Má bjóða þér að skrá þig rafrænt á Heilsugæsluna Sólvangi?
Almennar upplýsingar
Heilsugæslan Sólvangi er opin 8:00 - 17:00
Svarað er í sima 8:00 til 16:00
Bráð erindi
1700 síminn og netspjall Heilsuveru veita ráðgjöf og geta komið erindum í farveg milli kl. 8 og 18 mánudaga til fimmtudaga og kl. 8 og 17 föstudaga. 1700 síminn er opinn allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru er opið frá kl. 8 til 22.
Viltu skrá þig hjá okkur?
Hvað viltu gera?
Þú getur séð hvaða stöð er þín á Mínum síðum Heilsuveru og í Réttindagátt sjúkratrygginga.
Þú getur skráð þig á heilsugæslustöð að eigin vali í Réttindagátt eða á stöðinni sjálfri.
Öllum er velkomið á skrá sig á stöðina og við tökum vel á móti þér.
Lyfjasíminn er 513-6202 frá kl. 9:00 til 11:00 virka daga.
Líka er hægt að óska eftir endurnýjun á mínum síðum Heilsuveru.
Þú getur bókað tíma í heilsuveru eða með því að hringja á stöðina.
Ef þú getur ekki beðið eru samdægurstímar, skyndimóttaka eða síðdegisvakt möguleiki.
Það er alltaf hægt að fá símasamband við hjúkrunarfræðing sem kemur erindi þínu í farveg eða leiðbeinir þér með önnur úrræði
Rannsóknastofan er opin frá kl. 8:00 til 10:30.
Bóka þarf tíma í móttöku í síma 513-6200 og alltaf þarf beiðni að liggja fyrir.
Þvagsýni þurfa að berast fyrir kl. 10:00.
Örugg gagnaskil
Hægt er að senda gögn með öruggum hætti til Heilsugæslunnar Sólvangi með Signet transfer. Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki. Hlekkur í örugg gagnaskil
Allir eru velkomnir á stöðina
Heilsugæslan Sólvangi þjónar fyrst og fremst íbúum Hafnarfjarðar, en allir eru velkomnir á stöðina. Skráning er í gegnum mínar síður á island.is.
Nánari upplýsingar um stöðina og þjónustu hennar eru í flipunum hér fyrir ofan: Læknisþjónusta, Opin móttaka, Heilsuverndin, Sálfræðiþjónusta og Um stöðina.
Með rafrænum skilríkjum er hægt að bóka tíma, endurnýja lyf og senda einfaldar fyrirspurnir á mínum síðum á Heilsuvera.is
Við tökum vel á móti þér
Hvað hentar þér best?
Það eru nokkrar leiðir að þjónustu læknanna okkar.
Hvaða leið hentar þér best?
Heimilislæknar á stöðinni eru með bókaða viðtalstíma frá kl. 8 - 16 og er hver tími 20 mínútur.
Þú bókar tíma í gegnum mínar síður á Heilsuveru eða með því að hringja á stöðina.
Læknar stöðvarinnar með síðdegisvakt, frá kl. 16:00 til 18:00 mánudaga - fimmtudaga og frá kl. 16:00 til 17:00 föstudaga.
Nauðsynlegt er að panta tíma samdægurs á síðdegisvaktina.
Í símaviðtali svara læknar stuttorðum fyrirspurnum, veita einfaldar ráðleggingar og/eða gefa upplýsingar um niðurstöður rannsókna.
Oft er þægilegra að senda stuttar fyrirspurnir í gegnum í mínar síður í Heilsuveru. Milli kl. 8 og 16 er líka alltaf hægt að fá símasamband við hjúkrunarfræðing í síma 513-6200.
Símaviðtöl við lækna eru pöntuð í síma 513-6200 fyrir kl 11:00 alla virka daga.
Læknar hringja í uppgefið símanúmer við fyrsta tækifæri.
Skjólstæðingar hringja beint inn.
- Gunnar Þór Jónsson - mánudaga, fimmtudaga og föstudaga kl. 9:30-9:50 í síma 513-6209
Hægt er að óska eftir lyfjaendurnýjun rafrænt eða í síma. Þar er hægt að endurnýja lyf sem tekin eru að staðaldri og ávísað hefur verið af læknum stöðvarinnar.
