Geðrækt og sjálfsvígsforvarnir í kastljósinu í Gulum september

Mynd af frétt Geðrækt og sjálfsvígsforvarnir í kastljósinu í Gulum september
04.09.2024

Forvarnarátakinu Gulur september var hrint úr vör um síðastliðna helgi með athöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur. Með átakinu er ætlunin að auka meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, setti átakið formlega á sunnudag.

Átakið mun standa allan september en áherslan verður á gula daginn þann 10. september. Þá eru allir sem geta hvattir til að klæðast gulu, skreyta með gulu og skapa hlýja og góða stemningu. Til að vekja athygli á átakinu og sjálfsvígsforvörnum er fólk hvatt til að deila myndum af gulri stemningu á samfélagsmiðlum með myllumerkinu #gulurseptember.

Gulur september er samvinnuverkefni fjölda stofnana og félagasamtaka sem vinna að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum og tekur Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins að sjálfsögðu þátt í átakinu.

Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá í september, til dæmis geðræktargöngur, fræðsluerindi og fleira. Dagskrána má finna á vef embættis landlæknis.

Það er hjálp að fá

  • Ef þér finnst lífið stundum ekki þess virði að lifa því, leitaðu þá hjálpar. Ef þú hefur áhyggjur af ástvini, vini eða vinnufélaga ræddu það við viðkomandi. Það hjálpar að deila líðan sinni með öðrum. 
  • Símaráðgjöf Heilsuveru í síma 1700 er opið allan sólarhringinn og netspjallið á vefnum Heilsuvera er opið alla daga frá 8 til 22
  • Hjálparsími Rauða krossins 1717 og netspjallið á 1717.is er opið allan sólarhringinn
  • Píetasíminn 552 2218 er opin allan sólarhringinn
  • Upplýsingar um sjálfsvíg má finna á fræðsluvef Heilsuveru