Má bjóða þér að skrá þig rafrænt á Heilsugæsluna Hvammi?
Almennar upplýsingar
Heilsugæslan er opin 8:00 - 17:00
Svarað er í sima 8:00 til 16:00
Bráð erindi
1700 síminn og netspjall Heilsuveru veita ráðgjöf og geta komið erindum í farveg milli kl. 8 og 17. 1700 síminn er opinn allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru er opið frá kl. 8 til 22.
Viltu skrá þig hjá okkur?
Hvað viltu gera?
Þú getur séð hvaða stöð er þín á Mínum síðum Heilsuveru og í Réttindagátt sjúkratrygginga.
Þú getur skráð þig á heilsugæslustöð að eigin vali í Réttindagátt eða á stöðinni sjálfri.
Öllum er velkomið á skrá sig á stöðina og við tökum vel á móti þér.
Lyfjasíminn er 513-5852 á milli kl. 8:00 og 10:00 alla virka daga.
Líka er hægt að óska eftir endurnýjun á mínum síðum Heilsuveru.
Þú getur bókað tíma í heilsuveru eða með því að hringja á stöðina.
Ef þú getur ekki beðið eru samdægurstímar, skyndimóttaka eða síðdegisvakt möguleiki.
Það er alltaf hægt að fá símasamband við hjúkrunarfræðing sem kemur erindi þínu í farveg eða leiðbeinir þér með önnur úrræði
Athuga þarf hvort nauðsynlegt sé að vera fastandi fyrir rannsókn.
Þvagsýni þurfa að berast fyrir kl. 9:30. Morgunþvag er æskilegt.
Örugg gagnaskil
Hægt er að senda gögn með öruggum hætti til Heilsugæslunnar Hvammi með Signet transfer. Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki. Hlekkur í örugg gagnaskil
Allir eru velkomnir á stöðina
Heilsugæslan Hvammi þjónar fyrst og fremst íbúum Kópavogs sem búa austan Digranesvegar og Bröttubrekku, sunnan Kópavogslækjar (Fífuhvamms) og sunnan Nýbýlavegar (með Hólmum), en allir eru velkomnir á stöðina. Skráning er í gegnum mínar síður á island.is.
Nánari upplýsingar um stöðina og þjónustu hennar eru í flipunum hér fyrir ofan: Læknisþjónusta, Opin móttaka, Heilsuverndin, Sálfræðiþjónusta og Um stöðina.
Með rafrænum skilríkjum er hægt að bóka tíma, endurnýja lyf og senda einfaldar fyrirspurnir á mínum síðum á Heilsuvera.is
Við tökum vel á móti þér
Hvað hentar þér best?
Það eru nokkrar leiðir að þjónustu læknanna okkar.
Hvaða leið hentar þér best?
Heimilislæknar á stöðinni eru með bókaða viðtalstíma frá kl. 8 - 16 og er hver tími 20 mínútur.
Þú bókar tíma í gegnum mínar síður á Heilsuveru eða með því að hringja á stöðina.
Í símaviðtali svara læknar stuttorðum fyrirspurnum, veita einfaldar ráðleggingar og/eða gefa upplýsingar um niðurstöður rannsókna.
Oft er þægilegra að senda stuttar fyrirspurnir í gegnum í mínar síður í Heilsuveru. Milli kl. 8 og 16 er líka alltaf hægt að fá símasamband við hjúkrunarfræðing í síma 513-5850.
- Baldur Helgi Möller
Símtöl pöntuð mánudaga, þriðjudaga og föstudaga í síma 513-5850, hann hringir síðan út á milli kl. 13:00 og 14:00 - Guðný Ásgeirsdóttir
Símtöl pöntuð mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga í síma 513-5850, hún hringir út á milli kl. 11:00 og 12:00 - Hlynur Níels Grímsson
Símtöl pöntuð mánudaga, þriðjudaga og föstudaga í síma 513-5850, hann hringir síðan út á milli kl. 13:00 og 14:00
- Ólöf Jónsdóttir barnalæknir
Símtöl pöntuð alla virka daga í síma 513-5850, hún hringir út e.h. mánudaga og f.h. miðvikudaga - Sigríður L. Signarsdóttir
Símtöl pöntuð alla virka daga í síma 513-5850, hún hringir síðan út á milli kl. 13:00 og 14:00 alla virka daga nema þriðjudaga - Sigurður V. Guðjónsson
Símtöl pöntuð alla virka daga í síma 513-5850, hann hringir út á mánudögum á milli kl. 8:00 og 9:00
- Thelma Margrét Andersen
Símtöl pöntuð mánudaga, fimmtudaga og föstudaga í síma 513-5850, hún hringir út á milli kl. 11:00 og 12:00
Hægt er að óska eftir lyfjaendurnýjun rafrænt eða í síma. Þar er hægt að endurnýja lyf sem tekin eru að staðaldri og ávísað hefur verið af læknum stöðvarinnar.
Venjulega eru þessar lyfjaendurnýjanir tilbúnar til afgreiðslu í lyfjaverslunum eftir kl. 16:00 sama dag.
Rafræn lyfjaendurnýjun
Einfaldast er að óska eftir lyfjaendurnýjun í Heilsuvera.is. Þú þarft að hafa rafræn skilríki.
Lyfjaendurnýjun í síma
Lyfjaendurnýjun er virka daga frá kl. 8:00 til 10:00 í síma 513-5852. Ritarar taka við beiðnum um endurnýjun.
Ef þörf er á veikindavottorði vegna skóla eða vinnu þarf að tilkynna veikindin á heilsugæslustöðina sem fyrst eftir að veikindi hefjast.
