Greiðsla fyrir þjónustu HH

Greiðslur fyrir þjónustu heilsugæslunnar eru ákveðnar af Heilbrigðisráðuneytinu í reglugerðum.

Gjaldskrá er mismunandi eftir því hvort um sjúkratryggða eða ósjúkratryggða er að ræða.

Í flipunum hér fyrir neðan, er almenn gjaldskrá þjónustu, verð vottorða, gjaldskrá bóluefna sem er uppfærð mánaðarlega og gjaldskrá fyrir ósjúkratyggða.

Gjaldskrá þjónustu

Heilbrigðisráðuneytið hefur með "Reglugerð um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu", sem gekk í gildi 1. janúar 2024, ákveðið eftirfarandi greiðslur sjúkratryggðra fyrir þjónustu heilsugæslunnar.

Sjúkratryggðir kunna að þurfa að greiða önnur gjöld fyrir heilbrigðisþjónustu, t.d. þegar heilsugæslulæknar vísa þeim til sérfræðinga eða í sérstakar læknisfræðilegar rannsóknir. Þau gjöld koma fram í reglugerðinni

Komur og vitjanir

Koma á heilsugæslustöð til lækna, hjúkrunarfræðinga, sálfræðinga og sjúkraþjálfara á dagvinnutíma, kl. 8:00 - 16:00,

  • almennt gjald 500 kr.

Koma á heilsugæslustöð til lækna, hjúkrunarfræðinga, sálfræðinga og sjúkraþjálfara utan dagvinnutíma,

  • almennt gjald 3.100 kr.

Vitjun læknis á dagvinnutíma, kl. 8:00 - 16:00,

  • almennt gjald 3.400 kr.

Vitjun læknis utan dagvinnutíma, 

  • almennt gjald 4.500 kr. 

Börn undir 18 ára aldri, börn með umönnunarkort, aldraðir og öryrkjar og þeir sem koma vegna mæðraverndar greiða ekki.

Rannsóknir og greiningar

Rannsókn með beiðni til rannsóknarstofu,

  • almennt gjald 3.503 kr.  
  • aldraðir og öryrkjar 2.335 kr. 

Krabbameinsleit,

  • almennt gjald 500 kr. 
  • aldraðir og öryrkjar 0 kr.

Bólusetningar

Auk komugjalda greiða sjúkratryggðir fyrir bólusetningar á heilsugæslustöð (hvern skammt) samkvæmt gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega. Greiðslur fyrir bóluefni fara ekki inn í afsláttarstofn

Sjá gjaldskrá bólusetninga í öðrum flipa.

Bóluefni við árstíðabundinni inflúensu er að kostnaðarlausu þeim sem eru í tilgreindum áhættuhópum.

Ekki er greitt fyrir reglubundnar bólusetningar í heilsuvernd barna.

Önnur þjónusta

Auk komugjalda skulu sjúkratryggðir 18 ára og eldri, aldraðir og öryrkjar greiða fyrir aðra þjónustu sem hér segir:

  • Þungunarpróf, 870 kr.
  • Streptókokkarannsóknir, 272 kr.
  • Lyfjaleit í þvagi, 870 kr. 
  • CRP (C-reaktíft prótein), 1.141 kr.
  • HbA1c (glýkósýlerað hemóglóbín), 1.631 kr.
  • Berklapróf (Mantoux), kostnaðarverð/innkaupsverð. sjá gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega
  • Lykkja (T), 3.805 kr.
  • Hormónalykkja, kostnaðarverð/innkaupsverð. sjá gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega
  • Ofnæmispróf (prick húðpróf), kostnaðarverð/innkaupsverð. sjá gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega
  • Pokar vegna blóðaftöppunar, 1.413 kr.
  • Afnot af rannsóknatæki fyrir kæfisvefn, 6.779 kr.
  • Leigugjald fyrir afnot af blóðþrýstingsmæli í 24 stundir, 6.779 kr.
  • ADHD greining fullorðinna / Þjónustugjald hjá ADHD teymi, 27.175 kr.

