Heilsugæslan Hlíðum er nú í Skógarhlíð 18. 

Almennar upplýsingar

icon

Contact us



Svarað er í sima 8:00 til 16:00
icon

Bráð erindi



1700 síminn og netspjall Heilsuveru veita ráðgjöf og geta komið erindum í farveg milli kl. 8 og 17. 1700 síminn er opinn allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru er opið frá kl. 8 til 22.

Viltu skrá þig hjá okkur?

Má bjóða þér að skrá þig rafrænt á Heilsugæsluna Hlíðum?

Hvað viltu gera?

Örugg gagnaskil

Hægt er að senda gögn með öruggum hætti til Heilsugæslunnar Hlíðum með Signet transfer. Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki. Hlekkur í örugg gagnaskil

Allir eru velkomnir á stöðina

Heilsugæslan Hlíðum þjónar fyrst og fremst íbúum Hlíðasvæðis, sem takmarkast af Snorrabraut og Kringlumýrarbraut og sjóa á milli, en allir eru velkomnir á stöðina. Skráning er í gegnum mínar síður á island.is.

 

Nánari upplýsingar um stöðina og þjónustu hennar  eru í flipunum hér fyrir ofan: Læknisþjónusta, Opin móttaka, Heilsuverndin, Sálfræðiþjónusta og Um stöðina.

 

Með rafrænum skilríkjum er hægt að bóka tíma, endurnýja lyf og senda einfaldar fyrirspurnir á mínum síðum á Heilsuvera.is

Við tökum vel á móti þér

Hvað hentar þér best?

Það eru nokkrar leiðir að þjónustu læknanna okkar.

Hvaða leið hentar þér best?

Læknar stöðvarinnar

Hjá okkur starfa sérfræðingar í heimilislækningum en einnig almennir læknar, sérnámslæknar og unglæknar.

  • Alexander Elfarsson sérnámslæknir í heimilislækningum
  • Geir Thorsteinsson heimilislæknir
  • Gísli Gunnar Gunnlaugsson heimilislæknir
  • Hildur Svavarsdóttir heimilislæknir
  • Jón Halldór Hjartarson sérnámslæknir í heimilislækningum
  • Kristín Erla Kristjánsdóttir læknir 
  • Óskar Sesar Reykdalsson heimilislæknir
  • Reynir Björnsson heimilislæknir
  • Ruth Auffenberg heimilislæknir

Við erum á vaktinni allan daginn

Símaþjónusta hjúkrunarfræðinga

 

Hægt er að fá símaráðgjöf  hjá  hjúkrunarfræðingi frá kl. 8:00 til 16:00, alla virka daga  í síma 513-5900.

Ef hjúkrunarfræðingurinn er upptekinn tekur móttökuritari niður skilaboð og haft er samband um leið og færi gefst.

 

Einnig bendum við á símaráðgjöf hjúkrunarfræðinga heilsugæslunnar allan sólarhringinn alla daga í síma 1700 og í netspjalli á heilsuvera.is frá kl. 8:00 til 22:00.

 

Skyndimóttaka fyrir smáslys og bráð veikindi

 

Það er líka hægt að koma í móttökuna á dagvinnutíma.

Öllum erindum sem koma á vaktina er sinnt, annaðhvort með því að veita þjónustuna á staðnum eða vísa í þann farveg sem við á í hverju tilviki.

 

Bókuð móttaka

 

Einnig er hægt að bóka tíma í móttöku hjúkrunarfræðinga.

Til dæmis fyrir sáraskiptingar og bólusetningar o.fl.

 

Hvað er í gert í opnu móttökunni?

Algengt er að fólk leiti aðstoðar eða ráðgjafar þegar um er að ræða veikindi, vanlíðan, óþægindi eða slys.

 

Til dæmis er algengt að foreldrar með lasin börn fái ráðleggingar varðandi umönnun og aðstoð við að meta þörf fyrir frekari þjónustu.

 

Einnig leita margir ráða vegna lyfjatöku eða vantar leiðbeiningar til að rata um heilbrigðiskerfið.

 

Hjúkrunarfræðingar sinna einnig erindum sem flokkast undir heilsuvernd, forvarnir og lífsstíl
 

Framkvæmdar eru rannsóknir og mælingar, t.d. mælingar á blóðþrýstingi

 

Lestu meira um opna móttöku heilsugæslustöðva

Heilsuvernd mæðra, ung- og smábarna, skólabarna, eldra fólks og allra hinna

Við fylgjumst með heilsu og þroska frá móðurkviði til unglingsára í mæðravernd, ung- og smábarnavernd og heilsuvernd skólabarna

Á fullorðinsárum bjóðum við aðstoð við heilsueflingu með ráðgjöf, eftirliti og bólusetningum og heilsuvernd sem er ætluð eldri borgurum.

