Má bjóða þér að skrá þig rafrænt á Heilsugæsluna Fjörð?
Almennar upplýsingar
Heilsugæslan er opin 8:00 - 17:00
Svarað er í sima 8:00 til 16:00
Bráð erindi
1700 síminn og netspjall Heilsuveru veita ráðgjöf og geta komið erindum í farveg milli kl. 8 og 17. 1700 síminn er opinn allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru er opið frá kl. 8 til 22.
Viltu skrá þig hjá okkur?
Hvað viltu gera
Þú getur séð hvaða stöð er þín á Mínum síðum Heilsuveru og í Réttindagátt sjúkratrygginga.
Þú getur skráð þig á heilsugæslustöð að eigin vali í Réttindagátt eða á stöðinni sjálfri.
Öllum er velkomið á skrá sig á stöðina og við tökum vel á móti þér.
Lyfjasíminn er 513-5402 á milli kl. 10:30 og 11:30 alla virka daga.
Líka er hægt að óska eftir endurnýjun á mínum síðum Heilsuveru.
Þú getur bókað tíma í heilsuveru eða með því að hringja á stöðina.
Ef þú getur ekki beðið er hægt að bóka samdægurstíma og koma á skyndimóttöku eftir samráð við hjúkrunarfræðing í síma 513-5400
Það er alltaf hægt að fá símasamband við hjúkrunarfræðing sem kemur erindi þínu í farveg eða leiðbeinir þér með önnur úrræði
Rannsóknastofan er opin frá kl. 8:00 til 9:50 alla virka daga.
Panta þarf tíma í blóðtöku í síma 513-5400 og alltaf þarf beiðni að liggja fyrir.
Þvagsýni þurfa helst að berast fyrir kl. 10:00. Best er að koma með fyrsta morgunþvag (miðbunuþvag) nema annað hafi verið tekið fram.
Örugg gagnaskil
Hægt er að senda gögn með öruggum hætti til Heilsugæslunnar Fjarðar með Signet transfer. Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki. Hlekkur í örugg gagnaskil
Öll eru velkomin á stöðina
Heilsugæslan Fjörður þjónar fyrst og fremst íbúum Hafnarfjarðar, en öll eru velkomin á stöðina. Skráning er í gegnum mínar síður á island.is.
Nánari upplýsingar um stöðina og þjónustu hennar eru í flipunum hér fyrir ofan: Læknisþjónusta, Opin móttaka, Heilsuverndin, Sálfræðiþjónusta og Um stöðina.
Með rafrænum skilríkjum er hægt að bóka tíma, endurnýja lyf og senda einfaldar fyrirspurnir á mínum síðum á Heilsuvera.is
Við tökum vel á móti þér
Hvað hentar þér best?
Það eru nokkrar leiðir að þjónustu læknanna okkar.
Hvaða leið hentar þér best?
Heimilislæknar á stöðinni eru með bókaða viðtalstíma frá kl. 8 - 16 og er hver tími 20 mínútur.
Þú bókar tíma í gegnum mínar síður á Heilsuveru eða með því að hringja á stöðina.
Í símaviðtali svara læknar stuttorðum fyrirspurnum, veita einfaldar ráðleggingar og/eða gefa upplýsingar um niðurstöður rannsókna.
Oft er þægilegra að senda stuttar fyrirspurnir í gegnum mínar síður í Heilsuveru. Milli kl. 8 og 16 er líka alltaf hægt að fá símasamband við hjúkrunarfræðing í síma 513-5400.
Símaviðtöl við lækna eru pöntuð í síma 513-5400. Læknar hringja svo uppgefið í símanúmer við fyrsta tækifæri.
Hægt er að óska eftir lyfjaendurnýjun rafrænt eða í síma. Þar er hægt að endurnýja lyf sem tekin eru að staðaldri og ávísað hefur verið af læknum stöðvarinnar.
Venjulega eru þessar lyfjaendurnýjanir tilbúnar til afgreiðslu í lyfjaverslunum eftir kl. 16:00 sama dag.
