | |
Guðný Björg Björnsdóttir | Sjúkraþjálfari | 513-5200 | |
Guðrún Björk Gunnarsdóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-5200 | |
Guðrún Jónsdóttir | Heimilislæknir | 513-5200 | |
Gunnar Karl Karlsson | Sálfræðingur | 513-5200 | |
Helen Ingibjörg Agnarsdóttir | Móttökuritari | 513-5200 | |
Helga Jóhannsdóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-5200 | |
Helga Margrét Helgadóttir | Sérnámslæknir í heimilislækningum | 513-5200 | |
Helga Sif Guðmundsdóttir | Móttökuritari | 513-5200 | |
Helga Sævarsdóttir | Svæðisstjóri og Fagstjóri hjúkrunar | Í leyfi | |
Hildur Helgadóttir | Hjúkrunarfræðingur/ljósmóðir | 513-5200 | |
Hjördís Magnúsdóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-5200 | |
Ísabel Petra Berndsen | Móttökuritari | 513-5200 | |
Karitas Mjöll Jóhannsdóttir | Heilbrigðisgagnafræðingur | 513-5200 | |
Kristján Helgi Garðarsson | Unglæknir | 513-5200 | |
Líney Ragna Ólafsdóttir | Læknanemi | 513-5200 | |
María Ólafsdóttir | Heimilislæknir | 513-5200 | |
Matthildur G. Einarsdóttir | Móttökuritari | Í leyfi | |
Natalía Tinna S Bendar | Móttökuritari | 513-5200 | |
Ólöf Hafdís Guðlaugsdóttir | Móttökuritari | 513-5200 | |
Ósk Stefánsdóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-5200 | |
Rannveig B. Ragnarsdóttir | hjúkrunarfræðingur/ljósmóðir | 513-5200 | |
Sigríður Guðrún Elíasdóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-5200 | |
Sigríður María Kristinsdóttir | Sérnámslæknir í heimilislækningum | 513-5200 | |
Sigrún Anna Þórisdóttir | Heilsugæsluritari | 513-5200 | |
Soffía Hlynsdóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-5200 | |
Stefán Þórsson | Heimilislæknir | 513-5200 | |
Svanlaug Halldórs Árnadóttir | Heilsugæsluritari | 513-5200 | |
Thelma Lind Guðmundsdóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-5200 | |
Tinna Daníelsdóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-5200 | |
Tinna Karen Árnadóttir | Svæðisstjóri og fagstjóri lækninga | 513-5200 | |
Valeriia Kara | Heilsugæsluritari | 513-5200 | |
Víóletta Ósk Hlöðversdóttir | Heimilislæknir | 513-5200 |