Sérnámsstöður í heimilislækningum
Lausar eru til umsóknar sérnámsstöður í heimilislækningum hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Sérnámsstöður veitast frá 1. ágúst 2025 eða eftir nánara samkomulagi og með fyrirvara um samþykki kennsluráðs sérnáms í heimilislækningum á Íslandi.
Sérnám í heimilislækningum hefur verið starfrækt í fjölda ára á Íslandi og hefur Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins verið leiðandi í sérnáminu. Sérnám í heimilislækningum byggir á marklýsingu Félags íslenskra heimilislækna, sjá nánar á: Sérnám í heimilislækningum (throunarmidstod.is)
Sérnámið fer fram undir virkri handleiðslu mentors sem er sérfræðingur í heimilislækningum sem fylgir sérnámslækni eftir allan námstímann. Sérnámslæknir skipuleggur nám sitt í samráði við handleiðara og kennslustjóra sérnáms.
Námið fer fram á heilsugæslustöð í 3 ár og á sjúkrahúsi í 2 ár. Starfshlutfall er að jafnaði 100%.
Kostir sérnáms í heimilislækningum:
- Skipulagt sérnám með einstaklingsmiðaðri námsáætlun
- Starfsnám undir virkri handleiðslu reyndra sérfræðinga
- Blokkasamningur við Landspítala varðandi sjúkrahúshluta sérnámsins
- Hópkennsla hálfan dag í viku
- Þátttaka í rannsóknar- eða gæðastarfi
- Sameiginlegar námsferðir innanlands sem utan
- Rafræn sérnámsmappa sem heldur utan um framgang í námi
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almennar lækningar og heilsuvernd
- Vaktþjónusta
- Nám samhliða starfi
- Rannsóknar og gæðastarf
Hæfnikröfur
- Íslenskt lækningaleyfi
- Að hafa lokið kandídatsári sérnámsgrunni eða sambærilegu námi
- Mjög góðir samskiptahæfileikar, fagmennska og jákvæðni
- Hæfni og vilji til að vinna náið með skjólstæðingum og samstarfsfólki
- Frumkvæði, faglegur metnaður og geta til að starfa sjálfstætt
- Áreiðanleiki, samviskusemi og vandvirkni
- Lausnamiðuð hugsun og vinnubrögð
- Vilji til þátttöku í þverfaglegri teymisvinnu
- Íslenskukunnátta nauðsynleg
- Hreint sakavottorð
Nánari Lýsing
Stéttarfélag er Læknafélag Íslands. Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um læknismenntun, læknisstörf og vísinda- og rannsóknarstörf ásamt staðfestu afriti af opinberu starfsleyfi. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum, umsögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu. Umsókn getur gilt í 6 mánuði. HH áskilur sér rétt á að óska eftir hreinu sakavottorði.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.01.2025
Nánari upplýsingar veitir
Margrét Ólafía Tómasdóttir - margret.olafia.tomasdottir@heilsugaeslan.is - null
Víóletta Ósk Hlöðversdóttir - violetta.osk.hlodversdottir@heilsugaeslan.is - null
HH Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu
Álfabakki 16
109 Reykjavík