Geðheilsumiðstöð barna efld með áherslu á styttri bið eftir þjónustu

Mynd af frétt Geðheilsumiðstöð barna efld með áherslu á styttri bið eftir þjónustu
10.02.2025
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra tilkynnti nýverið um aukið fjármagn til Geðheilsumiðstöðvar barna hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Þetta gerir miðstöðinni kleift að fjölga stöðugildum í greiningarteymum miðstöðvarinnar um tvö í því skyni að stytta bið barna eftir þjónustu. 

Geðheilsumiðstöð barna veitir annars stigs geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og fjölskyldur þeirra um allt land. „Þessi ákvörðun endurspeglar áherslu ríkisstjórnarinnar á að stytta bið barna eftir mikilvægri þjónustu og setja geðheilbrigðismál í forgang. Ég er sannfærð um að þetta er góð ákvörðun, því þörfin er brýn og með þessu fjárfestum við jafnframt í framtíðinni,“ segir Alma í frétt á vef Heilbrigðisráðuneytisins.

Miðstöðin sinnir greiningu, ráðgjöf og meðferð vegna geð- og þroskavanda barna og unglinga. Þetta er jafnframt sú stofnun sem oftast framkvæmir mat vegna gruns um ADHD og/eða vegna gruns um röskun á einhverfurófi. Þjónusta miðstöðvarinnar fer fram í fjórum teymum. Tvö þeirra sinna ráðgjöf og meðferð og tvö greiningum. Í meðferðarteymunum tekst að mestu að halda viðmiðum embættis landlæknis um biðtíma. Í greiningarteymunum er biðtíminn lengri, eða að meðaltali 24 til 34 mánuðir. Lengst er biðin eftir mati á einkennum einhverfurófs enda liggur mikil vinna og tímafrek að baki þeim greiningum.

Mikilvægt að stytta biðina


Unnið hefur verið að ýmsum úrbótum hjá GMB til að stytta biðtíma eins og kostur er, meðal annars með breytingum á verklagi. Þrátt fyrir að breytingarnar hafi skilað árangri hefur biðtíminn ekki styst þar sem eftirspurn eftir þjónustu og þörf fyrir greiningar eykst stöðugt. Það er því ljóst að fjölga þarf stöðugildum, en þau hafa verið óbreytt frá árinu 2022.

„Stjórnendur Geðheilsumiðstöðvar barna eru þakklátir fyrir stuðning heilbrigðisráðherra með þessari aukningu í stöðugildafjölda og að sýna málaflokknum skilning. Það er mikilvægt að stytta biðtíma barna og fjölskyldna þeirra og stuðla þannig að auknum lífsgæðum þeirra,“ segir Linda Kristmundsdóttir, forstöðumaður Geðheilsumiðstöðvar barna.