Ekki bíða eftir boði, þú getur mætt í Laugardalshöll alla virka daga frá kl. 10:00 til 15:00.
Nú mega 16 ára og eldri koma í örvunarbólusetningu 4. mánuðum eftir seinni skammt grunnbólusetningar.
Ekki verða send út boð í bólusetningu, þú mætir Laugardalshöll og gefur upp kennitölu.
Bóluefnin Pfizer og Moderna eru í boði alla daga.
Börn, 12 til 15 ára gömul, geta ekki fengið örvunarbólusetningu.
Nánar um örvunarbólusetningar
- Fólk sem fékk Janssen og svo örvunarskammt getur komið í þriðju bólusetningu fjórum mánuðum eftir örvunarskammtinn.
- Mælt er með Pfizer fyrir karlmenn 39 ára og yngri.
- Börn 16 til 18 ára mega bara fá Pfizer.
- Öll sem eru með íslenska kennitölu geta komið í bólusetningu. Þau sem eru ekki með íslenska kennitölu þurfa fyrst að skrá sig á síðunni bolusetning.covid.is og bíða eftir staðfestingu áður en þau mæta.
- Þau sem hafa fengið COVID-19 þurfa að kynna sér: Samantekt á reglum og ráðleggingum fyrir einstaklinga með sögu um COVID-19
Nánar um grunnbólusetningar
- Bólusetning skólabarna í Laugardalshöll
- Bólusetning fimm ára barna í Laugardalshöll
- COVID-19 bólusetningar 2022 - vika 1 og áfram