Hægt er að fara í COVID-19 sýnatöku (PCR-próf) til að útiloka sýkingu fyrir ferðalög,
Heilsugæslustöðvar sjá um að afgreiða öll erindi um sýnatökur þeirra sem eru ekki með einkenni sem benda til COVID-19.
Einstaklingur þarf að hafa samband við heilsugæslustöð og óska eftir beiðni um einkennalausa sýnatöku.
- Taka þarf fram hvenær ferð er fyrirhuguð, þannig að hægt sé að skipuleggja tímasetningu sýnatöku.
- Taka þarf fram hvernig vottorð þarf.
- Hægt er að fá vottorð á íslensku eða ensku send rafrænt í heilsuveru eða sækja útprentuð vottorð á heilsugæslustöð.
- Gengið er frá greiðslum þegar sýnataka er pöntuð.
Sýnatakan sjálf er eins og aðrar sýnatökur vegna COVID-19.
- Sýnatökur fara fram á Suðurlandsbraut 34, jarðhæð.
- Væntanlegir ferðamenn fá strikamerki í farsíma og jafnframt tíma fyrir sýnatöku.
- Til að geta sinnt sóttvarnareglum á sýnatökustað er mælst til þess að mætt sé á réttum tíma.
- Sýnatökur ganga hratt fyrir sig og niðurstöður berast innan 24 klukkustunda.
- Allir sem fara í sýnatöku fá sjálfvirkt svar á Mínum síðum heilsuveru á íslensku.
Einkennalausir einstaklingar sem þurfa ekki skimun vegna reglna sóttvarnalæknis greiða samkvæmt gjaldskrá og reglugerð.
Þau sem koma í aukaskimun greiða fyrir komu, skimun og vottorð. Þetta eru einstaklingar sem eru ekki með einkenni sem geta bent til COVID-19 og þurfa skimun af öðrum ástæðum en vegna reglna um sóttvarnir á Íslandi.
Sjúkratryggðir
Fullorðnir 18 ára til 67 ára greiða komugjald. Börn greiða ekki ekki komugjald en greiða fyrir skimun og vottorð.
- Koma á heilsugæslustöð á dagvinnutíma 500 kr
- COVID-19 skimunargjald 7.000 kr.
- Vottorð um COVID-19 niðurstöður 5.895 kr.
Ósjúkratryggðir
- Koma á heilsugæslustöð á dagvinnutíma, 10.527 kr.
- COVID-19 skimunargjald 7.000 kr.
- Vottorð um COVID-19 niðurstöður 6.948 kr.
Gjaldtakan er samkvæmt þessum reglugerðum
- 640/2020 : Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 817/2012, um sóttvarnaráðstafanir, og (2.) breytingu á reglugerð nr. 580/2020, um sóttkví, einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19
- 581/2020 : Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 817/2012, um sóttvarnaráðstafanir
Sjá einnig gjaldskrá hér á vefnum