Námskeið

Námskeið vegna meðgönguverndar, fyrir foreldra og heilsuvernd barna er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Heilsueflandi námskeið varðandi lífstíl og áhættuþætti heilsu, tengd sjúkdómum s.s. sykur­sýki, offitu og geðheilbrigði og tengd ákveðnum æviskeiðum, s.s. breytingaskeiði og öldrun. Skal greitt fyrir námskeið sem er eitt skipti samtals 5.000 kr, tvö til þrjú skipti samtals 10.000 kr., fjögur til sex skipti samtals 16.000 kr. og sjö til tíu skipti samtals 22.000 kr. 

Læknisvottorð

Sjá gjaldskrá vottorða í öðrum flipa.

Greiðslur sjúkratryggðra fyrir heilbrigðisþjónustu og afsláttarstofn

Ef heildarkostnaður vegna heilbrigðisþjónustu í almanaksmánuði fer yfir ákveðna  fjár­hæð greiða Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) eða viðkomandi heilbrigðisstofnun, það sem umfram er.

  • Hámarksgreiðsla sjúkratryggðs almennt er 34.950 kr.
  • Hámarksgreiðsla aldraðra, öryrkja, barna og barna með umönnunarmat  er 23.301 kr.
  • Hámarksgreiðsla barna í sömu fjölskyldu (með sama fjölskyldunúmer) er 23.301 kr.

Greiðslur fyrir heilbrigðisþjónustu mynda afsláttarstofn. Afsláttarstofn verður aldrei hærri en hámarksgreiðsla í almanaksmánuði.  Afsláttarstofn flyst á milli mánaða að frádregnum 1/6 hluta af hámarksgreiðslu um hver mán­aða­mót, óháð greiðslum sjúkratryggðs. Við ákvörðun greiðsluþátttöku skal leggja saman afsláttarstofn og greiðslur. Séu samanlagðar greiðslur lægri en hámarksgreiðsla greiðir sjúkratryggður kostnaðinn allt að hámarksgreiðslu.

Veitendur heilbrigðisþjónustu skila upplýsingum um þjónustugjöld til SÍ jafnóðum.

Nánari upplýsingar um greiðsluþátttökukerfið eru á vef Sjúkratrygginga Íslands

Orðskýringar

  • Aldraður: Sjúkratryggður einstaklingur 67 ára og eldri og sjómaður 60 ára og eldri sem stundað hefur sjómennsku í 25 ár eða lengur
  • Börn: Sjúkratryggðir einstaklingar yngri en 18 ára.
  • Börn með umönnunarmat: Sjúkratryggð börn og ungmenni á aldrinum 18 og 19 ára sem eru með umönnunarmat frá Tryggingastofnun ríkisins
  • Sjúkratryggðir almennt: Sjúkratryggðir einstaklingar aðrir en aldraðir, öryrkjar, börn og börn með umönnunarmat. 
  • Öryrki: Sjúkratryggður einstaklingur sem hefur verið metinn til a.m.k. 75% örorku hjá Tryggingastofnun ríkisins.

Læknisvottorð

Gjöld fyrir læknisvottorð í heilsugæslu. 

