Síðdegisvakt er því miður lokuð. Vinsamlegast leitið til annarra heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu og Læknavaktina eftir kl. 17:00.
Hjúkrunarfræðingar á Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar veita ráðgjöf í netspjalli á heilsuvera.is alla daga milli kl. 8:00 og 22:00 og í síma 1700 allan sólarhringinn
Almennar upplýsingar
Contact us
Bráð erindi
1700 síminn og netspjall Heilsuveru veita ráðgjöf og geta komið erindum í farveg milli kl. 8 og 17. 1700 síminn er opinn allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru er opið frá kl. 8 til 22.
Síðdegisvakt lokuð
Hvað viltu gera?
Þú getur séð hvaða stöð er þín á Mínum síðum Heilsuveru og í Réttindagátt sjúkratrygginga.
Þú getur skráð þig á heilsugæslustöð að eigin vali í Réttindagátt eða á stöðinni sjálfri.
Öllum er velkomið á skrá sig á stöðina og við tökum vel á móti þér.
Blóðsýni eru tekin milli kl. 8:00 og 10:00 alla virka daga
Bóka þarf tíma í blóðtöku og þarf alltaf beiðni frá lækni að liggja fyrir.
Þvagsýni þurfa helst að berast fyrir kl. 10:00. Best er að koma með fyrsta morgunþvag (miðbunuþvag) nema annað hafi verið tekið fram.
Tímapantanir og nánari upplýsingar í síma 513-5600.
Lyfjasíminn er 513-5602 á milli kl. 9:00 og 11:00 alla virka daga.
Líka er hægt að óska eftir endurnýjun á mínum síðum Heilsuveru.
Þú getur bókað tíma í heilsuveru eða með því að hringja á stöðina.
Ef þú getur ekki beðið eru samdægurstímar, skyndimóttaka eða síðdegisvakt möguleiki.
Við bendum á símaráðgjöf hjúkrunarfræðinga heilsugæslunnar sem er allan sólarhringinn, alla daga í síma 1700 og í netspjalli á heilsuvera.is frá kl. 8:00 til 22:00.
Örugg gagnaskil
Hægt er að senda gögn með öruggum hætti til Heilsugæslunnar Grafarvogi með Signet transfer. Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki. Hlekkur í örugg gagnaskil
Allir eru velkomnir á stöðina
Heilsugæslan Grafarvogi þjónar fyrst og fremst íbúum Grafarvogs, en allir eru velkomnir á stöðina. Skráning er í gegnum mínar síður á island.is.
Nánari upplýsingar um stöðina og þjónustu hennar eru í flipunum hér fyrir ofan: Læknisþjónusta, Opin móttaka, Heilsuverndin, Sálfræðiþjónusta og Um stöðina.
Með rafrænum skilríkjum er hægt að bóka tíma, endurnýja lyf og senda einfaldar fyrirspurnir á mínum síðum á Heilsuvera.is
Við tökum vel á móti þér
Það eru nokkrar leiðir að þjónustu læknanna okkar. Hvaða leið hentar þér best?
Það eru nokkrar leiðir að þjónustu læknanna okkar. Hvaða leið hentar þér best?
Heimilislæknar á stöðinni eru með bókaða viðtalstíma frá kl. 9 - 15 og er hver tími 20 mínútur.
Þú bókar tíma í gegnum mínar síður á Heilsuveru eða með því að hringja á stöðina.
Á hverjum degi eru fráteknir nokkrir tímar hjá læknum sem er hægt að bóka samdægurs. Best er að bóka þessa tíma sem fyrst eftir kl. 8:00 sama dag, því þeir fara fljótt.
Móttakan er opin frá kl. 8 til 16 og þar sinna hjúkrunarfræðingar fjölbreyttum erindum fólks á öllum aldri.
Hjúkrunarfræðingar vísa þér áfram til vaktlæknis ef ástæða þykir.
Síðdegisvaktin er því miður lokuð tímabundið.
Við bendum á Læknavaktina eftir kl. 17:00.
Í símaviðtali svara læknar stuttorðum fyrirspurnum, veita einfaldar ráðleggingar og/eða gefa upplýsingar um niðurstöður rannsókna.
