Má bjóða þér að skrá þig rafrænt á Heilsugæsluna Garðabæ?
Almennar upplýsingar
Heilsugæslan er opin 8:00 - 17:00
Svarað er í sima 8:00 til 16:00
Bráð erindi
1700 síminn og netspjall Heilsuveru veita ráðgjöf og geta komið erindum í farveg milli kl. 8 og 17. 1700 síminn er opinn allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru er opið frá kl. 8 til 22.
Viltu skrá þig hjá okkur?
Hvað viltu gera?
Þú getur séð hvaða stöð er þín á Mínum síðum Heilsuveru og í Réttindagátt sjúkratrygginga.
Þú getur skráð þig á heilsugæslustöð að eigin vali í Réttindagátt eða á stöðinni sjálfri.
Öllum er velkomið á skrá sig á stöðina og við tökum vel á móti þér.
Lyfjasíminn er 513-5502 milli kl. 10:00 og 12:00 virka daga.
Líka er hægt að óska eftir endurnýjun á mínum síðum Heilsuveru.
Það er alltaf hægt að fá símasamband við hjúkrunarfræðing sem kemur erindi þínu í farveg eða leiðbeinir þér með önnur úrræði
Blóðprufur eru að jafnaði teknar milli kl. 8:15 og 9:30.
Bóka þarf tíma og beiðni þarf alltaf að liggja fyrir.
Örugg gagnaskil
Hægt er að senda gögn með öruggum hætti til Heilsugæslunnar Garðabæ með Signet transfer. Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki. Hlekkur í örugg gagnaskil
Öll eru velkomin á stöðina
Heilsugæslan Garðabæ þjónar fyrst og fremst íbúum Garðabæjar, en öll eru velkomin á stöðina. Skráning er í gegnum mínar síður á island.is.
Nánari upplýsingar um stöðina og þjónustu hennar eru í flipunum hér fyrir ofan: Læknisþjónusta, Opin móttaka, Heilsuverndin, Sálfræðiþjónusta og Um stöðina.
Með rafrænum skilríkjum er hægt að bóka tíma og endurnýja lyf á mínum síðum á Heilsuvera.is
Við tökum vel á móti þér
Hvað hentar þér best?
Það eru nokkrar leiðir að þjónustu læknanna okkar.
Hvaða leið hentar þér best?
Heimilislæknar á stöðinni eru með bókaða viðtalstíma frá kl. 8 - 16 og er hver tími 20 mínútur.
Þú bókar tíma í gegnum mínar síður á Heilsuveru eða með því að hringja á stöðina.
Á hverjum degi eru fráteknir tímar sem eru ætlaðir fyrir skyndileg veikindi.
Hægt er að bóka samdægurstíma í síma 513-5500.
Læknar stöðvarinnar með síðdegisvakt, mánudaga til föstudaga milli kl. 16 og 17.
Bóka þarf tíma á síðdegisvaktina.
Í símaviðtali svara læknar stuttorðum fyrirspurnum, veita einfaldar ráðleggingar og/eða gefa upplýsingar um niðurstöður rannsókna.
Símtal við lækni þarf að panta í síma 513-5502 milli kl. 8:30 og 9:30.
Hægt er að óska eftir lyfjaendurnýjun rafrænt eða í síma. Þar er hægt að endurnýja lyf sem tekin eru að staðaldri og ávísað hefur verið af læknum stöðvarinnar.
Venjulega eru þessar lyfjaendurnýjanir tilbúnar til afgreiðslu í lyfjaverslunum eftir kl. 16:00 sama dag.
Rafræn lyfjaendurnýjun
Einfaldast er að óska eftir lyfjaendurnýjun í Heilsuvera.is. Þú þarft að hafa rafræn skilríki.
Lyfjaendurnýjun í síma
Lyfjaendurnýjun er virka daga frá kl. 10:00 til 12:00 í síma 513-5502. Ritarar taka við beiðnum um endurnýjun og koma þeim til viðkomandi læknis.
Ef þörf er á veikindavottorði vegna skóla eða vinnu er hægt að sækja um það á heilsuvera.is.
Hafa skal samband við lækni vegna lengri veikinda (meira en vika) og annarra vottorða.
Heimilislæknar gera tilvísanir til sérgreinalækna ef þarf vegna mála sem þeir hafa haft aðkomu að.
Þegar farið er til sérgreinalækna vinsamlegast biðjið þá um að senda heimilislækni læknabréf.
Læknar stöðvarinnar
Hjá okkur starfa sérfræðingar í heimilislækningum en einnig almennir læknar, sérnámslæknar og unglæknar.
- Áslaug Gunnarsdóttir, sérfræðingur í heimilislækningum
- Ásmundur Jónasson, sérfræðingur í heimilislækningum
- Gerður A. Árnadóttir, sérfræðingur í heimilislækningum
- Guðrún Hreinsdóttir, sérfræðingur í heimilislækningum
- Hafije Zogaj, sérfræðingur í heimilislækningum
- Héðinn Sigurðsson, sérfræðingur í heimilislækningum
- Margrét Lára Jónsdóttir, sérfræðingur í heimilislækningum
1700 síminn er fyrsta stoppið í heilbrigðiskerfinu.
