Sóttvarnalæknir hefur farið fram á að öllum óbólusettum aðilum, eldri en 6 mánaða og fæddir 1970 eða síðar, verði boðin bólusetning á laugardag og sunnudag.
Fyrirkomulagið verður eins á öllum okkar heilsugæslustöðvum.
- Best er að allir fari á sína heilsugæslustöð.
Laugardagur frá kl. 12:00 til 15:00
- Börn 6 mánaða til 18 mánaða
Sunnudagur frá kl. 12:00 til 15:00
- Börn 6 mánaða til 18 mánaða og foreldrar þeirra.
- Óbólusettir fullorðnir einstaklingar fæddir 1970 eða síðar
Algengar spurningar
Hvernig veit ég hvort ég hafi fengið bólusetningu?
- Þeir sem eru fæddir eftir 1975 eru líklegast bólusettir nema foreldrar þeirra hafi hafnað bólusetningu.
- Allir fengu bólusetningarskírteini sem oft eru til í fórum foreldra þeirra. Ef bólusetning er skráð í kringum 12 ára aldur er það líklegast mislingabóluseting.
- Hægt er að sjá bólusetningar sem gefnar voru eftir að farið var að skrá bólusetningar í rafrænan bólusetningagrunn inn á mínum síðum Heilsuvera.is eða á island.is
- Þeir sem ekki eru vissir með þetta geta fengið bólusetningu.
Af hverju fá 50 ára og eldri ekki bólusetningu núna?
- Þeir sem eru fæddir fyrir 1970 hafa líklegast fengið mislinga og eru því ekki forgangi. Hægt verður að bjóða þeim bólusetningu síðar.
Hvernig veit ég á hvað stöð ég er skráður?
- Þú sérð það á mínum síðum Heilsuveru eða í Réttindagátt sjúkratrygginga