Enginn síðdegisvakt er hjá Heilsugæslunni Efra-Breiðholti vegna manneklu.
Almennar upplýsingar
Contact us
Svarað er í sima 8:00 til 16:00
Bráð erindi
1700 síminn og netspjall Heilsuveru veita ráðgjöf og geta komið erindum í farveg milli kl. 8 og 17. 1700 síminn er opinn allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru er opið frá kl. 8 til 22.
Síðdegisvakt fellur niður
Viltu skrá þig hjá okkur?
Má bjóða þér að skrá þig rafrænt á Heilsugæsluna Efra-Breiðholti?
Hvað viltu gera?
Þú getur séð hvaða stöð er þín á Mínum síðum Heilsuveru og í Réttindagátt sjúkratrygginga.
Þú getur skráð þig á heilsugæslustöð að eigin vali í Réttindagátt eða á stöðinni sjálfri.
Öllum er velkomið á skrá sig á stöðina og við tökum vel á móti þér.
Það er alltaf hægt að fá símasamband við hjúkrunarfræðing sem kemur erindi þínu í farveg eða leiðbeinir þér með önnur úrræði
Blóðsýni eru tekin milli kl. 8:00 og 9:50 alla virka daga.
Bóka þarf tíma í blóðtöku og þarf alltaf beiðni frá lækni að liggja fyrir.
Þvagsýni þurfa helst að berast fyrir kl. 10:00. Best er að koma með fyrsta morgunþvag (miðbunuþvag) nema annað hafi verið tekið fram.
Tímapantanir og nánari upplýsingar í síma 513-5300
Örugg gagnaskil
Hægt er að senda gögn með öruggum hætti til Heilsugæslunnar Efra Breiðholti með Signet transfer. Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki. Hlekkur í örugg gagnaskil
Allir eru velkomnir á stöðina
Heilsugæslan Efra-Breiðholti þjónar fyrst og fremst íbúum Efra-Breiðholts en allir eru velkomnir á stöðina. Skráning er í gegnum mínar síður á island.is.
Nánari upplýsingar um stöðina og þjónustu hennar eru í flipunum hér fyrir ofan: Læknisþjónusta, Opin móttaka, Heilsuverndin, Sálfræðiþjónusta og Um stöðina.
Með rafrænum skilríkjum er hægt að bóka tíma, endurnýja lyf og senda einfaldar fyrirspurnir á mínum síðum á heilsuvera.is
Við tökum vel á móti þér
Læknisþjónustan
Það eru nokkrar leiðir að þjónustu læknanna okkar.
Hvað hentar þér best?
Þjónusta í boði
Heimilislæknar á stöðinni eru með bókaða viðtalstíma frá kl. 8 - 16 og er hver tími 20 mínútur.
Þú bókar tíma í gegnum mínar síður á Heilsuveru eða með því að hringja á stöðina.
Enginn síðdegisvakt er hjá Heilsugæslunni Efra Breiðholti vegna manneklu.
Í símaviðtali svara læknar stuttorðum fyrirspurnum, veita einfaldar ráðleggingar og/eða gefa upplýsingar um niðurstöður rannsókna.
Oft er þægilegra að senda stuttar fyrirspurnir í gegnum í mínar síður í Heilsuveru. Milli kl. 8 og 16 er líka alltaf hægt að fá símasamband við hjúkrunarfræðing í síma 513-5300.
Símaviðtöl við lækna eru pöntuð samdægurs í síma 513-5300 frá kl. 8:00.
Anna Kristín Þórhallsdóttir er með símatíma alla virka daga nema mánudaga
Gerður Jónsdóttir er með símatíma alla virka daga nema þriðjudaga
Hallgrímur Óskar Hallgrímsson er með símatíma á þriðjudögum og föstudögum
Katrín Jónsdóttir er með símatíma mánudaga, þriðjudaga og föstudaga
Kristín Hansdóttir er með símatíma alla virka daga
Nanna Sigríður Kristinsdóttir er með símatíma á föstudögum
Hægt er að óska eftir lyfjaendurnýjun rafrænt eða í síma. Þar er hægt að endurnýja lyf sem tekin eru að staðaldri og ávísað hefur verið af læknum stöðvarinnar.
Venjulega eru þessar lyfjaendurnýjanir tilbúnar til afgreiðslu í lyfjaverslunum eftir kl. 16:00 sama dag.
Rafræn lyfjaendurnýjun
Einfaldast er að óska eftir lyfjaendurnýjun í Heilsuvera.is. Þú þarft að hafa rafræn skilríki.
Lyfjaendurnýjun í síma
Lyfjaendurnýjun er virka daga frá kl. 9:00 til 10:30 í síma 513-5302. Ritarar taka við beiðnum um endurnýjun.
Ef þörf er á veikindavottorði vegna skóla eða vinnu þarf að tilkynna veikindin á heilsugæslustöðina sem fyrst eftir að veikindi hefjast.
Í stuttum veikindum er tekið á móti beiðnum um veikindavottorð vegna skóla eða vinnu í síma 513-5300 milli 8:00og 16:00 alla virka daga.
