Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að lækka gjald fyrir komu í brjóstaskimun úr 6.000 krónum í 500 krónur. Það er sama gjald og innheimt er fyrir leghálsskimanir.
Skimun er mikilvæg forsenda þess að greina brjóstakrabbamein snemma og hefur mikinn ávinning fyrir einstaklinga og samfélag. Snemmgreining þýðir einfaldari meðferð, bættar lífslíkur og dregur úr kostnaði heilbrigðiskerfisins.
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra kynnti ákvörðun sína á fréttamannafundi á Brjóstamiðstöð Landspítala í gær. Hann segir lækkun gjaldsins lið í því markmiði stjórnvalda að efla forvarnir, jafna aðgengi að þjónustu og bæta þannig lýðheilsu: „Með því að lækka komugjaldið, samfara góðri, markvissri fræðslu og með stuðningi og hvatningu atvinnulífsins fyrir þátttöku kvenna í skimunum, stuðlum við að því að konur sjái hvað þetta er mikilvægt og geti forgangsraðað heilsu sinni með því að mæta í skimun.“
Svanheiður Lóa Rafnsdóttir, yfirlæknir Brjóstamiðstöðvar Landspítala, segir ákvörðun ráðherra vera tímamót fyrir kvenheilsu. Kostnaðurinn hafi verið hindrun fyrir margar konur. Hún telji víst að lækkun gjaldsins muni auka þátttökuna sem er brýnt til að ná góðum árangri, draga úr dánartíðni brjóstakrabbameins og bæta lífsgæði þeirra sem greinast.
Viðmið fyrir góðum árangri af brjóstaskimunum er 75 prósenta þátttaka kvenna á skimunaraldri. Um 75.000 konur eru í þessum hópi hér á landi og var þátttakan um 56 prósent árið 2023.
Kostnaður skilar sér margfalt til baka
Brjóstakrabbamein er algengasta krabbameinið meðal kvenna hér á landi. Árlega greinast um 266 konur með brjóstakrabbamein og um 50 konur látast af völdum þess. Ágúst Ingi Ágústsson, yfirlæknir Samhæfingarstöðvar krabbameinsskimana hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir ávinning skimana ótvíræðan og því meiri sem þátttakan er betri. „Ávinningurinn er allra; einstaklinga, samfélagsins og heilbrigðiskerfisins. Fjármunir sem varið er í skimanir skila sér margfalt til baka.“
Markmiðið með skimunum af þessu tagi er að greina mein á frumstigi eða forstigi áður en einkenna verður vart. Ágúst Ingi leggur áherslu á að finni konur fyrir einhverjum einkennum sem gætu bent til krabbameins eigi þær ekki að bíða eftir reglubundinni skimun, heldur leita tafarlaust til læknis. Sama máli gegni ef konur finna fyrir einkennum þótt þær hafi nýlega farið í skimun.
Nánari upplýsingar um krabbameinsskimanir má finna á skimanir.is.