Rafræn lyfjaendurnýjun
Einfaldast er að óska eftir lyfjaendurnýjun í Heilsuvera.is. Þú þarft að hafa rafræn skilríki.
Lyfjaendurnýjun í síma
Lyfjaendurnýjun er virka daga frá kl. 10:00 til 11:30 í síma 513-5402. Ritarar taka við beiðnum um endurnýjun og koma þeim til viðkomandi læknis.
Ef þörf er á veikindavottorði vegna skóla eða vinnu þarf að tilkynna veikindin á heilsugæslustöðina sem fyrst eftir að veikindi hefjast.
Í stuttum veikindum er tekið á móti beiðnum um veikindavottorð vegna skóla í síma: 513-5400.
Hafa skal beint samband við lækni vegna lengri veikinda og annarra vottorða s.s. vinnuveitendavottorða.
Heimilislæknar gera tilvísanir til sérgreinalækna ef þarf vegna mála sem þeir hafa haft aðkomu að.
Þegar farið er til sérgreinalækna vinsamlegast biðjið þá um að senda heimilislækni læknabréf.
Læknar stöðvarinnar
Hjá okkur starfa sérfræðingar í heimilislækningum en einnig almennir læknar, sérnámslæknar og unglæknar.
- Elín Fanney Hjaltalín heimilislæknir
- Guðrún Inga Benediktsdóttir heimilislæknir - í leyfi
- Guðrún Jóhanna Georgsdóttir heimilislæknir
- Guðrún Gunnarsdóttir heimilislæknir
- Jörundur Kristinsson heimilislæknir
- Ólafur Sveinbjörnsson heimilislæknir
- Sandra Ásgeirsdóttir heimilislæknir
Við erum á vaktinni allan daginn
Ráðgjöf hjúkrunarfræðinga
Hægt er að fá símaráðgjöf hjá hjúkrunarfræðingi frá kl. 8:00 til 16:00, alla virka daga í síma 513-5400.
Ef hjúkrunarfræðingurinn er upptekinn tekur móttökuritari niður skilaboð og haft er samband um leið og færi gefst.
1700 síminn og netspjall Heilsuveru veita ráðgjöf og geta komið erindum í farveg milli kl. 8 og 17.
1700 síminn er opinn allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru er opið frá kl. 8 til 22.
Skyndimóttaka fyrir smáslys og bráð veikindi
Það er líka hægt að koma í móttökuna á dagvinnutíma.
Öllum erindum sem koma á vaktina er sinnt, annaðhvort með því að veita þjónustuna á staðnum eða vísa í þann farveg sem við á í hverju tilviki.
Bókuð móttaka
Einnig er hægt að bóka tíma í móttöku hjúkrunarfræðinga.
Til dæmis fyrir sáraskiptingar og bólusetningar o.fl.
Hvað er í gert í opnu móttökunni?
Algengt er að fólk leiti aðstoðar eða ráðgjafar þegar um er að ræða veikindi, vanlíðan, óþægindi eða slys.
Til dæmis er algengt að foreldrar með lasin börn fái ráðleggingar varðandi umönnun og aðstoð við að meta þörf fyrir frekari þjónustu.
Einnig leita margir ráða vegna lyfjatöku eða vantar leiðbeiningar til að rata um heilbrigðiskerfið.
Hjúkrunarfræðingar sinna einnig erindum sem flokkast undir heilsuvernd, forvarnir og lífsstíl
Framkvæmdar eru rannsóknir og mælingar, t.d. mælingar á blóðþrýstingi
Heilsuvernd mæðra, ung- og smábarna, skólabarna, eldra fólks og allra hinna
Við fylgjumst með heilsu og þroska frá móðurkviði til unglingsára í mæðravernd, ung- og smábarnavernd og heilsuvernd skólabarna.
Á fullorðinsárum bjóðum við aðstoð við heilsueflingu með ráðgjöf, eftirliti og bólusetningum og heilsuvernd sem er ætluð eldri borgurum.
Heilsuvernd og heilsuefling
Heilsuverndin hefst á mæðravernd.