Oft er þægilegra að senda stuttar fyrirspurnir í gegnum í mínar síður í Heilsuveru. Milli kl. 8 og 16 er líka alltaf hægt að fá símasamband við hjúkrunarfræðing í síma 513-5600.
Hringið í síma 513-5600 til að panta símtal við teymi heimilislæknis.
Hægt er að óska eftir lyfjaendurnýjun rafrænt eða í síma. Þar er hægt að endurnýja lyf sem tekin eru að staðaldri og ávísað hefur verið af læknum stöðvarinnar.
Venjulega eru þessar lyfjaendurnýjanir tilbúnar til afgreiðslu í lyfjaverslunum eftir kl. 16:00 sama dag.
Rafræn lyfjaendurnýjun
Einfaldast er að óska eftir lyfjaendurnýjun í Heilsuvera.is. Þú þarft að hafa rafræn skilríki.
Lyfjaendurnýjun í síma
Lyfjaendurnýjun er frá kl. 9:00 til 11:00 virka daga í síma 513-5602. Ritarar taka við beiðnum um endurnýjun.
Veikindavottorð vegna skóla eða vinnu eru sótt á heilsuvera.is
Ef vottorðið er vegna veikinda sem standa lengur en sjö daga þarf að hafa samband við stöðina.
Heimilislæknar gera tilvísanir til sérgreinalækna ef þarf vegna mála sem þeir hafa haft aðkomu að.
Þegar farið er til sérgreinalækna vinsamlegast biðjið þá um að senda heimilislækni læknabréf.
Læknar stöðvarinnar
Hjá okkur starfa sérfræðingar í heimilislækningum en einnig almennir læknar, sérnámslæknar og unglæknar.
- Guðmundur Benediktsson
- Guðmundur Karl Sigurðsson
- Hallgrímur Kjartansson
- Ingvar Ingvarsson
- Sigurjón Kristinsson
- Sveinbjörn Auðunsson
- Þórarinn H. Þorbergsson
Við erum á vaktinni allan daginn
Símaþjónusta hjúkrunarfræðinga
Hægt er að fá símaráðgjöf hjá hjúkrunarfræðingi frá kl. 8:00 til 16:00, alla virka daga í síma 513-5600.
Ef hjúkrunarfræðingurinn er upptekinn tekur móttökuritari niður skilaboð og haft er samband um leið og færi gefst.
Einnig bendum við á símaráðgjöf hjúkrunarfræðinga heilsugæslunnar allan sólarhringinn alla daga í síma 1700 og í netspjalli á heilsuvera.is frá kl. 8:00 til 22:00.
Skyndimóttaka fyrir smáslys og bráð veikindi
Það er líka hægt að koma í móttökuna milli kl. 8:00 og 15:00.
Öllum erindum sem koma á vaktina er sinnt, annaðhvort með því að veita þjónustuna á staðnum eða vísa í þann farveg sem við á í hverju tilviki.
Bókuð móttaka
Einnig er hægt að bóka tíma í móttöku hjúkrunarfræðinga.
Til dæmis fyrir sáraskiptingar og bólusetningar o.fl.
Hvað er í gert í opnu móttökunni?
Algengt er að fólk leiti aðstoðar eða ráðgjafar þegar um er að ræða veikindi, vanlíðan, óþægindi eða slys.
Til dæmis er algengt að foreldrar með lasin börn fái ráðleggingar varðandi umönnun og aðstoð við að meta þörf fyrir frekari þjónustu.
Einnig leita margir ráða vegna lyfjatöku eða vantar leiðbeiningar til að rata um heilbrigðiskerfið.
Hjúkrunarfræðingar sinna einnig erindum sem flokkast undir heilsuvernd, forvarnir og lífsstíl
Framkvæmdar eru rannsóknir og mælingar, t.d. mælingar á blóðþrýstingi
Heilsuvernd mæðra, ung- og smábarna, skólabarna, eldra fólks og allra hinna
Við fylgjumst með heilsu og þroska frá móðurkviði til unglingsára í mæðravernd, ung- og smábarnavernd og heilsuvernd skólabarna.
Á fullorðinsárum bjóðum við aðstoð við heilsueflingu með ráðgjöf, eftirliti og bólusetningum og heilsuvernd sem er ætluð eldri borgurum.
Heilsuvernd og heilsuefling
Heilsuverndin hefst á mæðravernd.
