Veikir og slasaðir bangsar læknaðir

Mynd af frétt Veikir og slasaðir bangsar læknaðir
10.09.2024

Hinn vinsæli Bangsaspítali verður opinn fyrir slasaða eða veika bangsa laugardaginn 14. september. Bangsar og eigendur þeirra eru velkomnir á fjórar heilsugæslustöðvar þar sem læknanemar taka á móti þeim.

Hvert barn kemur með sinn eigin bangsa á Bangsaspítalann. Gott er fyrir foreldra eða forráðamenn sem koma með að ræða við börnin fyrir heimsóknina um hvað amar að bangsanum, hvort hann sé til dæmis með magapest, hálsbólgu eða brotinn handlegg. Þegar á heilsugæsluna er komið fær barnið að innrita bangsann og að því loknu kemur bangsalæknir og vísar barninu inn á læknastofu þar sem læknirinn skoðar bangsann og veitir honum þá aðhlynningu sem hann þarf á að halda.

Börn ásamt forráðamönnum þeirra eru velkomin milli klukkan 10 og 16 laugardaginn 14. september. Eftirtaldar stöðvar taka þátt í Bangsaspítalanum í ár:

  • Heilsugæslan Efstaleiti
  • Heilsugæslan Seltjarnarnesi
  • Heilsugæslan Sólvangi
  • Heilsugæslan Salahverfi

Tilgangurinn með Bangsaspítalanum er bæði að fyrirbyggja hræðslu hjá börnum við lækna og heilbrigðisstarfsfólk og að gefa læknanemum á yngri árum tækifæri til að æfa samskipti við börn og aðstandendur.

Það er Lýðheilsufélag læknanema sem stendur fyrir Bangsaspítalanum. Sjá nánar í Facebook-viðburði.