Hjúkrunarfræðingur - Heimahjúkrun HH
Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) leitar að hjúkrunarfræðingi í 30-80% starf. Um er að ræða ótímabundið starf í vaktavinnu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Heimahjúkrun HH sinnir heimahjúkrun í Kópavogi, Garðabæ, Mosfellsbæ og Hafnarfirði og er með aðsetur í nýju og stórglæsilegu húsnæði að Miðhrauni 4 í Garðabæ. Hlutverk heimahjúkrunar er að veita einstaklingsmiðaða hjúkrun þar sem forvarnir, heilsuvernd, heilsuefling, fagleg þekking og samstarf er haft að leiðarljósi. Einstaklingsmiðuð heimahjúkrun er sérsniðin að þörfum hvers og eins.
Ný og spennandi tækifæri eru til starfsþróunar innan HH, þar sem hjúkrunarfræðingum stendur til boða að þróa sig í starfi s.s. starfsþróunarár og sérnám í heilsugæsluhjúkrun. Heimahjúkrun leggur áherslu á einstaklingsmiðaða aðlögun og stuðning við nýja starfsmenn.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Helstu verkefni og ábyrgð
Hjúkrunarfræðingur vinnur náið með teymisstjóra. Starfssvið hjúkrunarfræðings í heimahjúkrun er að veita víðtæka hjúkrun í heimahúsum vegna langvinnra sjúkdóma, andlegrar og líkamlegrar skerðingar. Hjúkrunarfræðingur styður við einstaklinga og aðstandendur þeirra ásamt því að skipuleggja og veita þá hjúkrun sem þörf er á hverju sinni. Hann er einnig í samskiptum og samvinnu við aðrar sjúkrastofnanir og heilbrigðisstéttir með hagsmuni skjólstæðings að leiðarljósi.
Hæfnikröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Fjölbreytt reynsla af hjúkrun er æskileg
- Faglegur metnaður og áhugi á teymisvinnu
- Reynsla og áhugi á geðhjúkrun kostur
- Mikil samskiptahæfni og rík þjónustulund
- Sjálfstæði í starfi
- Góð almenn tölvuþekking
- Gilt ökuleyfi
- Hreint sakavottorð
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Fríðindi í starfi:
- Heilsueflingarstyrkur
- Samgöngustyrkur
Nánari Lýsing
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun og staðfest afrit af opinberu starfsleyfi. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðssviðs, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til að óska eftir hreinu sakavottorði.
Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Starfshlutfall er 30 - 80%
Umsóknarfrestur er til og með 06.01.2025
Nánari upplýsingar veitir
Hildur Sigurjónsdóttir - hildur.sigurjonsdottir@heilsugaeslan.is - 513 6900
HH Heimahjúkrun á Suðursvæði, hjúkrun
Miðhraun 4
210 Garðabær