Mæðraverndarþjónustan er ókeypis og verðandi mæður geta annað hvort farið á heilsugæslustöð í sínu hverfi eða valið aðra stöð og skráð sig á hana.
Ljósmæður í mæðravernd:
- Helga Ólöf Eiríksdóttir
- Hermína Stefánsdóttir
Viðtöl og skoðanir eru í boði frá upphafi meðgöngu og fram að fæðingu. Fyrsta viðtal við ljósmóður er gjarnan í síma fljótlega eftir að þungun er staðfest. Fjöldi mæðraskoðana fer svo eftir aðstæðum, oftast 8-10 skipti. Milli skoðana er hægt að fá símaráðgjöf hjá ljósmóður.
Ung- og smábarnavernd tekur við af mæðravernd þegar fjölskyldan kemur heim og heimaþjónustu ljósmæðra lýkur.
Fyrstu vikurnar eftir fæðingu fara hjúkrunarfræðingar stöðvarinnar í vitjanir heim til fjölskyldunnar. Foreldrar eru því beðnir um að hafa samband við hjúkrunarfræðing fljótlega eftir að heim er komið. Fyrsta læknisskoðun á heilsugæslustöðinni er svo við 6 vikna aldur.
Síðan eru reglubundnar skoðanir hjá hjúkrunarfræðingi og lækni til skólaaldurs. Þá fylgjumst við með vexti og þroska barnanna og bólusetjum. Í skoðunum ráðleggjum við m.a. um brjóstagjöf, svefnvandamál, aga og uppeldi, matarræði og slysavarnir. Auk þess er alltaf hægt að fá samband við hjúkrunarfræðing ef spurningar vakna varðandi barnið.
Heilsuvernd skólabarna tekur við þegar ung- og smábarnavernd lýkur.
Hjúkrunarfræðingar og læknar á heilsugæslustöðinni sjá um heilsuvernd skólabarna á þjónustusvæði stöðvarinnar.
Hægt er að fá símasamband við skólahjúkrunarfræðingana í gegnum skiptiborð skólanna.
- Borgaskóli - Hildur Birna Helgadóttir skólahjúkrunarfræðingur
- Engjaskóli - Hildur Birna Helgadóttir skólahjúkrunarfræðingur
- Foldaskóli -Steinunn Erla Eðvaldsdóttir skólahjúkrunarfræðingur
- Húsaskóli - Júlía Werner skólahjúkrunarfræðingur
- Rimaskóli - Kristjana Þuríður Þorláksdóttir skólahjúkrunarfræðingur
- Víkurskóli - Eyrún Ösp Guðmundsdóttir skólahjúkrunarfræðingur
Heilsuverndin tekst á við heilsuáskoranir fullorðinsára í heilsueflandi móttöku.
Þar aðstoðum við þig við heilbrigðan lífstíl með mælingum, ráðgjöf og stuðningi.
Oft kemur heilsueflandi móttaka til aðstoðar í framhaldi af viðtali við lækni en þú getur líka haft samband við hjúkrunarfræðing á stöðinni þinni ef þú þarft á þessari þjónustu að halda.
Við höfum það að leiðarljósi að mæta fólki þar sem það er statt og gera því kleift að búa sem lengst á eigin heimili.
Hafðu samband við okkur og pantaðu viðtal hjá hjúkrunarfræðingi í Heilsuvernd eldra fólks.
Í viðtölum eru m.a. veittar upplýsingar um þá þjónustu sem eldri borgurum stendur til boða í nærsamfélaginu. Við greinum áhættuþætti varðandi heilsufar og ráðleggjum um fyrirbyggjandi aðgerðir og meðhöndlun sjúkdóma svo eldra fólk viðhaldi sem lengst andlegri, líkamlegri og félagslegri færni sinni.
Þeir sem eru 70 ára og eldri eru hvattir til að panta tíma hjá okkur í almennt eftirlit þar sem heimilislæknir fer yfir lyfjalista, mælir blóðþrýsting, blóðsykur og fleira ef þarf.
Leghálsskimun
Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar annast sýnatöku fyrir skimun vegna krabbameins í leghálsi.
Skimanir eru á stöðinni fyrir hádegi á fimmtudögum.
Ef það er komið að þér í skimun má panta tíma á mínum síðum heilsuveru eða með símtali.
