Má bjóða þér að skrá þig rafrænt á Heilsugæsluna Miðbæ?
Heilsugæslan Miðbæ þjónar fyrst og fremst íbúum í póstnúmeri 101 vestan Snorrabrautar og norðan Hringbrautar, en öllum er velkomið að skrá sig á stöðina.
Má bjóða þér að skrá þig rafrænt á Heilsugæsluna Miðbæ?
Heilsugæslan Miðbæ þjónar fyrst og fremst íbúum í póstnúmeri 101 vestan Snorrabrautar og norðan Hringbrautar, en öllum er velkomið að skrá sig á stöðina.
Lyfjasíminn er 513-5952 á milli kl. 9:30 og 11:00 alla virka daga.
Líka er hægt að óska eftir endurnýjun á mínum síðum Heilsuveru.
Þú getur bókað tíma í heilsuveru eða með því að hringja á stöðina.
Ef þú getur ekki beðið eru samdægurstímar, skyndimóttaka eða síðdegisvakt möguleiki.
Það er alltaf hægt að fá símasamband við hjúkrunarfræðing sem kemur erindi þínu í farveg eða leiðbeinir þér með önnur úrræði.
1700 síminn og netspjall heilsuveru veita ráðgjöf og geta komið erindum í farveg milli kl. 8 og 17. 1700 síminn er opinn allan sólarhringinn. Netspjall heilsuveru er opið frá kl. 8 til 22.
Rannsóknastofa á Landakoti er opin alla daga eru skjólstæðingar heilsugæslunnar velkomnir þar.
Rannsóknarstofan er opin 10:00 til 14:00 mánudaga og fimmtudaga og 10.00 til 12:00 þriðjudaga, miðvikudaga og föstudaga.
Þvagprufum er hægt að skila til vakthjúkrunarfræðings á heilsugæslustöðinni eftir samkomulagi við lækni eða hjúkrunarfræðing.
Blóðprufur eru ekki teknar á heilsugæslustöðinni.
Hægt er að senda gögn með öruggum hætti til Heilsugæslunnar Miðbæ með Signet transfer. Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki. Hlekkur í örugg gagnaskil
Nánari upplýsingar um stöðina og þjónustu hennar eru í flipunum hér fyrir ofan: Læknisþjónusta, Móttaka, Heilsuverndin, Sálfræðiþjónusta og Um stöðina.
Með rafrænum skilríkjum er hægt að bóka tíma, endurnýja lyf og senda einfaldar fyrirspurnir á mínum síðum á Heilsuvera.is
Það eru nokkrar leiðir að þjónustu læknanna okkar.
Hvaða leið hentar þér best?
Heimilislæknar á stöðinni eru með bókaða viðtalstíma frá kl. 8 - 16 og er hver tími 20 mínútur.
Þú bókar tíma í gegnum mínar síður á Heilsuveru eða með því að hringja á stöðina.
Í símaviðtali svara læknar stuttorðum fyrirspurnum, veita einfaldar ráðleggingar og/eða gefa upplýsingar um niðurstöður rannsókna.
Oft er þægilegra að senda stuttar fyrirspurnir í gegnum í mínar síður í Heilsuveru. Milli kl. 8 og 15 er líka alltaf hægt að fá símasamband við hjúkrunarfræðing í síma 513-5300.
Símaviðtöl við lækna stöðvarinnar eru pöntuð í síma 513-5950 fyrir kl. 11:00.
Hægt er að óska eftir lyfjaendurnýjun rafrænt eða í síma. Þar er hægt að endurnýja lyf sem tekin eru að staðaldri og ávísað hefur verið af læknum stöðvarinnar.
Venjulega eru þessar lyfjaendurnýjanir tilbúnar til afgreiðslu í lyfjaverslunum eftir kl. 16:00 sama dag.
Rafræn lyfjaendurnýjun
Einfaldast er að óska eftir lyfjaendurnýjun í Heilsuvera.is. Þú þarft að hafa rafræn skilríki.
Lyfjaendurnýjun í síma
Lyfjaendurnýjun er alla virka daga frá kl. 9:30 til 11:00 í síma 513-5952. Ritarar taka við beiðnum um endurnýjun.
Ef þörf er á veikindavottorði vegna skóla eða vinnu þarf að tilkynna veikindin á heilsugæslustöðina sem fyrst eftir að veikindi hefjast.
Í stuttum veikindum er tekið á móti beiðnum um veikindavottorð vegna skóla í síma: 513-5950.
Hafa skal beint samband við lækni vegna lengri veikinda og annarra vottorða s.s. vinnuveitendavottorða.
Heimilislæknar gera tilvísanir til sérgreinalækna ef þarf vegna mála sem þeir hafa haft aðkomu að.