Mæðraverndarþjónustan er ókeypis og verðandi mæður geta annað hvort farið á heilsugæslustöð í sínu hverfi eða valið aðra stöð og skráð sig á hana.
Viðtöl og skoðanir eru í boði frá upphafi meðgöngu og fram að fæðingu. Fyrsta viðtal við ljósmóður er gjarnan í síma fljótlega eftir að þungun er staðfest. Fjöldi mæðraskoðana fer svo eftir aðstæðum, oftast 8-10 skipti. Milli skoðana er hægt að fá símaráðgjöf hjá ljósmóður.
Ung- og smábarnavernd tekur við af mæðravernd þegar fjölskyldan kemur heim og heimaþjónustu ljósmæðra lýkur.
Fyrstu vikurnar eftir fæðingu fara hjúkrunarfræðingar stöðvarinnar í vitjanir heim til fjölskyldunnar. Foreldrar eru því beðnir um að hafa samband við hjúkrunarfræðing fljótlega eftir að heim er komið. Fyrsta læknisskoðun á heilsugæslustöðinni er svo við 6 vikna aldur.
Síðan eru reglubundnar skoðanir hjá hjúkrunarfræðingi og lækni til skólaaldurs. Þá fylgjumst við með vexti og þroska barnanna og bólusetjum. Í skoðunum ráðleggjum við m.a. um brjóstagjöf, svefnvandamál, aga og uppeldi, matarræði og slysavarnir. Auk þess er alltaf hægt að fá samband við hjúkrunarfræðing ef spurningar vakna varðandi barnið.
Heilsuvernd skólabarna tekur við þegar ung- og smábarnavernd lýkur.
Hjúkrunarfræðingar og læknar á heilsugæslustöðinni sjá um heilsuvernd skólabarna á þjónustusvæði stöðvarinnar.
- Hraunvallaskóli
- Öldutúnsskóli
- Víðistaðaskóli-Engidalsskóli
- Barnaskóli Hjallastefnunnar
- Skarðshlíðarskóli
Hægt er að fá símasamband við skólahjúkrunarfræðingana í gegnum skiptiborð skólanna.
Heilsuverndin tekst á við heilsuáskoranir fullorðinsára í heilsueflandi móttöku.
Þar aðstoðum við þig við heilbrigðan lífsstíl með mælingum, ráðgjöf og stuðningi.
Oft kemur heilsueflandi móttaka til aðstoðar í framhaldi af viðtali við lækni en þú getur líka haft samband við hjúkrunarfræðing á stöðinni þinni ef þú þarft á þessari þjónustu að halda.
Við höfum það að leiðarljósi að mæta fólki þar sem það er statt og gera því kleift að búa sem lengst á eigin heimili.
Hafðu samband við okkur og pantaðu viðtal hjá hjúkrunarfræðingi í Heilsuvernd eldra fólks.
Í viðtölum eru m.a. veittar upplýsingar um þá þjónustu sem eldri borgurum stendur til boða í nærsamfélaginu. Við greinum áhættuþætti varðandi heilsufar og ráðleggjum um fyrirbyggjandi aðgerðir og meðhöndlun sjúkdóma svo eldra fólk viðhaldi sem lengst andlegri, líkamlegri og félagslegri færni sinni.
Þeir sem eru 70 ára og eldri eru hvattir til að panta tíma hjá okkur í almennt eftirlit þar sem heimilislæknir fer yfir lyfjalista, mælir blóðþrýsting, blóðsykur og fleira ef þarf.
Leghálsskimun
Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar annast sýnatöku fyrir skimun vegna krabbameins í leghálsi.
Skimanir eru á stöðinni fyrir hádegi á miðvikudögum og fyrir hádegi á fimmtudögum.
Ef það er komið að þér í skimun má panta tíma á mínum síðum heilsuveru eða með símtali.
Lestu meira um leghálskrabbameinsskimun
Hreyfiseðill
Hreyfiseðill er meðferðarúrræði við sjúkdómum, sem vitað er að regluleg hreyfing getur haft umtalsverð áhrif á.
Heimilislæknar, hjúkrunarfræðingar og ljósmæður vísa til sjúkraþjálfara. Ef þú heldur að hreyfiseðill henti þér, pantar þú fyrst tíma hjá þínum lækni.