Venjulega eru þessar lyfjaendurnýjanir tilbúnar til afgreiðslu í lyfjaverslunum eftir kl. 16:00 sama dag.
Rafræn lyfjaendurnýjun
Einfaldast er að óska eftir lyfjaendurnýjun í Heilsuvera.is. Þú þarft að hafa rafræn skilríki.
Lyfjaendurnýjun í síma
Tekið er á móti beiðnum um lyfjaendurnýjun frá kl. 9:00-11:00 virka daga í síma 513-6202. Læknar ávísa síðan lyfjum eftir að hafa metið beiðnirnar.
Ef þörf er á veikindavottorði vegna skóla eða vinnu þarf að tilkynna veikindin á heilsugæslustöðina sem fyrst eftir að veikindi hefjast.
Í stuttum veikindum er tekið á móti beiðnum um veikindavottorð vegna skóla eða vinnu í gegnum mínar síður Heilsuveru eða í síma 513-6202 milli kl. 9:00 og 11:30
Hafa skal beint samband við lækni vegna lengri veikinda og annarra vottorða s.s. vinnuveitendavottorða.
Heimilislæknar gera tilvísanir til sérgreinalækna ef þarf vegna mála sem þeir hafa haft aðkomu að.
Þegar farið er til sérgreinalækna vinsamlegast biðjið þá um að senda heimilislækni læknabréf.
Læknar stöðvarinnar
Hjá okkur starfa sérfræðingar í heimilislækningum en einnig almennir læknar, sérnámslæknar og unglæknar.
- Anna Margrét Benediktsdóttir sérnámslæknir í heimilislækningum - í leyfi
- Ása María Guðmundsdóttir heimilislæknir
- Birna Guðbjartsdóttir barnalæknir
- Birna Guðmundsdóttir heimilislæknir
- Gunnar Þór Jónsson heimilislæknir
- Karólína Anna Snarska sérnámslæknir í heimilislækningum - í leyfi
- Kavindrren Sri Tharan sérnámslæknir í heimilislækningum
- Kristín Pálsdóttir heimilislæknir
- Magnús M. Pétursson sérnámslæknir í heimilislækningum
- Nue Milici heimilislæknir
- Ragna Sif Árnadóttir sérnámslæknir í heimilislækningum - í leyfi
- Sigurbjörn Kristinsson, sérnámslæknir í heimilislækningum
- Þórunn Jóhanna Júlíusdóttir heimilislæknir
Við erum á vaktinni allan daginn
Símaþjónusta hjúkrunarfræðinga
Hægt er að fá símaráðgjöf hjá hjúkrunarfræðingi frá kl. 8:00 til 16:00, alla virka daga í síma 513-6200.
Ef hjúkrunarfræðingurinn er upptekinn tekur móttökuritari niður skilaboð og haft er samband um leið og færi gefst.
Einnig bendum við á símaráðgjöf hjúkrunarfræðinga heilsugæslunnar allan sólarhringinn alla daga í síma 1700 og í netspjalli á heilsuvera.is frá kl. 8:00 til 22:00.
Skyndimóttaka fyrir smáslys og bráð veikindi
Það er líka hægt að koma í móttökuna milli kl. 8:00 og 14:00.
Öllum erindum sem koma á vaktina er sinnt, annaðhvort með því að veita þjónustuna á staðnum eða vísa í þann farveg sem við á í hverju tilviki.
Bókuð móttaka
Einnig er hægt að bóka tíma í móttöku hjúkrunarfræðinga.
Til dæmis fyrir ferðamannaheilsuvernd, sáraskiptingar og bólusetningar.
Lestu meira um bókaða móttöku heilsugæslustöðva
Hjúkrunarfræðingar á vaktinni
- Ásrún Þóra Björnsdóttir - í leyfi
- Björk Filipsdóttir
- Carolin Guðbjartsdóttir
- Emilía Lóa Halldórsdóttir
- Heiða S. Davíðsdóttir
- Helena Þrastardóttir
- Kristín G. Sæmundsdóttir
- Lilja G. Gunnarsdóttir
- Margrét Erla Finnbogadóttir
- Margrét Kjartansdóttir
- Þórunn Erla Ómarsdóttir
Heilsuvernd mæðra, ung- og smábarna, skólabarna, eldra fólks og allra hinna
Við fylgjumst með heilsu og þroska frá móðurkviði til unglingsára í mæðravernd, ung- og smábarnavernd og heilsuvernd skólabarna.