Lestu meira um leghálskrabbameinsskimun
Hreyfiseðill
Hreyfiseðill er meðferðarúrræði við sjúkdómum, sem vitað er að regluleg hreyfing getur haft umtalsverð áhrif á.
Heimilislæknar, hjúkrunarfræðingar og ljósmæður vísa til sjúkraþjálfara. Ef þú heldur að hreyfiseðill henti þér, pantar þú fyrst tíma hjá þínum lækni.
- Sjúkraþjálfari stöðvarinnar er Margrét H. Indriðadóttir
- Lestu meira um hreyfiseðla
Þjónusta sálfræðinga
Læknar stöðvarinnar vísa til sálfræðinga þannig að fyrsta skrefið er að panta tíma hjá heimilislækni.
HAM námskeið
Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins býður upp á hugræna atferlismeðferð (HAM) fyrir fulllorðna.
HAM námskeið í hópi henta mörgum en ekki öllum og því er byrjað á kynningartíma fyrir þau sem hafa áhuga á að fara á HAM námskeið.
Nánari upplýsingar
Samvinna fyrir þig
Heilsugæslan Grafarvogi þjónar einkum íbúum Grafarvogs en allir eru velkomnir a stöðina.
Við veitum samfellda þjónusta með hag einstaklingsins og fjölskyldunnar í huga. Fagleg afstaða er tekin til allra erinda og annað hvort leyst úr þeim eða ráðlagt um önnur úrræði.
Þjónustan byggir á sérþekkingu starfstétta og þverfaglegri samvinnu.
Um heilsugæslustöðina
Heilsugæslustöðvum er stýrt af svæðisstjóra.
Fagstjórar lækninga og hjúkrunar leiða faglegt starf.
- Svæðisstjóri og fagstjóri lækninga: Guðmundur Karl Sigurðsson
- Fagstjóri hjúkrunar: Eyrún Ösp Guðmundsdóttir
- Skrifstofustjóri: Þórunn Sara Guðbrandsdóttir
HHStaff | Jobtitle | Phone | |
---|---|---|---|
Anna Marín Þórsdóttir | 513-5600 | ||
Anna Rós Jensdóttir | 513-5600 | ||
Anna Sigríður Hermundsdóttir | Í leyfi | ||
Auður Stefánsdóttir | Registered nurse | 513-5600 | |
Ásthildur E. Erlingsdóttir | Psychologist | 513-5600 | |
Eyrún Ösp Guðmundsdóttir | 513-5600 | ||
Guðmundur Benediktsson | 513-5600 | ||
Guðmundur Karl Sigurðsson | 513-5600 | ||
Hafdís Friðjónsdóttir | 513-5600 | ||
Hafdís Hallgrímsdóttir | 513-5600 | ||
Hallgrímur Kjartansson | 513-5600 | ||
Helga Ólöf Eiríksdóttir | Midwife | 513-5600 | |
Hermína Stefánsdóttir | 513-5600 | ||
Hildur Birna Helgadóttir | 513-5600 | ||
Ingvar Ingvarsson | 513-5600 | ||
Jakob Reynisson | 513-5600 | ||
Julia Werner | Registered nurse | 513-5600 | |
Kristín Jóna Vigfúsdóttir | Registered nurse | 513-5600 | |
Kristjana Þuríður Þorláksdóttir | Registered nurse | 513-5600 | |
Lísa María Friðriksdóttir | 513-5600 | ||
Margrét H. Indriðadóttir | Physiotherapist | 616-0791 | |
Margrét Valgeirsdóttir | 513-5600 | ||
Ricky Alexander Valle Fikri | 513-5600 | ||
Signý Layeb Njálsdóttir | 513-5600 | ||
Sigríður Erlingsdóttir | Registered nurse | 513-5600 | |
Sigurjón Kristinsson | 513-5600 | ||
Sólveig Helga Sigfúsdóttir | Registered nurse | 513-5600 | |
Steinunn Erla Eðvaldsdóttir | Registered nurse | 513-5600 | |
Sveinbjörg Jónsdóttir | 513-5600 | ||
Sveinbjörn Auðunsson | 513-5600 | ||
Þórarinn H. Þorbergsson | General practitioner | 513-5600 | |
Þórunn Sara Guðbrandsdóttir | 513-5600 |