Þjónusta sálfræðinga
Læknar stöðvarinnar vísa til sálfræðinga þannig að fyrsta skrefið er að panta tíma hjá heimilislækni.
Ingibjörg Markúsdóttir sálfræðingur sinnir meðferð og ráðgjöf fyrir börn og unglinga.
Sólveig María Ólafsdóttir og Telma Sigurgeirsdóttir sálfræðingar sinnir meðferð og ráðgjöf fyrir fullorðna.
HAM námskeið
Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins býður upp á hugræna atferlismeðferð (HAM) fyrir fulllorðna.
HAM námskeið í hópi henta mörgum en ekki öllum og því er byrjað á kynningartíma fyrir þau sem hafa áhuga á að fara á HAM námskeið.
Nánari upplýsingar
Samvinna fyrir þig
Heilsugæslan Fjörður þjónar einkum íbúum Hafnarfjarðar en allir eru velkomnir á stöðina.
Við veitum samfellda þjónusta með hag einstaklingsins og fjölskyldunnar í huga. Fagleg afstaða er tekin til allra erinda og annað hvort leyst úr þeim eða ráðlagt um önnur úrræði.
Þjónustan byggir á sérþekkingu starfstétta og þverfaglegri samvinnu.
Um heilsugæslustöðina
Heilsugæslustöðvum er stýrt af svæðisstjóra.
Fagstjórar lækninga og hjúkrunar leiða faglegt starf.
- Svæðisstjóri og fagstjóri lækninga: Guðrún Gunnarsdóttir
- Fagstjóri hjúkrunar: Thelma Björk Árnadóttir
- Skrifstofustjóri: Guðrún Ægisdóttir
Personel | Personel | Telefon | |
---|---|---|---|
Áslaug Heiða Pálsdóttir | 513-5400 | ||
Berglind Anna Magnúsdóttir | 513-5400 | ||
Bryndís Björnsdóttir | 513-5400 | ||
Bryndís Dagmar Jónsdóttir | 513-5400 | ||
Brynja Baldursdóttir | 513-5400 | ||
Elín Fanney Hjaltalín | 513-5400 | ||
Gerða J. Viggósdóttir | 513-5400 | ||
Guðrún Gunnarsdóttir | Í leyfi | ||
Guðrún Inga Benediktsdóttir | Í leyfi | ||
Guðrún Jóhanna Georgsdóttir | 513-5400 | ||
Guðrún Ægisdóttir | 513-5400 | ||
Herdís Lína Halldórsdóttir | 513-5400 | ||
Hulda Kristín Guðmundsdóttir | 513-5400 | ||
Ilmur Dögg Níelsdóttir | 513-5400 | ||
Ingibjörg Markúsdóttir | 513-5400 | ||
Ingunn Bjarnadóttir | 513-5400 | ||
Jenný Kamilla Knútsdóttir | 513-5400 | ||
Jörundur Kristinsson | 513-5400 | ||
Margrét Kristín Kristjánsdóttir | 513-5400 | ||
María Hjaltadóttir | 513-5400 | ||
Ólafur Sveinbjörnsson | 513-5400 | ||
Sandra Ásgeirsdóttir | 513-5400 | ||
Sólveig María Ólafsdóttir | 513-5400 | ||
Stefanía G. Ámundadóttir | 513-5400 | ||
Steinunn Jóhannsdóttir | 513-5400 | ||
Svanhildur Lísa Leifsdóttir | Í leyfi | ||
Telma Sigurgeirsdóttir | 513-5400 | ||
Thelma B. Árnadóttir | 513-5400 | ||
Thelma Magnúsdóttir | 513-5400 | ||
Tinna Bjarnadóttir | 513-5400 | ||
Tinna Lind Gunnarsdóttir | 513-5400 | ||
Vilborg Hafsteinsdóttir | 513-5400 | ||
Þóra Ingibjörg Sigurjónsdóttir | 513-6400 | ||
Þórdís Björg Kristjánsdóttir | 513-5400 |