  • Vottorð vegna fjárhagslegrar aðstoðar við fötluð og sjúk börn, 0 kr.
  • Vottorð vegna endurhæfingarlífeyris, 0 kr.
  • Örorkuvottorð vegna lífeyristrygginga, 0 kr. (Athugið að gjald er fyrir vottorð vegna umsókna um örorkubætur til lífeyrissjóða, sjá neðar)
  • Örorkuvottorð vegna slysatrygginga, 0 kr.
  • Vottorð um fjarvistir nemenda úr skólum, 2.346 kr.  
  • Framhaldsvottorð vegna slysatrygginga, 842 kr.
  • Áverkavottorð vegna slysatrygginga, 1.816 kr.
  • Vottorð vegna beiðni um þjálfun, 1.816 kr.
  • Vottorð vegna öflunar hjálpartækja, 1.816 kr.
  • Vottorð vegna lengingar fæðingarorlofs, 1.816 kr.
  • Vottorð vegna hreyfihömlunar (uppbót v. reksturs bifreiðar), 1.816 kr.
  • Vottorð vegna heimahjúkrunar, 1.816 kr.
  • Vottorð vegna vistunar sjúklings erlendis, 1.816 kr.
  • Vottorð vegna umsóknar um lyfjaskírteini, 1.816 kr.
  • Vottorð vegna sjúkranudds, 1.816 kr.
  • Vottorð vegna sjúkradagpeninga, 1.816 kr.
  • Vottorð vegna ferðakostnaðar innanlands, 1.816 kr.
  • Vottorð vegna umsóknar um styrk og uppbót til kaupa á bifreið fyrir fatlaða, 1.816 kr.
  • Vottorð vegna bóta úr slysa- og sjúkrasjóðum stéttarfélaga, án greinargerðar, 1.816 kr.
  • Vottorð um fjarvistir til atvinnurekenda, 2.346 kr.
  • Vottorð um heilsufar nemenda til skóla, leikskóla og sumarbúða, 2.346 kr.
  • Vottorð um ónæmisaðgerðir og alþjóðaónæmisskírteini, 2.346 kr.
  • Vottorð um undanþágu til bílbeltanotkunar, 2.346 kr.
  • Vottorð vegna endurgreiðslu ferðakostnaðar, s.s. ferðarofs 2.346 kr.
  • Vottorð til skattayfirvalda, 2.346 kr.
  • Vottorð vegna veitingar ökuleyfis, 2.346 kr. 
  • Vottorð um heilsufar einstaklinga til félagsþjónustunnar og annarra stofnunar, 2.346 kr.
  • Vottorð um heilsufar kjörforeldra, stuðningsforeldra og fósturforeldra, 2.346 kr.
  • Vottorð vegna byssuleyfis, 7.264 kr.  
  • Vottorð vegna skóla og sumarbúða erlendis, 7.264 kr.
  • Vottorð um heilsufar eða vinnufærni vegna umhverfis eða atvinnu, þ.m.t. vegna atvinnuréttinda (meiraprófs), 7.264 kr.  
  • Vottorð um niðurstöður úr Covid sýnatökum, 7.609 kr.
    Vottorð um starfshæfni og fyrir staðfestingu á heilsufari til Virk, 2.174 kr.

Fyrir eftirfarandi vottorð skal miða við hversu langan tíma það tekur lækni að gera vottorðið og skal greiða 6.098 kr. fyrir hverjar byrjaðar 20 mínútur.

  • Vottorð vegna þungunarrofs og ófrjósemisaðgerða,
  • Vottorð vegna umsókna um örorkubætur til lífeyrissjóða

Fyrir eftirfarandi vottorð skal að lágmarki greitt fyrir klukkutímavinnu læknis, 16.540 kr. og síðan 5.513 kr. til viðbótar fyrir hverjar byrjaðar 20 mínútur.

  • Vottorð til lögmanna og tryggingafélaga vegna sjúkdóma eða slysa, til tryggingafélaga vegna líf- og sjúkdómatrygginga eða umsókna um örorkubætur eða ættleiðingu, til lögreglu, sýslu­manna, vegna dvalar- og/eða atvinnuleyfa hér á landi og dvalar eða starfa erlendis,
  • Ítarlegt vottorð um heilsufar einstaklings vegna beiðni þriðja aðila (skóla, atvinnu­rekanda, sjómannavottorð)

Greiðslur vegna vottorða fara ekki í afsláttarstofn.

Bólusetningar og fleira

Gjaldskrá - nóvember 2024

Þessi hluti gjaldskrárinnar er uppfærður mánaðarlega, innan þriggja virkra daga frá mánaðamótum.