Þegar farið er til sérgreinalækna vinsamlegast biðjið þá um að senda heimilislækni læknabréf.
Hjá okkur starfa sérfræðingar í heimilislækningum en einnig almennir læknar, sérnámslæknar og læknar í sérnámsgrunni.
Fyrsta skrefið er að hafa samband síma 1700 eða á netspjalli á heilsuvera.is
1700 síminn er opinn allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru er opið frá kl. 8 til 22.
Hjúkrunarfræðingur mun leiðbeina þér um næstu skref og þau sem þurfa að koma fá tíma samdægurs eða daginn eftir
Móttakan er opin virka daga á dagvinnutíma og þar er tekið á móti bráðaerindum og veitt smáslysaþjónusta.
Í móttökunni starfa hjúkrunarfræðingar og læknar stöðvarinnar.
Hjúkrunarfræðingar sem svara 1700 símanum og netspjalli Heilsuveru veita ráðgjöf og geta komið erindum í farveg.
1700 síminn er opinn allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru er opið frá kl. 8 til 22.
Einnig er hægt að bóka tíma í móttöku hjúkrunarfræðinga.
Til dæmis fyrir sáraskiptingar, saumatökur, bólusetningar o.fl.
Við fylgjumst með heilsu og þroska frá móðurkviði til unglingsára í mæðravernd, ung- og smábarnavernd og heilsuvernd skólabarna.
Á fullorðinsárum bjóðum við aðstoð við heilsueflingu með ráðgjöf, eftirliti og bólusetningum og heilsuvernd sem er ætluð eldri borgurum.
Heilsuverndin hefst á mæðravernd.
Mæðraverndarþjónustan er ókeypis og verðandi mæður geta annað hvort farið á heilsugæslustöð í sínu hverfi eða valið aðra stöð og skráð sig á hana.
Viðtöl og skoðanir eru í boði frá upphafi meðgöngu og fram að fæðingu. Fyrsta viðtal við ljósmóður er gjarnan í síma fljótlega eftir að þungun er staðfest. Fjöldi mæðraskoðana fer svo eftir aðstæðum, oftast 8-10 skipti. Milli skoðana er hægt að fá símaráðgjöf hjá ljósmóður.
Ung- og smábarnavernd tekur við af mæðravernd þegar fjölskyldan kemur heim og heimaþjónustu ljósmæðra lýkur.
Fyrstu vikurnar eftir fæðingu fara hjúkrunarfræðingar stöðvarinnar í vitjanir heim til fjölskyldunnar. Foreldrar eru því beðnir um að hafa samband við hjúkrunarfræðing fljótlega eftir að heim er komið. Fyrsta læknisskoðun á heilsugæslustöðinni er svo við 6 vikna aldur.
Síðan eru reglubundnar skoðanir hjá hjúkrunarfræðingi og lækni til skólaaldurs. Þá fylgjumst við með vexti og þroska barnanna og bólusetjum. Í skoðunum ráðleggjum við m.a. um brjóstagjöf, svefnvandamál, aga og uppeldi, matarræði og slysavarnir. Auk þess er alltaf hægt að fá samband við hjúkrunarfræðing ef spurningar vakna varðandi barnið.
Heilsuvernd skólabarna tekur við þegar ung- og smábarnavernd lýkur.
Hjúkrunarfræðingar og læknar á heilsugæslustöðinni sjá um heilsuvernd skólabarna á þjónustusvæði stöðvarinnar.
Hægt er að fá símasamband við skólahjúkrunarfræðingana í gegnum skiptiborð skólanna.
Heilsuverndin tekst á við heilsuáskoranir fullorðinsára í heilsueflandi móttöku.
Þar aðstoðum við þig við heilbrigðan lífsstíl með mælingum, ráðgjöf og stuðningi.
Oft kemur heilsueflandi móttaka til aðstoðar í framhaldi af viðtali við lækni en þú getur líka haft samband við hjúkrunarfræðing á stöðinni þinni ef þú þarft á þessari þjónustu að halda.
Við höfum það að leiðarljósi að mæta fólki þar sem það er statt og gera því kleift að búa sem lengst á eigin heimili.
Hafðu samband við okkur og pantaðu viðtal hjá hjúkrunarfræðingi í Heilsuvernd eldra fólks.
Í viðtölum eru m.a. veittar upplýsingar um þá þjónustu sem eldri borgurum stendur til boða í nærsamfélaginu. Við greinum áhættuþætti varðandi heilsufar og ráðleggjum um fyrirbyggjandi aðgerðir og meðhöndlun sjúkdóma svo eldra fólk viðhaldi sem lengst andlegri, líkamlegri og félagslegri færni sinni.
