Hjúkrunarfræðingar óskast á starfsþróunarár hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

Heilsugæsla höfuðborgasvæðisins auglýsir eftir hjúkrunarfræðingum á starfsþróunarár. Starfsþróunarárið er nýtt og spennandi verkefni innan heilsugæslunnar og er hugsað fyrir nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga og hjúkrunarfræðinga sem ekki hafa áður starfað í heilsugæslu. Heilsugæslan er spennandi og fjölskylduvænn vinnustaður sem býður upp á lærdómsríkt starfsumhverfi. 

Á starfsþróunarári er í boði handleiðsla og fræðsla sem miðar að því að efla hjúkrunarfræðinga á fyrsta starfsári sem hjúkrunarfræðingar í heilsugæslu. Í boði eru störf á heilsugæslustöðvum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í Reykjavík, Kópavogi, Seltjarnarnesi, Garðabæ, Hafnafirði og Mosfellsbæ. Einnig eru í boði störf hjá heimahjúkrun HH. 

Lausar eru til umsóknar 10 stöður á starfsþróunarár HH. Stefnt er að því að hefja starfsþróunarárið í byrjun september 2024 og að því ljúki í lok maí 2025. 

Helstu verkefni og ábyrgð

Hjúkrunarfræðingar í heilsugæslu sinna fjölbreyttum og spennandi verkefnum þar sem mikið er um námstækifæri og tækifæri til að taka þátt í þróun heilsugæsluhjúkrunar. Hjúkrunarfræðingar sinna heildrænni nálgun skjólstæðinga á öllum aldursskeiðum ásamt því að taka þátt í teymisvinnu. 

  • Hjúkrunarfræðingar í hjúkrunarmóttöku sinna t.d.  sáraskiptum, saumatökum, bólusetningum, lyfjagjöfum, blóðaftöppunum, lífsmarkamælingum  ásamt því að sinna símaráðgjöf og svara heilsuveruskilaboðum.
  • Hjúkrunarfræðingar í móttöku taka á móti bráðum erindum s.s. smáslysum og veikindum. 
  • Hjúkrunarfræðingar í ung og smábarnavernd efla heilsu, vellíðan og þroska ungra barna með reglulegum heilsufarsskoðunum ásamt stuðningi og heilbrigðisfræðslu til fjölskyldna þeirra. 
  • Hjúkrunarfræðingar í heilsuvernd skólabarna sinna reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinna þeir öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni. 
  • Hjúkrunarfræðingar í heilsueflandi móttöku og heilsuvernd aldraðra veita fræðslu til skjólstæðinga og aðstandenda ásamt því að greina áhættuþætti og stuðla að sjálfstrausti, sjálfstæði og auknu öryggi.. 
  • Hjúkrunarfræðingar í heimahjúkrun veita skjólstæðingum viðeigandi aðstoð til að auka sjálfsbjargargetu og gera þeim kleift að dveljast heima við sem eðlilegastar og bestar aðstæður eins lengi og unnt er, miðað við heilsufar og félagslegan búnað. 

Hæfnikröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Góð samskiptahæfni
  • Jákvæðni og áhugi á að tileinka sér nýjungar 
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Áhugi og vilji til að vinna með fólki
  • Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt að óska eftir hreinu sakavottorði.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.08.2024

Nánari upplýsingar veitir

Rósa Eiríksdóttir - rosa.eiriksdottir@heilsugaeslan.is - 513-5034

HH Svið mannauðs- og nýliðunar
Álfabakki 16
109 Reykjavík

Sækja um starf »