  • Blóðmauraheilabólga TBE
    • Fyrir börn (TicoVac Junior), 4.100 kr.
    • Fyrir fullorðna (TicoVac), 4.400 kr.
  • Heilahimnubólga (meningókokkar)
    • Fjölvirkt fjölsykrubóluefni samtengt (Nimenrix), 7.300 kr.
  • Haemophilus influenzae B (Act-Hib), 5.200 kr.
  • Hlaupabóla
    • Varilrix, 7.000 kr.
    • Varivax, 8.300 kr
  • Ristill (Shingrix), 53.200 kr.
  • Hundaæði (Verorab 1stk. pakkning/10 stk. pakkning), 14.000 kr.
  • Inflúensa (VaxigripTetra), 1.800 kr.        
  • Japönsk heilabólga (JEV), 24.500 kr.   
  • Kólera (bóluefni til inntöku, 2 x 1 skmt.), 26.000 kr. (1 skmt. 13.000 kr.)  
  • Lifrarbólga A (Havrix)
    • Fyrir börn (720 ein. - 0,5 ml), 4.500 kr.  
    • Fyrir fullorðna (1440 ein. - 1 ml), 4.900 kr.
  • Lifrarbólga B (Engerix-B)
    • Fyrir börn (0,5 ml), 2.800 kr.
    • Fyrir fullorðna (1 ml), 3.600 kr.
  • Lifrarbólga A og B
    • Fyrir börn (Twinrix Paediatric), 5.700 kr.
    • Fyrir fullorðna (Twinrix Adult), 6.200 kr.
  • Lungnabólga
    • Fjölsykrubóluefni (Pneumovax), 5.000 kr.
    • Próteintengt bóluefni (Prevenar 13), 9.700 kr.
    • Próteintengd bóluefni (Apexxnar, Prevenar 20), 13.100 kr.
  • Mýgulusótt
    • Stamaril, 5.000
  • Mænusótt fyrir fullorðna, 3.400 kr.
  • Papillómaveirubóluefni (HPV)
    • Papillómaveirur manna (gerð 6, 11, 16, 18, 31, 33, 45, 52, 58 – Gardasil 9), 24.000 kr.
  • Rótarveira (Fyrir börn, Rotarix), 27.200
  • Taugaveiki (Typhim-Vi), 3.700 kr.

Samsett bóluefni

  • Barnaveiki, kíghósti, mænusótt og stífkrampi (Repevax) 3.200 kr.
  • Kíghóstabóluefni með barnaveiki- og stífkrampatoxóíðum (18 ára og eldri, Boostrix), 3.900  kr.
  • Mislingar ásamt hettusótt og rauðum hundum, 2.800 kr.  

Barnabólusetningar / Endurbólusetningar

Auk komugjalda skulu ósjúkratryggðir greiða fyrir barnabólusetningar á heilsugæslustöð (hvern skammt). Einnig greiða sjúkratryggðir fyrir endurbólusetningu frá grunni þegar barnabólusetningar eru ónýtar.

  • Barnaveiki, haemophilus influenzae B, kíghósti, mænusótt, stífkrampi (Pentavac), 6.400 kr.  
  • Lungnabólgubaktería (pneumókokkar),
    • Synflorix, 6.800 kr.  
    • Vaxneuvance, 11.200 kr.
  • Meningokokkar (MenQuadfi), 7.700 kr.
  • Mislingar ásamt hettusótt og rauðum hundum (MMRVaxPro), 2.800 kr.  
  • Kíghóstabóluefni með barnaveiki- og stífkrampatoxóíðum (Boostrix), 3.900 kr.  
  • Barnaveiki, kíghósti, mænusótt, stífkrampi (endurbólusetning) (Repevax) 3.200 kr.
  • Hlaupabóla (Varilrix), 7.000 kr. 

Ung - og smábarnavernd

Fullt gjald fyrir barnaskoðun og bólusetningar á heilsugæslustöð fyrir ósjúkratryggða.