Forflokkun erinda
Með þessu viljum við tryggja rétta þjónustu á réttum stað og réttum tíma. Skjólstæðingar stöðvarinnar fá þá upplýsingar og ráðgjöf strax í stað þess að mæta á staðinn.
Smáslys og bráð veikindi
Fyrsta skrefið er alltaf að hringja í síma 1700. Þar er erindið metið og gefinn tími ef þarf.
Ekki er hægt að mæta í móttöku án þess að eiga bókaðan tíma.
Ráðgjöf í síma 1700
Hægt er að hringja í síma 1700 allan sólarhringinn.
Þar veita hjúkrunarfræðingar ráðgjöf þegar um er að ræða veikindi, vanlíðan, óþægindi eða slys.
Til dæmis er algengt að foreldrar með lasin börn fái ráðleggingar varðandi umönnun og aðstoð við að meta þörf fyrir frekari þjónustu.
Einnig leita margir ráða vegna lyfjatöku eða vantar leiðbeiningar til að rata um heilbrigðiskerfið.
Bókuð móttaka
Í bókaðri móttöku veita hjúkrunarfræðingar fjölbreytta þjónustu.
Til dæmis ferðamannaheilsuvernd, sárameðferð og saumatökur.
Einnig eru gerðar ýmsar rannsóknir og mælingar, t.d. mælingar á blóðþrýstingi
Heilsuvernd mæðra, ung- og smábarna, skólabarna, eldra fólks og allra hinna
Við fylgjumst með heilsu og þroska frá móðurkviði til unglingsára í mæðravernd, ung- og smábarnavernd og heilsuvernd skólabarna.
Á fullorðinsárum bjóðum við aðstoð við heilsueflingu með ráðgjöf, eftirliti og bólusetningum og heilsuvernd sem er ætluð eldri borgurum.
Heilsuvernd og heilsuefling
Heilsuverndin hefst á mæðravernd.
Mæðraverndarþjónustan er ókeypis og verðandi mæður geta annað hvort farið á heilsugæslustöð í sínu hverfi eða valið aðra stöð og skráð sig á hana.
Viðtöl og skoðanir eru í boði frá upphafi meðgöngu og fram að fæðingu. Fyrsta viðtal við ljósmóður er gjarnan í síma fljótlega eftir að þungun er staðfest. Fjöldi mæðraskoðana fer svo eftir aðstæðum, oftast 8-10 skipti. Milli skoðana er hægt að fá símaráðgjöf hjá ljósmóður.
Ung- og smábarnavernd tekur við af mæðravernd þegar fjölskyldan kemur heim og heimaþjónustu ljósmæðra lýkur.
Fyrstu vikurnar eftir fæðingu fara hjúkrunarfræðingar stöðvarinnar í vitjanir heim til fjölskyldunnar. Foreldrar eru því beðnir um að hafa samband við hjúkrunarfræðing fljótlega eftir að heim er komið. Fyrsta læknisskoðun á heilsugæslustöðinni er svo við 6 vikna aldur.
Síðan eru reglubundnar skoðanir hjá hjúkrunarfræðingi og lækni til skólaaldurs. Þá fylgjumst við með vexti og þroska barnanna og bólusetjum. Í skoðunum ráðleggjum við m.a. um brjóstagjöf, svefnvandamál, aga og uppeldi, matarræði og slysavarnir. Auk þess er alltaf hægt að fá samband við hjúkrunarfræðing ef spurningar vakna varðandi barnið.
Heilsuvernd skólabarna tekur við þegar ung- og smábarnavernd lýkur.
Hjúkrunarfræðingar og læknar á heilsugæslustöðinni sjá um heilsuvernd skólabarna í grunnskólum Garðabæjar
- Flataskóli
- Hofsstaðaskóli
- Garðaskóli
- Sjálandsskóli
- Barnaskóli Hjallastefnunnar
- Álftanesskóli
- Alþjóðaskólinn
- Urriðaholtsskóli
Hægt er að fá símasamband við skólahjúkrunarfræðingana í gegnum skiptiborð skólanna.
Heilsuverndin tekst á við heilsuáskoranir fullorðinsára í heilsueflandi móttöku.
Þar aðstoðum við þig við heilbrigðan lífsstíl með mælingum, ráðgjöf og stuðningi.
Oft kemur heilsueflandi móttaka til aðstoðar í framhaldi af viðtali við lækni en þú getur líka haft samband við hjúkrunarfræðing á stöðinni þinni ef þú þarft á þessari þjónustu að halda.
Leghálsskimun
Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar annast sýnatöku fyrir skimun vegna krabbameins í leghálsi.
Ef það er komið að þér í skimun má panta tíma á mínum síðum heilsuveru eða með símtali.
