Almennar upplýsingar

icon

Símatími á fimmtudögum



milli kl. 11:00 - 12:00 í síma 513-6819
icon

Hægt að senda umsóknir í pósti



Einnig er hægt að nota örugg gagnaskil eða skilja eftir umsóknir í móttöku á 2. hæð í Álfabakka 16

Símatími og staðsetning

Starfsmenn nefndarinnar eru með símatíma á fimmtudögum milli kl. 11:00 og 12:00, í síma 513-6819.

 

Færni- og heilsumatsnefnd höfuðborgarsvæðis hefur aðsetur að Álfabakka 16, 109 Reykjavík, hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

Örugg gagnaskil

Hægt er að senda gögn með öruggum hætti til Færni- og heilsumatsnefndar með Signet transfer. Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki. Hlekkur í örugg gagnaskil

Umsóknarferlið

Alla jafna er miðað við að ekki líði meira en fjórar vikur frá því að nefndinni berst beiðni um færni- og heilsumat þar til að niðurstaða liggur fyrir. 

Þegar umsókn berst er óskað eftir umsögnum fagaðila sem koma að þjónustu við umsækjendur.


Þegar umbeðin gögn hafa borist fer málið fyrir næsta fund nefndar þar á eftir.


Niðurstaða matsins er tilkynnt skriflega um leið og hún liggur fyrir. Mikilvægt er að gefa bæði upp heimilisfang og tölvupóstfang umsækjanda eða þess sem á að móttaka svarið.

Eyðublöð

Vistið skjalið, fyllið út rafrænt, prentið síðan út, skrifið undir og sendið í pósti. Einnig er hægt að nota örugg gagnaskil.

 

 

Umsókn um færni- og heilsumat (langtímadvöl) gildir einnig sem samþykki fyrir hvíldarinnlögn, allt að 8 vikur til að skipta upp á biðtímanum/12 mánuði.

Nefndin

Nefndarmenn eru:

 

  • Pálmi V. Jónsson, læknir, formaður
  • Unnur K. Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðingur, varaformaður
  • Eyrún Jónatansdóttir, félagsráðgjafi,
  • Hafsteinn Freyr Hafsteinsson, heilsugæslulæknir
  • Inga Valgerður Kristinsdóttir, hjúkrunarfræðingur
  • Kristinn Guðjón Kristinsson, félagsráðgjafi

Hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu

Langtímadvöl

Droplaugarstaðir,  Reykjavík 
Eir, Reykjavík   
Grund, Reykjavík  
Hamrar, Mosfellsbæ 
Hrafnista Boðaþing, Kópavogi
Hrafnista v/ Laugarás, Reykjavík
Hrafnista v/ Hraunvangi, Hafnarfirði  
Hrafnista, Ísafold, Garðabæ 
Hrafnista Skógarbær, Reykjavík 
Hrafnista Sléttuvegi,  Reykjavík 
Mörk, Reykjavík  
Seltjörn, Seltjarnarnesi, 
Skjól,  Reykjavík 
Sóltún, Reykjavík 
Sunnuhlíð, Kópavogi   
Sólvangur, Hafnarfirði   

Nánari upplýsingar

Á nokkrum heimilum eru bæði einbýli og tvíbýli. Þá bjóðast gjarnan tvíbýli við innlögn en hægt að sækja síðar um innanhúss flutning. Þetta á við  um Hrafnistu Skógarbæ og Skjól og í færri tilvikum Eir og Grund.  Biðtími er styttri eftir þessum rýmum en almennt gerist.

 

Sameiginlegt salerni er á Hrafnistu Hraunvangi og á nokkrum einbýlum á Eir, Grund, Hrafnistu Laugarási og Skjóli.

 

Lokuð heilabilunardeild er á Droplaugarstöðum, Eir, Grund, Hrafnistu Laugarási, Hrafnistu-Skógarbæ, Seltjörn, Skjóli og Sunnuhlíð.  

 

Geðrými eru í Mörk,  Ási Hveragerði og Fellsenda í Búðardal.

 

Hjónarými eru á Eir, Grund, Hrafnistu Hraunvangi og Hrafnistu Laugarási. Einnig gætu tvíbýli nýst sem hjónarými.

 

Ekki eru takmörk fyrir fjölda heimila í vali, sækja má um öll heimili á höfuðborgarsvæðinu, sem og heimili á landinu öllu.

 

Hvíldarinnlagnir bjóðast á Grund, Hrafnistu Laugarási og Hrafnistu Hafnarfirði á höfuðborgarsvæðinu. Einnig bjóðast hvíldarinnlagnir á landsbyggðinni. Heimilin sjálf halda utan um hvíldarbiðlista og taka á móti óskum um hvíldarinnlögn.

Upplýsingar og aðstoð

Varanleg dvöl

Hvíldarinnlögn