  • 6 vikna skoðun 12.973 kr.
  • 9 vikna skoðun 12.973 kr. eða 9 vikna vitjun, 14.010 kr.
  • 3ja mánaða skoðun 12.973 kr. + Pentavac 6.400 kr. + Vaxneuvance 11.200 kr.= 30.573 kr.
  • 5 mánaða skoðun 12.973 kr. + Pentavac 6.400 kr. + Vaxneuvance, 11.200 kr. =  30.573 kr.
  • 6 mánaða skoðun 12.973 kr.
  • 8 mánaða skoðun 12.973 kr.
  • 10 mánaða skoðun 12.973 kr.
  • 12 mánaða skoðun 12.973 kr. + Pentavac 6.400 kr. + Vaxneuvance, 11.200 kr + MenQuadfi, 7.700 kr. = 38.273 kr.
  • 18 mánaða skoðun 12.973 kr. + MMRVaxPro 2.900 kr. + Varilrix 7.000 = 22.873 kr.
  • 2½ árs skoðun 12.973 kr. + Varilrix 7.000 = 19.973
  • 4 ára skoðun 12.973 kr. + Boostrix 3.900 kr. = 16.873 kr.
  • Vitjun í heimahús 14.010 kr.

Önnur þjónusta

Auk komugjalda skulu sjúkratryggðir 18 ára og eldri og ósjúkratryggðir greiða fyrir aðra þjónustu sem hér segir:

  • Berklapróf - Mantoux (Tuberkulin), 4.600 kr.   
  • Hormónalykkja (Mirena), 19.500 kr.  

Ofnæmisvakar (prick húðpróf)

  • Hundahár – Soluprick SQ ALK553 15.700 kr.
  • Kattahár – Soluprick SQ ALK555 15.500 kr.
  • Vallarfoxgras – Soluprick SQ ALK225 12.300 kr.
  • Birkifrjó – Soluprick SQ ALK108 12.300 kr.
  • Rykmaur – Soluprick SQ ALK504 15.700 kr.
  • Negativ Kontrol – Soluprick. 3.100 kr.
  • Positiv Kontrol – Soluprick. 3.100 kr
     

Ósjúkratryggðir

Greiðslur einstaklinga þegar milliríkjasamningar um almannatryggingar gilda ekki. Heilbrigðisráðuneytið hefur með "Reglugerð um heilbrigðisþjónustu við þá sem ekki eru sjúkratryggðir á Íslandi og greiðslur fyrir heilbrigðisþjónustuna" sem gekk í gildi 1. janúar 2024, ákveðið eftirfarandi greiðslur þeirra fyrir þjónustu heilsugæslunnar.

Einstaklingur tryggður í EES-landi (þetta á einnig við um íslenska ríkisborgara með lögheimili í öðru EES-landi) sem þarf á skyndilegri og nauðsynlegri læknishjálp að halda þegar hann dvelst hér á landi á að greiða eins og þeir sem eru sjúkratryggðir á Íslandi. Forsenda þess er þó að hlutaðeigandi leggi fram:

  • Evrópska sjúkratryggingakortið 
  • Gilt bráðabirgðavottorð E-111 
  • Gilt vottorð frá tryggingarstofnun í öðru EES landi E-104 
  • Gilt vottorð E-106 útsendir starfsmenn 
  • Ljósrit af vegabréfi eða öðrum persónuskilríkjum sem staðfesta ríkisfang (mynd)
  • Athugið vel gildistíma allra gagna. Geti hlutaðeigandi ekki framvísað evrópska sjúkratryggingakortinu (vottorði) og vegabréfi skal heilsugæslustöð krefja hann um fulla greiðslu samkvæmt reglugerð.

Ferðamenn frá Norðurlöndum: Hægt er að staðfesta búsetu t.d. með gildu ES-korti (ekki íslensku ES-korti), bráðabirgðaskírteini eða sjúkratryggingakorti frá viðkomandi landi (sbr. gul sjúkratryggingakort frá Danmörku). Einnig þurfa ferðamenn frá Norðurlöndunum að framvísa persónuskilríkjum með mynd, t.d. vegabréfi. 

Heilsugæslustöðin skal taka ljósrit af evrópska sjúkratryggingakortinu (vottorði) sjúklings, vegabréfi og greinargerð læknis og senda til Fjárreiðudeildar HH, sem sendir gögnin með reikningi til Sjúkratrygginga Íslands. 