Lestu meira um leghálskrabbameinsskimun
Hreyfiseðill
Hreyfiseðill er meðferðarúrræði við sjúkdómum, sem vitað er að regluleg hreyfing getur haft umtalsverð áhrif á.
Heimilislæknar, hjúkrunarfræðingar, ljósmæður og sálfræðingar vísa til sjúkraþjálfara. Ef þú heldur að hreyfiseðill henti þér, pantar þú fyrst tíma hjá þínum lækni.
- Sjúkraþjálfari stöðvarinnar er Margrét H. Indriðadóttir
- Lestu meira um hreyfiseðla
Þjónusta sálfræðinga
Læknar stöðvarinnar vísa til sálfræðinga þannig að fyrsta skrefið er að panta tíma hjá heimilislækni.
Magnús Baldursson sálfræðingur sinnir meðferð og ráðgjöf fyrir börn og unglinga.
Kristbjörg Þórisdóttir sálfræðingur sinnir meðferð og ráðgjöf fyrir fullorðna.
HAM námskeið
Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins býður upp á hugræna atferlismeðferð (HAM) fyrir fulllorðna.
HAM námskeið í hópi henta mörgum en ekki öllum og því er byrjað á kynningartíma fyrir þau sem hafa áhuga á að fara á HAM námskeið.
Nánari upplýsingar
Samvinna fyrir þig
Heilsugæslan Garðabæ þjónar einkum íbúum Garðabæjar en allir eru velkomnir á stöðina.
Við veitum samfellda þjónusta með hag einstaklingsins og fjölskyldunnar í huga. Fagleg afstaða er tekin til allra erinda og annað hvort leyst úr þeim eða ráðlagt um önnur úrræði.
Þjónustan byggir á sérþekkingu starfstétta og þverfaglegri samvinnu.
Um heilsugæslustöðina
Heilsugæslustöðvum er stýrt af svæðisstjóra.
Fagstjórar lækninga og hjúkrunar leiða faglegt starf
- Svæðisstjóri og fagstjóri lækninga: Ásmundur Jónasson
- Fagstjóri hjúkrunar: Margrét Björnsdóttir
- Skrifstofustjóri: Anna Garðarsdóttir
Personel | Personel | Telefon | |
---|---|---|---|
Aldís Erna Pálsdóttir | 513-5500 | ||
Anna Garðarsdóttir | 513-5500 | ||
Anna Kristín Árnadóttir | 513-5500 | ||
Anna Lilja Sigurðardóttir | 513-5500 | ||
Arnar Jan Jónsson | 513-5500 | ||
Áslaug Gunnarsdóttir | 513-5500 | ||
Áslaug Heiða Pálsdóttir | 513-5500 | ||
Ásmundur Jónasson | 513-5500 | ||
Dagmar Jóna Elvarsdóttir | 513-5500 | ||
Erna Lind Davíðsdóttir | 513-5500 | ||
Erna Margrét Rós Sigurðardóttir | 513-5500 | ||
Eva María Gísladóttir | 513-5500 | ||
Gerður A. Árnadóttir | 513-5500 | ||
Guðrún Hreinsdóttir | 513-5500 | ||
Guðrún Ólafía Sigurðardóttir | 513-5500 | ||
Hafije Zogaj | 513-5500 | ||
Halla Magnúsdóttir | 513-5500 | ||
Helga Guðmundsdóttir Bender | 513-5500 | ||
Héðinn Sigurðsson | 513-5500 | ||
Hilda Björk Indriðadóttir | 513-5500 | ||
Hildur Ýr Hvanndal | 513-5500 | ||
Hróðmar H. Helgason | 513-5500 | ||
Hrund Hjaltested | 513-5500 | ||
Indíana Elín Ingólfsdóttir | 513-5500 | ||
Ingibjörg Guðmundsdóttir | 513-5500 | ||
Ingibjörg Heiðdal | 513-5500 | ||
Ingveldur Ella Stefánsdóttir | 513-5500 | ||
Ísabella Hlynsdóttir | 513-5500 | ||
Júlía Linda Ómarsdóttir | 513-5500 | ||
Kristbjörg Þórisdóttir | 513-5500 | ||
Kristín Blöndal Magnúsdóttir | 513-5500 | ||
Kristín Jóna Kristjónsdóttir | 513-5500 | ||
Magnús Baldursson | 513-5500 | ||
Margrét Björnsdóttir | 513-5500 | ||
Margrét H. Indriðadóttir | 513-5500 | ||
Margrét Lára Jónsdóttir | 513-5500 | ||
Nadía Lind Atladóttir | 513-5500 | ||
Nína Björg Magnúsdóttir | 513-5500 | ||
Olga Hrund Sverrisdóttir | 513-5500 | ||
Ragnheiður Elín Samúelsdóttir | 513-5500 | ||
Sindri Ellertsson Csillag | 513-5500 | ||
Svava Gústavsdóttir | 513-5500 | ||
Unnur Lára Hjálmarsdóttir | 513-5500 | ||
Vala Karen Gunnarsdóttir | 513-5500 | ||
Þórhildur Helga Guðjónsdóttir | 513-5500 |