Hjúkrunarfræðingur Heilsugæslan Miðbæ

Heilsugæslan Miðbæ leitar að hjúkrunarfræðingi í fjölbreytt og skemmtileg störf hjúkrunar. Um er að ræða 80-100% ótímabundið starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. maí eða eftir nánara samkomulagi. 

Á Heilsugæslunni Miðbæ starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og skemmtilegu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Á stöðinni ríkir góður starfsandi og áhersla er lögð náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.  

Ný og spennandi tækifæri eru til starfsþróunar innan HH, þar sem hjúkrunarfræðingum stendur til boða að þróa sig í starfi s.s starfsþróunarár og sérnám í heilsugæsluhjúkrun. Heilsugæslan Miðbæ leggur áherslu á einstaklingsmiðaða aðlögun og stuðning við nýja starfsmenn. 

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is). 

Helstu verkefni og ábyrgð

Megin starfssvið er móttaka ásamt ung- og smábarnavernd

Opin og bókuð móttaka  

Í móttöku sinna hjúkrunarfræðingar fólki á öllum aldri, bráðaerindum, bókuðum tímum og símaráðgjöf ásamt því að svara Heilsuveruskilaboðum. Í bókaðri móttöku er tekið á móti erindum s.s. ferðamannaheilsuvernd, sárameðferð, lyfjagjöfum ásamt heilsueflandi móttöku.  

Ung og smábarnavernd  

Markmið ung- og smábarnaverndar er að efla heilsu, vellíðan og þroska ungra barna með reglulegum heilsufarsskoðunum ásamt stuðningi og heilbrigðisfræðslu til fjölskyldna þeirra. Heilsuvernd skólabarna felst m.a. í reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Áhersla er lögð á stuðning við fjölskylduna. Fylgst er með þroska barna frá fæðingu til skólaaldurs. 
 

 

Hæfnikröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Reynsla af heilsugæsluhjúkrun kostur
  • Reynsla af bráða- og slysamóttöku er kostur
  • Þekking og áhugi á forvarnar- og heilsueflingarstarfi kostur
  • Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
  • Reynsla og áhugi á teymisvinnu
  • Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Góð almenn tölvukunnátta

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt að óska eftir hreinu sakavottorði.

Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.04.2025

Nánari upplýsingar veitir

Hafdís Ólafsdóttir - hafdis.olafsdottir@heilsugaeslan.is - 513-5950

HH Miðbæ hjúkrun
Vesturgötu 7
107 Reykjavík

Sækja um starf »