Fagstjóri lækninga - Heilsugæslan Efra Breiðholti
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins (HH) auglýsir starf fagstjóra lækninga við Heilsugæsluna Efra Breiðholti laust til umsóknar. Um er að ræða 100% ótímabundið starf frá og með 1. apríl nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Fagstjóri lækninga ber ábyrgð á skipulagningu læknisþjónustu og er mikil áhersla lögð á samvinnu milli fagstétta innan starfsstöðva HH og eru þjónustuþarfir skjólstæðinga ávallt í fyrirrúmi. Starf fagstjóra er ábyrgðarmikið, krefjandi og reynir á frumkvæði, skipulagshæfileika og samskiptahæfni viðkomandi. Heilsugæslan Efra Breiðholti leggur áherslu á gott starfsumhverfi og góða teymisvinnu.
Á starfsstöðvum HH starfa fagstjóri hjúkrunar og fagstjóri lækninga. Hlutverk fagstjóra er að annast skipulag, verkstjórn og samhæfingu innan fagsviðs í samræmi við stefnu og markmið Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Forstjóri felur öðrum hvorum fagstjóranna að sinna verkefnum við svæðisstjórn samkvæmt gildandi fyrirkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipulag, verkstjórn og samhæfing innan fagsviðs með svæðisstjóra, í samræmi við stefnu og markmið Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
- Er svæðisstjóra innan handar við daglegan rekstur stöðvar og er staðgengill hans
- Innleiðir nýjungar og vinnur að breytingum á starfsemi til hagsbóta fyrir skjólstæðinga stöðvar
- Tekur þátt í gerð, innleiðingu og notkun klínískra leiðbeininga
- Stuðlar að góðri vinnustaðamenningu
- Tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi
- Hefur umsjón með sérnámslæknum stöðvar, veitir fræðslu til nema, nýliða og starfsmanna fagsviðs í samvinnu við aðra starfsmenn stöðvar
- Er faglegur yfirmaður á sínu sviði og sinnir klínísku starfi samhliða
Hæfnikröfur
- Sérfræðingur í heimilislækningum
- Reynsla af starfi í heilsugæslu skilyrði
- Þekking, reynsla og hæfni á sviði stjórnunar
- Nám í stjórnun er æskilegt
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri í starfi
- Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt
- Reynsla af rekstri innan heilbrigðisþjónustu æskileg
- Reynsla af og áhugi á teymisvinnu
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
Nánari Lýsing
Allar umsóknir verða sendar til stöðunefndar hjá Landlæknisembættinu. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.
Jafnframt skal fylla út eyðublaðið "Umsókn um læknisstöðu" og setja það í viðhengi. Umsóknareyðublaðið má nálgast á vef Embættis landlæknis (www.landlaeknir.is) undir útgefið efni.
Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 24.02.2025
Nánari upplýsingar veitir
Vildís Bergþórsdóttir - vildis.bergthorsdottir@heilsugaeslan.is - 513-5300
Nanna Sigríður Kristinsdóttir - nanna.kristinsdottir@heilsugaeslan.is - 513-5000
HH Efra Breiðholti lækningar
Hraunbergi 6
111 Reykjavík