Heilsuvernd og heilsuefling

Leghálsskimun

Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar annast sýnatöku fyrir skimun vegna krabbameins í leghálsi.

Skimanir eru á stöðinni hálfan dag í viku, til skiptist eftir hádegi á mánudögum, fyrir hádegi á þriðjudögum og fyrir hádegi á fimmtudögum. 

Ef það er komið að þér í skimun má panta tíma á mínum síðum heilsuveru eða með símtali. 

 

Lestu meira um leghálskrabbameinsskimun

Hreyfiseðill

Hreyfiseðill er meðferðarúrræði við sjúkdómum, sem vitað er að regluleg hreyfing getur haft umtalsverð áhrif á.

Heimilislæknar, ljósmæður og hjúkrunarfræðingar vísa til sjúkraþjálfara. Ef þú heldur að hreyfiseðill henti þér, pantar þú fyrst tíma hjá þínum lækni.

Þjónusta sálfræðinga

Læknar stöðvarinnar vísa til sálfræðinga þannig að fyrsta skrefið er að panta tíma hjá heimilislækni.

 

Rebekka Rut Lárusdóttir sálfræðingur sinnir meðferð og ráðgjöf fyrir börn og unglinga. 

Guðlaug Friðgeirsdóttir og Liv Anna Gunnarsdóttir sálfræðingar sinna meðferð og ráðgjöf fyrir fullorðna

 

HAM námskeið

Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins býður upp á hugræna atferlismeðferð (HAM) fyrir fulllorðna.

 

HAM námskeið í hópi henta mörgum en ekki öllum og því er byrjað á kynningartíma fyrir þau sem hafa áhuga á að fara á HAM námskeið. 

 

Nánari upplýsingar

Samvinna fyrir þig

Heilsugæslan Hlíðum þjónar fyrst og fremst íbúum Hlíðasvæðis er takmarkast af Snorrabraut og Kringlumýrarbraut og sjóa á milli, en allir eru velkomnir a stöðina.

Við veitum samfellda þjónusta með hag einstaklingsins og fjölskyldunnar í huga. Fagleg afstaða er tekin til allra erinda og annað hvort leyst úr þeim eða ráðlagt um önnur úrræði.

Þjónustan byggir á sérþekkingu starfstétta og þverfaglegri samvinnu.

Um heilsugæslustöðina

magnifier
HHStaffJobtitlePhoneEmail
Alexander Elfarsson513-5900
Anna Guðný HallgrímsdóttirMidwife Í leyfi
Anna Lillý MagnúsdóttirRegistered nurse513-5900
Anna María GuðnadóttirRegistered nurse513-5900
Anna Ólafsdóttir513-5900
Gabríela Auður HákonardóttirRegistered nurse513-5900
Geir ThorsteinssonGeneral practitioner513-5900
Gísli Gunnar Gunnlaugsson513-5900
Guðlaug Friðgeirsdóttir513-5900
Guðlaug Jóna Karlsdóttir513-5900
Gunnar Steinn Aðalsteinsson513-5900
Hafdís Ósk BaldursdóttirRegistered nurse513-5900
Heiða Brynja Heiðarsdóttir513-5900
Helga Líf Káradóttir513-5900
Hildur Svavarsdóttir513-5900
Jón Halldór HjartarsonMedical trainee in general practice513-5900
Jónas Ásmundsson513-5900
Kristín Erla Kristjánsdóttir513-5900
Kristín Helga EinarsdóttirMidwife513-5900
Kristrún María ÓlafsdóttirRegistered nurse513-5900
Liv Anna GunnellPsychologist513-5900
Lovísa Guðbrandsdóttir513-5900
María Gústavsdóttir513-5900
María SkaftadóttirRegistered nurse513-5000
Marín Björg GuðjónsdóttirMidwife513-5900
Matthea KristjánsdóttirRegistered nurse513-5900
Olga Lára Jónsdóttir513-5900
Óskar Sesar ReykdalssonGeneral practitioner513-5900
Ragnhildur Grétarsdóttir513-5900
Rebekka Rut Lárusdóttir513-5900
Reynir Björn BjörnssonGeneral practitioner513-5900
Ruth AuffenbergGeneral practitioner513-5900
Sandra Dröfn Thomsen513-5900
Sigríður Elísabet ÁrnadóttirRegistered nurse513-5900
Sigríður Margrét Þorbergsdóttir513-5900
Sóley HauksdóttirRegistered nurse513-5900
Unnur Guðrún Unnarsdóttir513-5900
Valgerður Bjarnadóttir513-5900