Á fullorðinsárum bjóðum við aðstoð við heilsueflingu með ráðgjöf, eftirliti og bólusetningum og heilsuvernd sem er ætluð eldri borgurum.
Heilsuvernd og heilsuefling
Heilsuverndin hefst á mæðravernd.
Mæðraverndarþjónustan er ókeypis og verðandi mæður geta annað hvort farið á heilsugæslustöð í sínu hverfi eða valið aðra stöð og skráð sig á hana.
Ljósmæður stöðvarinnar:
- Guðrún Svava Pálsdóttir
- Hildur A. Ármannsdóttir
- Ólöf Þóra Sveinbjörnsdóttir
Viðtöl og skoðanir eru í boði frá upphafi meðgöngu og fram að fæðingu. Fyrsta viðtal við ljósmóður er gjarnan í síma fljótlega eftir að þungun er staðfest. Fjöldi mæðraskoðana fer svo eftir aðstæðum, oftast 8-10 skipti. Milli skoðana er hægt að fá símaráðgjöf hjá ljósmóður.
Ung- og smábarnavernd tekur við af mæðravernd þegar fjölskyldan kemur heim og heimaþjónustu ljósmæðra lýkur.
Fyrstu vikurnar eftir fæðingu fara hjúkrunarfræðingar stöðvarinnar í vitjanir heim til fjölskyldunnar. Foreldrar eru því beðnir um að hafa samband við hjúkrunarfræðing fljótlega eftir að heim er komið. Fyrsta læknisskoðun á heilsugæslustöðinni er svo við 6 vikna aldur.
Síðan eru reglubundnar skoðanir hjá hjúkrunarfræðingi og lækni til skólaaldurs. Þá fylgjumst við með vexti og þroska barnanna og bólusetjum. Í skoðunum ráðleggjum við m.a. um brjóstagjöf, svefnvandamál, aga og uppeldi, matarræði og slysavarnir. Auk þess er alltaf hægt að fá samband við hjúkrunarfræðing ef spurningar vakna varðandi barnið.
Hjúkrunarfræðingar í ung- og smábarnavernd:
- Ásdís Árnadóttir
- Ásrún Þóra Björnsdóttir - í leyfi
- Hafdís Sigursteinsdóttir
- Helena Þrastardóttir
- Hildur A. Ármannsdóttir
- Jóhanna Helga Þorsteinsdóttir
- Ólöf Þóra Sveinbjörnsdóttir, ljósmóðir
- Þórunn Erla Ómarsdóttir
Svefnráðgjöf barna.
- Hafdís Sigursteinsdóttir
Heilsuvernd skólabarna tekur við þegar ung- og smábarnavernd lýkur.
Skólahjúkrunarfræðingar sjá um heilsuvernd skólabarna á þjónustusvæði stöðvarinnar.
- Áslandsskóli - Margrét Erla Finnbogadóttir
- Grunnskólinn Nú –Helena Þrastardóttir
- Hvaleyrarskóli -Emilía Lóa Halldórsdóttir
- Lækjarskóli - Margrét Kjartansdóttir
- Setbergsskóli - Carolin Guðbjartsdóttir
Hægt er að fá símasamband við skólahjúkrunarfræðingana í gegnum skiptiborð skólanna.
Heilsuverndin tekst á við heilsuáskoranir fullorðinsára í heilsueflandi móttöku.
Þar aðstoðum við þig við heilbrigðan lífsstíl með mælingum, ráðgjöf og stuðningi.
Oft kemur heilsueflandi móttaka til aðstoðar í framhaldi af viðtali við lækni en þú getur líka haft samband við hjúkrunarfræðing á stöðinni þinni ef þú þarft á þessari þjónustu að halda.
Hjúkrunarfræðingar í heilsueflandi móttöku:
- Björk Filipsdóttir
- Kristín G. Sæmundsdóttir
- Þórunn Erla Ómarsdóttir
Við höfum það að leiðarljósi að mæta fólki þar sem það er statt og gera því kleift að búa sem lengst á eigin heimili.
