Sérfræðingur í heimilislækningum - Heilsugæslan Glæsibæ
Laust er til umsóknar ótímabundið starf sérfræðings í heimilislækningum við Heilsugæsluna Glæsibæ. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. maí n.k. eða eftir nánara samkomulagi. Starfshlutfall er 100% eða eftir samkomulagi. Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf í spennandi starfsumhverfi.
Heilsugæslan er fjölskylduvænn vinnustaður og góð samvinna er á milli starfstétta. Á stöðinni starfa sérfræðingar í heimilislækningum ásamt hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum, sjúkraþjálfara, sálfræðingi, félagsráðgjafa og riturum. Heilsugæslan Glæsibæ þjónar fyrst og fremst íbúum Voga- og Heimahverfis, en allir eru velkomnir á stöðina.
Mikil þróunarvinna er í gangi og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfssvið sérfræðings í heimilislækningum er víðtækt og felst m.a. í almennri læknismóttöku, heilsuvernd, bráðaþjónustu á daginn og síðdegisvakt. Hann er virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu heimilislækninga, sinnir kennslu starfsfólks og nema og tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi. Um er að ræða spennandi vettvang fyrir lækni sem áhuga hefur á nýsköpun og framþróun í heilsugæslu.
Hæfnikröfur
- Íslenskt lækningaleyfi
- Sérfræðimenntun í heimilislækningum
- Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
- Reynsla af kennslu er æskileg
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Reynsla og áhugi til samstarfs við aðrar starfsstéttir og þátttaka í teymisvinnu
- Áreiðanleiki, faglegur metnaður, jákvæðni og sveigjanleiki
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð íslenskukunnátta æskileg
- Góð enskukunnátta
Nánari Lýsing
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um læknismenntun, læknisstörf, vísinda- og rannsóknarstörf. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til að óska eftir hreinu sakavottorði.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 29.01.2025
Nánari upplýsingar veitir
Marta Lárusdóttir - marta.larusdottir@heilsugaeslan.is - 513-5700
HH Glæsibæ lækningar
Álfheimum 74
104 Reykjavík