Sálfræðingur barna og unglinga - Heilsugæslan Efstaleiti

Heilsugæslan Efstaleiti auglýsir eftir sálfræðingi barna- og unglinga. Um er að ræða 50-80% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. febrúar nk. eða samkvæmt nánara samkomulagi.  

Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf og spennandi vettvang fyrir sálfræðing sem hefur áhuga á að verða þátttakandi í nýsköpun og framþróun í heilsugæslu og geðheilsumálum. Sálfræðingur starfar í þverfaglegu teymi með læknum, hjúkrunarfræðingum og öðru fagfólki í skemmtilegu starfsumhverfi sem er í stöðugri þróun. 

Heilsugæslan á að vera fyrsti viðkomustaður í heilbrigðisþjónustu þar sem ólíkum þörfum notenda er mætt í nærumhverfi og þeim leiðbeint yfir í önnur kerfi heilbrigðisþjónustunnar eftir því sem þörf er á. Mikil þróunarvinna er í gangi og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga.

Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sálfræðiþjónusta fyrir börn og unglinga að 18 ára aldri
  • Mat og greining á vanda barna og unglinga
  • Einstaklingsmiðuð gagnreynd meðferðarvinna og sálrænn stuðningur
  • Hópmeðferð
  • Námskeiðahald, ráðgjöf og fræðsla
  • Handleiðsla og þjálfun nema í klínískri sálfræði
  • Samstarf og samráð við aðrar stofnanir í heilbrigðis- og félagsþjónustu
  • Þátttaka í þróun geð- og sálfræðiþjónustu í heilsugæslu
     

Hæfnikröfur

  • Leyfi frá landlækni til að starfa sem sálfræðingur er skilyrði
  • 5 ára starfsreynsla af klínísku starfi er æskileg
  • Reynsla af greiningu og meðferð barna og unglinga
  • Þekking og reynsla af gagnreyndum sálfræðiaðferðum
  • Faglegur metnaður og áhugi á uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu
  • Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi
  • Reynsla og áhugi á þverfaglegri teymisvinnu
  • Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • Góð tungumálakunnátta vel metin

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Jafnframt skal leggja fram afrit af leyfisbréfi og prófskírteinum ásamt hreinu sakavottorði.  Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdarstjóra mannauðssviðs Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt að óska eftir hreinu sakavottorði.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 50 - 80%
Umsóknarfrestur er til og með 06.01.2025

Nánari upplýsingar veitir

Elínborg Bárðardóttir - elinborg.bardardottir@heilsugaeslan.is - 513-5350

HH Efstaleiti lækningar
Efstaleiti 3
103 Reykjavík

Sækja um starf »