Sérfræðingur í geðlækningum - Geðheilsuteymi HH vestur

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar eftir sérfræðingi í geðlækningum við Geðheilsuteymi HH vestur sem er þverfaglegt meðferðarteymi. Teymið er til húsa á Skúlagötu 21 í Reykjavík. Um er að ræða 80-100% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. 

Við Geðheilsuteymið starfa geðlæknar, hjúkrunarfræðingar, sálfræðingar, notendafulltrúi, íþróttafræðingur, skrifstofustjóri, félagsráðgjafar, fjölskyldufræðingar, klínískur atferlisfræðingur og iðjuþjálfi. Unnið er í þéttri og góðri samvinnu að málum þjónustuþega í jákvæðu og hvetjandi starfsumhverfi. Unnið er eftir batahugmyndafræði þar sem einstaklingsmiðuð þjónusta ýtir undir styrkleika og bjargráð notenda.

Hlutverk geðheilsuteymis HH vestur er að veita þjónustu einstaklingum 18 ára og eldri sem greindir eru með geðraskanir og þurfa á þverfaglegri aðstoð ásamt þéttri eftirfylgd að halda.

Ef þú hefur áhuga á vinna í fjölbreytilegri samfélagsgeðþjónustu og í öflugri teymisvinnu, þar sem góður starfsandi ríkir, þá er þetta spennandi tækifæri.

Nánari upplýsingar um starfsemi teymisins má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Geðlæknis- og geðlyfjameðferð skjólstæðinga
  • Vinna í þverfaglegu geðheilsuteymi
  • Virk þátttaka í þróunarstarfi innan teymis
  • Viðtöl á starfsstöð ásamt heimavitjunum
  • Þátttaka í ráðgjöf og fræðslu til starfsmanna
  • Fræðsla til notenda og aðstandenda
  • Veita þjónustu sem þörf er á hverju sinni
  • Samvinna við starfsfólk heilsugæslustöðva og annarra stofnana
  • Virk samvinna og ráðgjöf til heilsugæslustöðva 

Hæfnikröfur

  • Íslenskt sérfræðileyfi í geðlækningum
  • Breið þekking og reynsla í geðlækningum er kostur
  • Reynsla af vinnu í geðendurhæfingu er kostur
  • Hæfni og áhugi á teymis- og verkefnavinnu
  • Framúrskarandi samskiptahæfni
  • Jákvæðni og sveigjanleiki 
  • Góð skipulagshæfni
  • Góð íslenskukunnátta er nauðsynleg

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt skal leggja fram leyfisbréf og staðfestar upplýsingar um menntun. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.12.2024

Nánari upplýsingar veitir

Hrönn Harðardóttir - hronn.hardardottir@heilsugaeslan.is - 513 6360

Ingólfur Sveinn Ingólfsson - Ingolfur.Sveinn.Ingolfsson@heilsugaeslan.is - 513 6360

HH Geðheilsuteymi vestur
Skúlagata 21
101 Reykjavík

Sækja um starf »