Hafðu samband við okkur og pantaðu viðtal hjá hjúkrunarfræðingi í Heilsuvernd eldra fólks.
- Björk Filipsdóttir hjúkrunarfræðingur
- Helga Þorsteinsdóttir hjúkrunarfræðingur
- Lilja G. Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur
Í viðtölum eru m.a. veittar upplýsingar um þá þjónustu sem eldri borgurum stendur til boða í nærsamfélaginu. Við greinum áhættuþætti varðandi heilsufar og ráðleggjum um fyrirbyggjandi aðgerðir og meðhöndlun sjúkdóma svo eldra fólk viðhaldi sem lengst andlegri, líkamlegri og félagslegri færni sinni.
Þeir sem eru 70 ára og eldri eru hvattir til að panta tíma hjá okkur í almennt eftirlit þar sem heimilislæknir fer yfir lyfjalista, mælir blóðþrýsting, blóðsykur og fleira ef þarf.
Leghálsskimun
Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar annast sýnatöku fyrir skimun vegna krabbameins í leghálsi.
Skimanir eru á stöðinni fyrir hádegi á mánudögum.
Ef það er komið að þér í skimun má panta tíma á mínum síðum heilsuveru eða með símtali.
Lestu meira um leghálskrabbameinsskimun
Hreyfiseðill
Hreyfiseðill er meðferðarúrræði við sjúkdómum, sem vitað er að regluleg hreyfing getur haft umtalsverð áhrif á.
Heimilislæknar, hjúkrunarfræðingar, ljósmæður og sálfræðingar vísa til sjúkraþjálfara. Ef þú heldur að hreyfiseðill henti þér, pantar þú fyrst tíma hjá þínum lækni.
- Sjúkraþjálfari stöðvarinnar er Margrét H. Indriðadóttir.
- Lestu meira um hreyfiseðla
Klínískur lyfjafræðingur
Verkefni lyfjafræðingsins er einkum að fara yfir lyfjalista hjá þeim sem eru á mörgum lyfjum. Markmiðið er að draga úr lyfjatengdum vandamálum.
Heimilislæknar eða hjúkrunarfræðingar vísa til klíníska lyfjafræðingsins. Ef þú heldur að þjónusta lyfjafræðings henti þér, pantar þú fyrst tíma hjá þínum lækni.
- Klíníski lyfjafræðingur stöðvarinnar er Eva María Pálsdóttir
Þjónusta sálfræðinga
Læknar stöðvarinnar vísa til sálfræðinga þannig að fyrsta skrefið er að panta tíma hjá heimilislækni.
Silja Rut Jónsdóttir og Þóra Helgadóttir sálfræðingar sinna meðferð og ráðgjöf fyrir börn og unglinga.
Bryndís Sveinsdóttir og Sigríður Bríet Smáradóttir sálfræðingur sinnir meðferð og ráðgjöf fyrir fullorðna.
HAM námskeið
Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins býður upp á hugræna atferlismeðferð (HAM) fyrir fulllorðna.
Nánari upplýsingar:
Samvinna fyrir þig
Heilsugæslan Sólvangi þjónar einkum íbúum Hafnarfjarðar en allir eru velkomnir a stöðina.
Við veitum samfellda þjónusta með hag einstaklingsins og fjölskyldunnar í huga. Fagleg afstaða er tekin til allra erinda og annað hvort leyst úr þeim eða ráðlagt um önnur úrræði.
Þjónustan byggir á sérþekkingu starfstétta og þverfaglegri samvinnu.
Heilsugæslustöðvum er stýrt af svæðisstjóra.
Fagstjórar lækninga og hjúkrunar leiða faglegt starf.