Heimilislæknar gera tilvísanir til sérgreinalækna ef þarf vegna mála sem þeir hafa haft aðkomu að.
Þegar farið er til sérgreinalækna vinsamlegast biðjið þá um að senda heimilislækni læknabréf.
Læknar stöðvarinnar
Hjá okkur starfa sérfræðingar í heimilislækningum en einnig almennir læknar, sérnámslæknar og unglæknar.
- Anna Kristín Þórhallsdóttir heimilislæknir
- Áslaug Katrín Hálfdánardóttir sérnámslæknir í heimilislækningum
- Gerður Jónsdóttir heimilislæknir
- Hallgrímur Óskar Hallgrímsson læknir
- Katrín Jónsdóttir heimilislæknir
- Kristín Hansdóttir sérnámslæknir í heimilislækningum
- Nanna S. Kristinsdóttir heimilislæknir
Við erum á vaktinni allan daginn
Ráðgjöf hjúkrunarfræðinga
1700 síminn og netspjall Heilsuveru veita ráðgjöf og geta komið erindum í farveg milli kl. 8 og 17.
1700 síminn er opinn allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru er opið frá kl. 8 til 22.
Smáslys og bráð veikindi
Öllum erindum sem koma á vaktina er sinnt, annaðhvort með því að veita þjónustuna á staðnum eða vísa í þann farveg sem við á í hverju tilviki.
Einnig er hægt að bóka tíma í móttöku hjúkrunarfræðinga.
Til dæmis fyrir sáraskiptingar og bólusetningar o.fl.
Heilsuvernd mæðra, ung- og smábarna, skólabarna, eldra fólks og allra hinna
Heilsuvernd og heilsuefling
Heilsuverndin hefst á mæðravernd.
Mæðraverndarþjónustan er ókeypis og verðandi mæður geta annað hvort farið á heilsugæslustöð í sínu hverfi eða valið aðra stöð og skráð sig á hana.
Viðtöl og skoðanir eru í boði frá upphafi meðgöngu og fram að fæðingu. Fyrsta viðtal við ljósmóður er gjarnan í síma fljótlega eftir að þungun er staðfest. Fjöldi mæðraskoðana fer svo eftir aðstæðum, oftast 8-10 skipti. Milli skoðana er hægt að fá símaráðgjöf hjá ljósmóður.
Ung- og smábarnavernd tekur við af mæðravernd þegar fjölskyldan kemur heim og heimaþjónustu ljósmæðra lýkur.
Fyrstu vikurnar eftir fæðingu fara hjúkrunarfræðingar stöðvarinnar í vitjanir heim til fjölskyldunnar. Foreldrar eru því beðnir um að hafa samband við hjúkrunarfræðing fljótlega eftir að heim er komið. Fyrsta læknisskoðun á heilsugæslustöðinni er svo við 6 vikna aldur.
Síðan eru reglubundnar skoðanir hjá hjúkrunarfræðingi og lækni til skólaaldurs. Þá fylgjumst við með vexti og þroska barnanna og bólusetjum. Í skoðunum ráðleggjum við m.a. um brjóstagjöf, svefnvandamál, aga og uppeldi, matarræði og slysavarnir. Auk þess er alltaf hægt að fá samband við hjúkrunarfræðing ef spurningar vakna varðandi barnið.
Heilsuvernd skólabarna tekur við þegar ung- og smábarnavernd lýkur.
Hjúkrunarfræðingar og læknar á heilsugæslustöðinni sjá um heilsuvernd skólabarna á þjónustusvæði stöðvarinnar.
- Fellaskóli
- Hólabrekkuskóli
Hægt er að fá símasamband við skólahjúkrunarfræðingana í gegnum skiptiborð skólanna.
Heilsuverndin tekst á við heilsuáskoranir fullorðinsára í heilsueflandi móttöku.
Þar aðstoðum við þig við heilbrigðan lífsstíl með mælingum, ráðgjöf og stuðningi.
Oft kemur heilsueflandi móttaka til aðstoðar í framhaldi af viðtali við lækni en þú getur líka haft samband við hjúkrunarfræðing á stöðinni þinni ef þú þarft á þessari þjónustu að halda.
Við höfum það að leiðarljósi að mæta fólki þar sem það er statt og gera því kleift að búa sem lengst á eigin heimili.
Hafðu samband við okkur og pantaðu viðtal hjá hjúkrunarfræðingi í Heilsuvernd eldra fólks.
Í viðtölum eru m.a. veittar upplýsingar um þá þjónustu sem eldri borgurum stendur til boða í nærsamfélaginu. Við greinum áhættuþætti varðandi heilsufar og ráðleggjum um fyrirbyggjandi aðgerðir og meðhöndlun sjúkdóma svo eldra fólk viðhaldi sem lengst andlegri, líkamlegri og félagslegri færni sinni.
Þeir sem eru 70 ára og eldri eru hvattir til að panta tíma hjá okkur í almennt eftirlit þar sem heimilislæknir fer yfir lyfjalista, mælir blóðþrýsting, blóðsykur og fleira ef þarf.