Þeir sem eru 70 ára og eldri eru hvattir til að panta tíma hjá okkur í almennt eftirlit þar sem heimilislæknir fer yfir lyfjalista, mælir blóðþrýsting, blóðsykur og fleira ef þarf.
Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar annast sýnatöku fyrir skimun vegna krabbameins í leghálsi.
Skimanir eru á stöðinni fyrir hádegi á miðvikudögum.
Ef það er komið að þér í skimun má panta tíma á mínum síðum heilsuveru eða með símtali.
Lestu meira um leghálskrabbameinsskimun
Hreyfiseðill er meðferðarúrræði við sjúkdómum, sem vitað er að regluleg hreyfing getur haft umtalsverð áhrif á.
Heimilislæknar, hjúkrunarfræðingar, ljósmæður, sálfræðingar vísa til sjúkraþjálfara. Ef þú heldur að hreyfiseðill henti þér, pantar þú fyrst tíma hjá þínum lækni.
Læknar stöðvarinnar vísa til sálfræðinga þannig að fyrsta skrefið er að panta tíma hjá heimilislækni.
Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins býður upp á hugræna atferlismeðferð (HAM) fyrir fulllorðna.
Nánari upplýsingar:
Heilsugæslan Miðbæ þjónar einkum íbúum í póstnúmeri 101 vestan Snorrabrautar og norðan Hringbrautar, en allir eru velkomnir a stöðina.
Við veitum samfellda þjónusta með hag einstaklingsins og fjölskyldunnar í huga. Fagleg afstaða er tekin til allra erinda og annað hvort leyst úr þeim eða ráðlagt um önnur úrræði.
Þjónustan byggir á sérþekkingu starfstétta og þverfaglegri samvinnu.
Heilsugæslustöðvum er stýrt af svæðisstjóra.
Fagstjórar lækninga og hjúkrunar leiða faglegt starf
Við viljum vita hvað þér finnst um þjónustu okkar.
Þú getur sent okkur tölvupóst eða talað beint við starfsfólkið.
Ábendingar um hvað betur má fara hjálpa okkur að gera enn betur.
Starfsmenn | Starfsheiti | Sími | Netfang |
---|---|---|---|
Aðalbjörg Ósk Angantýsdóttir | Skrifstofustjóri | 513-5950 | |
Anna María Skaftadóttir | Félagsráðgjafi | 513-5950 | |
Ásdís Eckardt | Hjúkrunarfræðingur | 513-5950 | |
Berglind María B. Pétursdóttir | Heilsugæsluritari | 513-5950 | |
Bergrún H. Gunnarsdóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-5950 | |
Björg Þuríður Magnúsdóttir | Fagstjóri lækninga | 513-5950 | |
Dagur Ólafsson | Heimilislæknir | 513-5950 | |
Elín Edda Sigurðardóttir | Sérnámslæknir í heimilislækningum | 513-5950 | |
Ester Böðvarsdóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-5950 | |
Eygló Kristín Óskarsdóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-5950 | |
Guðbjörg Sigurgeirsdóttir | Heimilislæknir | 513-5950 | |
Hafdís Ólafsdóttir | Svæðisstjóri og fagstjóri hjúkrunar | 513-5950 | |
Hallveig Sigurðardóttir | Móttökuritari | 513-5950 | |
Heiður Mist Dagsdóttir | Heimilislæknir | 513-5950 | |
Hekla Sigurðardóttir | Sérnámslæknir í heimilislækningum | 513-6400 | |
Hildur Holgersdóttir | Ljósmóðir | 513-5950 | |
Hringur Árnason | Móttökuritari | 513-5950 | |
Hörður Björnsson | Heimilislæknir | Í leyfi | |
Indriði Kárason | Móttökuritari | 513-5950 | |
Ína Kolbrún Ögmundsdóttir | Heimilislæknir | 513-5950 | |
Lovísa Guðbrandsdóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-5950 | |
Margrét Unnur Sigtryggsdóttir | Ljósmóðir | 513-5950 | |
Mary Rose Gretchen De Jesus | Hjúkrunarfræðingur | 513-5950 | |
Sigríður Dóra Magnúsdóttir | Heimilislæknir | 513-5950 | |
Sigríður Ýr Jensdóttir | Heimilislæknir | 513-5950 | |
Sigrún H. Wahlgren Davíðsdóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-5950 | |
Sóllilja Guðmundsdóttir Aspelund | Sérnámslæknir í heimilislækningum | 513-5950 | |
Steindór Oddur Ellertsson | Sérnámslæknir í heimilislækningum | 513-5900 | |
Sunna M. Tórshamar Georgsdóttir | Sjúkraliði | 513-5950 | |
Tinna Ívarsdóttir | Ljósmóðir | 513-5950 |