Komur

Koma á heilsugæslustöð á dagvinnutíma, 8:00-16:00, 12.973 kr.
Koma á heilsugæslustöð vegna mæðra- og ungbarnaverndar, 12.973 kr.
Koma á heilsugæslustöð utan dagvinnutíma og á laugardögum og helgidögum, 19.201 kr.

Vitjanir

Vitjun læknis á heilsugæslustöð á dagvinnutíma, 27.503 kr.
Vitjun læknis á heilsugæslustöð utan dagvinnutíma, 34.119 kr.
Vitjun annarra en lækna á heilsugæslustöð, 14.010 kr.

Bólusetningar

Auk komugjalda greiða ósjúkratryggðir fyrir bólusetningar á heilsugæslustöð (hvern skammt) samkvæmt gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega. 

Sjá gjaldskrá bólusetninga í öðrum flipa.

Bóluefni vegna barnabólusetninga

Auk komugjalda skulu ósjúkratryggðir greiða fyrir barnabólusetningar á heilsugæslustöð (hvern skammt) samkvæmt gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega.

Önnur þjónusta

Auk komugjalda skulu ósjúkratryggðir greiða fyrir aðra þjónustu sem hér segir:

  • Þungunarpróf 870 kr. 
  • Streptókokkarannsóknir 272 kr. 
  • Lyfjaleit í þvagi 870 kr.
  • CRP (C-reaktíft prótein) 1.141 kr.
  • HbA 1c (glýkósýlerað hemóglóbín) 1.631 kr.
  • Berklapróf - Mantoux (Tuberkulin) sjá gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega
  • Legstrok vegna krabbameinsleitar, 12.973 kr.
  • Lykkja (t) 3.805 kr. 
  • Hormónalykkja sjá gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega

Gjöld fyrir læknisvottorð skulu miðast við hversu langan tíma það tekur lækni að gera vottorðið og skal greiða 8.563 kr. fyrir hverjar byrjaðar 20 mínútur.

Fyrir hverja komu til rannsóknar á rannsóknarstofu og vegna rannsóknar á sýni sem sent er til rannsóknar í rannsóknarstofu skal greiða 6.098 kr. og til viðbótar 100% af umsömdu eða ákveðnu heildarverði við komuna.

Fyrir hverja komu til geisla- og myndgreiningar skal greiða 6.098 kr. og til viðbótar 100% af umsömdu eða ákveðnu heildarverði við komuna.

Fyrir nauðsynlega túlkaþjónustu skal sjúklingur greiða fullt gjald samkvæmt samningi Ríkiskaupa þjónustuaðila um túlkaþjónustu.

Námskeið

Heilsueflandi námskeið varðandi lífstíl og áhættuþætti heilsu, tengd sjúkdómum s.s. sykur­sýki, offitu og geðheilbrigði og tengd ákveðnum æviskeiðum, s.s. breytingaskeiði og öldrun. Skal greitt fyrir námskeið sem er eitt skipti samtals 5.000 kr, tvö til þrjú skipti samtals 10.000 kr., fjögur til sex skipti samtals 16.000 kr. og sjö til tíu skipti samtals 22.000 kr. 

Námskeið vegna meðgönguverndar, heilsuverndar barna og færniþjálfunarnámskeið fyrir foreldra og börn, samtals 14.142 kr., óháð fjölda skipta.

Tryggingastaða einstaklinga

Komin er á tenging á milli Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Sjúkratrygginga Íslands sem uppfærir tryggingastöðu sjúklinga einu sinni á sólarhring. 

Sögukerfið sýnir rétta tryggingastöðu einstaklinga hvort sem viðkomandi er sjúkratryggður eða ekki. Ef það koma fyrirspurnir frá sjúklingi, er hægt að hafa samband við Sjúkratryggingar Íslands í síma: 515-0003.

Netfang HH vegna gjaldskrármála er innheimta@heilsugaeslan.is