Gæðastjóri - Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, HH, auglýsir eftir kraftmiklum leiðtoga í starf gæðastjóra. Leitað er eftir einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á gæða- og umbótastarfi, er skipulagður, lausnamiðaður og með góða samskiptahæfni. Gæðastjóri heyrir undir forstjóra stofnunarinnar og vinnur náið með framkvæmdastjórn HH.
Um er að ræða nýtt ótímabundið starf starf hjá stofnuninni og því spennandi tækifæri til að byggja upp og leiða gæða- og umbótastarf HH. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. febrúar nk. eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins er önnur stærsta heilbrigðisstofnun landsins þar sem starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði þeirra fær að njóta sín.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Er leiðandi í stefnumótun gæðamála HH
- Stuðlar að stöðugum umbótum og uppbyggingu gæða- og öryggismenningar HH
- Vinnur að gæða- og umbótaverkefnum í samvinnu við framkvæmdastjórn og aðra stjórnendur
- Hefur umsjón með uppbyggingu og viðhaldi gæðahandbókar
- Hefur umsjón með úrvinnslu atvika
- Fylgist með árangursmælingum og tekur þátt í að miðla þeim og nýta til umbóta
- Sinnir fræðslu, veitir upplýsingar og kynnir nýjungar er varða gæðamál
- Önnur verkefni í samráði við framkvæmdastjórn
Hæfnikröfur
- Háskólamenntun á sviði heilbrigðisvísinda, starfsleyfi frá embætti landlæknis skilyrði
- Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi kostur
- Reynsla af störfum innan heilbrigðisþjónustu skilyrði
- Þekking á aðferðarfræði gæðastjórnunar
- Þekking og hæfni í framsetningu á talnagögnum og upplýsingum
- Reynsla af rekstri gæðastjórnunarkerfa, mótun verkferla og innleiðingu æskileg
- Góð greiningarhæfni og lausnamiðuð hugsun
- Frumkvæði, drifkraftur og geta til að starfa sjálfstætt
- Örugg framkoma og færni í mannlegum samskiptum
- Hæfni í tjáningu í ræðu og riti á íslensku og ensku
Nánari Lýsing
Með öllum umsóknum skal fylgja góð ferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjandi rökstyður ástæður þess að vera rétta manneskjan í starfið. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir sakavottorði.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.12.2024
Nánari upplýsingar veitir
Sigríður Dóra Magnúsdóttir - sigridur.d.magnusdottir@heilsugaeslan.is - 513-6000
HH Stjórnsýsla
Álfabakki 16
109 Reykjavík