Leghálsskimun
Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar annast sýnatöku fyrir skimun vegna krabbameins í leghálsi.
Skimanir eru á stöðinni annan hvern þriðjudag eftir hádegi.
Ef það er komið að þér í skimun má panta tíma á mínum síðum heilsuveru eða með símtali.
Lestu meira um leghálskrabbameinsskimun
Hreyfiseðill
Hreyfiseðill er meðferðarúrræði við sjúkdómum, sem vitað er að regluleg hreyfing getur haft umtalsverð áhrif á.
Heimilislæknar, ljósmæður og sálfræðingar vísa til sjúkraþjálfara. Ef þú heldur að hreyfiseðill henti þér, pantar þú fyrst tíma hjá þínum lækni.
Klínískur lyfjafræðingur
Verkefni lyfjafræðingsins er einkum að fara yfir lyfjalista hjá þeim sem eru á mörgum lyfjum. Markmiðið er að draga úr lyfjatengdum vandamálum.
Heimilislæknar eða hjúkrunarfræðingar vísa til klíníska lyfjafræðingsins. Ef þú heldur að þjónusta lyfjafræðings henti þér, pantar þú fyrst tíma hjá þínum lækni.
Þjónusta sálfræðinga
Læknar stöðvarinnar vísa til sálfræðinga þannig að fyrsta skrefið er að panta tíma hjá heimilislækni.
- Sálfræðingar stöðvarinnar eru Elín Elísabet Halldórsdóttir og Sólveig Eyfeld Unnardóttir.
Sálfræðingar á heilsugæslustöðinni sinnir meðferð og ráðgjöf fyrir börn og fullorðna og eru í nánu samtarfi við heimilislækna, hjúkrunarfræðinga og ljósmæður stöðvarinnar.
HAM námskeið
Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins býður upp á hugræna atferlismeðferð (HAM) fyrir fulllorðna.
HAM námskeið í hópi henta mörgum en ekki öllum og því er byrjað á kynningartíma fyrir þau sem hafa áhuga á að fara á HAM námskeið.
Nánari upplýsingar
Samvinna fyrir þig
Heilsugæslan Efra-Breiðholti þjónar fyrst og fremst íbúum Efra-Breiðholts en öllum er frjálst að skrá sig á stöðina.
Við veitum samfellda þjónusta með hag einstaklingsins og fjölskyldunnar í huga. Fagleg afstaða er tekin til allra erinda og annað hvort leyst úr þeim eða ráðlagt um önnur úrræði.
Þjónustan byggir á sérþekkingu starfstétta og þverfaglegri samvinnu.
Um heilsugæslustöðina
Heilsugæslustöðvum er stýrt af svæðisstjóra.
Fagstjórar lækninga og hjúkrunar leiða faglegt starf
- Settur svæðisstjóri og fagstjóri hjúkrunar: Vildís Bergþórsdóttir
- Fagstjóri lækninga: Nanna Sigríður Kristinsdóttir
- Skrifstofustjóri: Ásta Huld Iðunnardóttir
HHStaff | Jobtitle | Phone | |
---|---|---|---|
Anna Kristín Þórhallsdóttir | General practitioner | 513-5300 | |
Áslaug Katrín Hálfdánardóttir | Medical trainee in general practice | 513-5300 | |
Ásta Huld Iðunnardóttir | 513-5300 | ||
Dovile Kacinske | 513-5300 | ||
Elfa Margrét Magnúsdóttir | 513-5300 | ||
Elín Elísabet Halldórsdóttir | Psychologist | 513-5300 | |
Elín Úlfarsdóttir | Registered nurse | 513-5300 | |
Elísabet Heiðarsdóttir | Midwife | 513-5300 | |
Ester Magnúsdóttir | 513-5300 | ||
Gerður Jónsdóttir | General practitioner | 513-5300 | |
Guðný Björg Björnsdóttir | 513-5300 | ||
Hallgrímur Óskar Hallgrímsson | 513-5300 | ||
Heiða Margrét Hilmarsdóttir | 513-5300 | ||
Hildur Baldursdóttir | 513-5300 | ||
Jóhanna Guðrún Bergþórsdóttir | 513-5300 | ||
Katrín Jónsdóttir | General practitioner | 513-5300 | |
Katrín Sigurðardóttir | 513-5300 | ||
Kristín Auður Halldórsdóttir | Registered nurse | 513-5300 | |
Kristín Hansdóttir | General practitioner | 513-5300 | |
Kristín Hrönn Gunnarsdóttir | 513-5300 | ||
Nanna Sigríður Kristinsdóttir | 513-5300 | ||
Nanna Þorbjörg Guðmundsdóttir | 513-5300 | ||
Rannveig Bára Bjarnadóttir | 513-5300 | ||
Snjólaug Aðalgeirsdóttir | 513-5300 | ||
Sólveig Eyfeld Unnardóttir | Psychologist | 513-5300 | |
Vaiva Strasunskiene | 513-5300 | ||
Vildís Bergþórsdóttir | 513-5300 |