- Svæðisstjóri og fagstjóri hjúkrunar: Heiða S. Davíðsdóttir
- Fagstjóri lækninga: Þórunn Jóhanna Júlíusdóttir
- Skrifstofustjóri: María Lóa Friðjónsdóttir
Starfsmenn | Starfsheiti | Sími | Netfang |
---|---|---|---|
Anna Margrét Benediktsdóttir | Sérnámslæknir í heimilislækningum | Í leyfi | |
Ása María Guðmundsdóttir | Heimilislæknir | 513-6200 | |
Ásdís Árnadóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-6200 | |
Ásdís Brynja Ólafsdóttir | Læknanemi | 513-6200 | |
Ásgerður Halldórsdóttir | Þjónustustjóri | 513-6200 | |
Ásrún Þóra Björnsdóttir | Hjúkrunarfræðingur | Í leyfi | |
Birna Guðbjartsdóttir | Barnalæknir | 513-6200 | |
Birna Guðmundsdóttir | Heimilislæknir | 513-6200 | |
Birta Dögg Birgisdóttir | Móttökuritari | 513-6200 | |
Björk Filipsdóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-6200 | |
Bryndís Sveinsdóttir | Sálfræðingur | 513-6200 | |
Brynja Kristín Gunnarsdóttir | Heilsugæsluritari | 513-6200 | |
Carolin Guðbjartsdóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-6200 | |
Elena Rós Marinósdóttir | Móttökuritari | 513-6200 | |
Emilía Lóa Halldórsdóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-6200 | |
Gísli Baldursson | Heimilislæknir | 513-6200 | |
Guðrún Svava Pálsdóttir | Ljósmóðir | 513-6200 | |
Gunnar Þór Jónsson | Heimilislæknir | 513-6200 | |
Hafdís Sigursteinsdóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-6200 | |
Heiða Sigríður Davíðsdóttir | Svæðisstjóri og Fagstjóri hjúkrunar | 513-6200 | |
Helena Þrastardóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-6400 | |
Henný María Frímannsdóttir | Heilsugæsluritari | 513-6200 | |
Hildur A. Ármannsdóttir | Ljósmóðir | 513-6200 | |
Hrafnhildur Edda Magnúsdóttir | Læknir | 513-6200 | |
Hugrún Helga Ketel | Móttökuritari | 513-6200 | |
Jóhanna Helga Þorsteinsdóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-6200 | |
Karólína Anna Snarska | Sérnámslæknir í heimilislækningum | Í leyfi | |
Kavindrren Sri Tharan | Sérnámslæknir í heimilislækningum | 513-6200 | |
Kristín G. Sæmundsdóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-6200 | |
Kristín Pálsdóttir | Heimilislæknir | 513-6200 | |
Lilja G. Gunnarsdóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-6200 | |
Liselotte Emilie Bech | Heilbrigðisgagnafræðingur | 513-6200 | |
Magnea G. Frandsen | Læknir | 513-6200 | |
Magnús M. Pétursson | Sérnámslæknir í heimilislækningum | 513-6200 | |
Margrét Björg Hilmisdóttir | Sjúkraliði | 513-6200 | |
Margrét Erla Finnbogadóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-6200 | |
Margrét H. Indriðadóttir | Sjúkraþjálfari | 513-6200 | |
Margrét Kjartansdóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-6200 | |
María Lóa Friðjónsdóttir | Skrifstofustjóri | 513-6200 | |
Nue Milici | Heimilislæknir | 513-6200 | |
Ólöf Þóra Sveinbjörnsdóttir | Ljósmóðir | 513-6200 | |
Ragna Sif Árnadóttir | Sérnámslæknir í heimilislækningum | Í leyfi | |
Ragnhildur I Ólafsdóttir | Móttökuritari | 513-6200 | |
Rebekka Hallgrímsdóttir | Móttökuritari | 513-6200 | |
Sandra Dögg Ólafsdóttir | Móttökuritari | 513-6200 | |
Sigríður Bríet Smáradóttir | Sálfræðingur | 513-6200 | |
Sigurbjörn Kristinsson | Sérnámslæknir í heimilislækningum | 513-6200 | |
Silja Rut Jónsdóttir | Sálfræðingur | 513-6200 | |
Þóra Helgadóttir | Sálfræðingur | 513-6200 | |
Þórunn Erla Ómarsdóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-6200 | |
Þórunn Jóhanna Júlíusdóttir | Fagstjóri lækninga | 513-6200 | |
Þuríður Jónsdóttir | Heilsugæsluritari | 513-6200 | |
Ægir Amin Hakan | Læknir | 513-6200 |