Ljósmóðir - Heilsugæslan Mjódd

Við leitum að ljósmóður sem hefur áhuga á fjölbreyttum, krefjandi og skemmtilegum verkefnum í starfi sem er í stöðugri þróun. Um er að ræða 60-80% tímabundið starf til eins árs. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. maí  nk. eða eftir nánara samkomulagi. 

Hjá Heilsugæslunni Mjódd starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Lögð er áhersla á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu. Margvísleg tækifæri eru til að þróa með sér góða þekkingu og hæfni í starfi. 

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð

Megin starfssvið ljósmæðra er við meðgönguvernd, ungbarnavernd og leghálsskimanir ásamt getnaðarvarnaráðgjöf.

Meðgönguvernd 
Markmið meðgönguvernd er m.a. að stuðla að heilbrigði móður og barns, veita stuðning og ráðgjöf, greina áhættuþætti og veita fræðslu um meðgöngu og fæðingu. Meðgönguvernd er höndum ljósmæðra og heimilislækna á heilsugæslustöðvum og samráð er haft við fæðingarlækna ef þörf er á. 

Ung- og smábarnavernd 
Markmið ung- og smábarnaverndar er að efla heilsu, vellíðan og þroska ungra barna með reglulegum heilsufarsskoðunum ásamt stuðningi og heilbrigðisfræðslu til fjölskyldna þeirra. Heilsuvernd skólabarna felst m.a. í reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Áhersla er lögð á stuðning við fjölskylduna. Fylgst er með þroska barna frá fæðingu til skólaaldurs. 

Leghálsskimanir 
Heilsugæslunni hefur verið falin framkvæmd skimunar fyrir krabbameini í leghálsi og annast ljósmæður og hjúkrunarfræðingar sýnatökur vegna skimunarinnar. 

Hæfnikröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Starfsleyfi sem ljósmóðir
  • Reynsla sem ljósmóðir á heilsugæslustöð kostur
  • Reynsla af leghálsskimunum kostur
  • Reynsla við að nota rafræna mæðraskrá
  • Góð þekking/próf í brjóstagjafaráðgjöf
  • Reynsla af vinnu á fæðingardeild og/eða meðgöngudeild kostur
  • Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
  • Reynsla og áhugi á teymisvinnu
  • Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 60 - 80%
Umsóknarfrestur er til og með 31.03.2025

Nánari upplýsingar veitir

Hulda Björg Óladóttir - Hulda.Bjorg.Oladottir@heilsugaeslan.is - 513-6000

HH Mjódd hjúkrun
Þönglabakka 6
109 Reykjavík

Sækja um starf »