Í stuttum veikindum er tekið á móti beiðnum um veikindavottorð vegna skóla í síma: 513-5850.
Hafa skal beint samband við lækni vegna lengri veikinda og annarra vottorða s.s. vinnuveitendavottorða.
Heimilislæknar gera tilvísanir til sérgreinalækna ef þarf vegna mála sem þeir hafa haft aðkomu að.
Þegar farið er til sérgreinalækna vinsamlegast biðjið þá um að senda heimilislækni læknabréf.
Læknar stöðvarinnar
Hjá okkur starfa sérfræðingar í heimilislækningum en einnig sérnámslæknar og unglæknar.
- Baldur Helgi Möller sérfræðingur í heimilislækningum
- Einar Bragi Árnason sérnámslæknir í heimilislækningum
- Guðný Ásgeirsdóttir sérfræðingur í heimilislækningum
- Harpa Björnsdóttir sérnámslæknir í heimilislækningum
- Ólöf Jónsdóttir barnalæknir
- Sigríður L. Signarsdóttir sérfræðingur í heimilislækningum
- Sigurður V. Guðjónsson sérfræðingur í heimilislækningum
- Thelma Margrét Andersen sérfræðingur í heimilislækningum
Við erum á vaktinni allan daginn
Ráðgjöf hjúkrunarfræðinga
Hægt er að fá símaráðgjöf hjá hjúkrunarfræðingi frá kl. 8:00 til 16:00, alla virka daga í síma 513-5850.
Ef hjúkrunarfræðingurinn er upptekinn tekur móttökuritari niður skilaboð og haft er samband um leið og færi gefst.
Einnig bendum við á símaráðgjöf hjúkrunarfræðinga heilsugæslunnar allan sólarhringinn alla daga í síma 1700 og í netspjalli á heilsuvera.is frá kl. 8:00 til 22:00.
Skyndimóttaka fyrir smáslys og bráð veikindi
Það er líka hægt að koma í móttökuna milli kl. 8:00 og 14:00.
Öllum erindum sem koma á vaktina er sinnt, annaðhvort með því að veita þjónustuna á staðnum eða vísa í þann farveg sem við á í hverju tilviki.
Bókuð móttaka
Einnig er hægt að bóka tíma í móttöku hjúkrunarfræðinga.
Til dæmis fyrir sáraskiptingar og bólusetningar o.fl.
Hvað er í gert í opnu móttökunni?
Algengt er að fólk leiti aðstoðar eða ráðgjafar þegar um er að ræða veikindi, vanlíðan, óþægindi eða slys.
Til dæmis er algengt að foreldrar með lasin börn fái ráðleggingar varðandi umönnun og aðstoð við að meta þörf fyrir frekari þjónustu.
Einnig leita margir ráða vegna lyfjatöku eða vantar leiðbeiningar til að rata um heilbrigðiskerfið.
Hjúkrunarfræðingar sinna einnig erindum sem flokkast undir heilsuvernd, forvarnir og lífsstíl
Framkvæmdar eru rannsóknir og mælingar, t.d. mælingar á blóðþrýstingi
Heilsuvernd mæðra, ung- og smábarna, skólabarna, eldra fólks og allra hinna
Við fylgjumst með heilsu og þroska frá móðurkviði til unglingsára í mæðravernd, ung- og smábarnavernd og heilsuvernd skólabarna.
Á fullorðinsárum bjóðum við aðstoð við heilsueflingu með ráðgjöf, eftirliti og bólusetningum og heilsuvernd sem er ætluð eldri borgurum.
Hreyfiseðill
Hreyfiseðill er meðferðarúrræði við sjúkdómum, sem vitað er að regluleg hreyfing getur haft umtalsverð áhrif á.
Heimilislæknar, ljósmæður og hjúkrunarfræðingar. vísa til sjúkraþjálfara. Ef þú heldur að hreyfiseðill henti þér, pantar þú fyrst tíma hjá þínum lækni.
- Sjúkraþjálfari stöðvarinnar er Sigurður Sölvi Svavarsson
- Lestu meira um hreyfiseðla
Leghálsskimun
Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar annast sýnatöku fyrir skimun vegna krabbameins í leghálsi.
Skimanir eru á stöðinni fyrir hádegi á mánudögum.
Ef það er komið að þér í skimun má panta tíma á mínum síðum heilsuveru eða með símtali.
Lestu meira um leghálskrabbameinsskimun
Heilsuvernd og heilsuefling
Heilsuverndin hefst á mæðravernd.
Mæðraverndarþjónustan er ókeypis og verðandi mæður geta annað hvort farið á heilsugæslustöð í sínu hverfi eða valið aðra stöð og skráð sig á hana.
Viðtöl og skoðanir eru í boði frá upphafi meðgöngu og fram að fæðingu. Fyrsta viðtal við ljósmóður er gjarnan í síma fljótlega eftir að þungun er staðfest. Fjöldi mæðraskoðana fer svo eftir aðstæðum, oftast 8-10 skipti. Milli skoðana er hægt að fá símaráðgjöf hjá ljósmóður.
Ung- og smábarnavernd tekur við af mæðravernd þegar fjölskyldan kemur heim og heimaþjónustu ljósmæðra lýkur.
Fyrstu vikurnar eftir fæðingu fara hjúkrunarfræðingar stöðvarinnar í vitjanir heim til fjölskyldunnar. Foreldrar eru því beðnir um að hafa samband við hjúkrunarfræðing fljótlega eftir að heim er komið. Fyrsta læknisskoðun á heilsugæslustöðinni er svo við 6 vikna aldur.
Síðan eru reglubundnar skoðanir hjá hjúkrunarfræðingi og lækni til skólaaldurs. Þá fylgjumst við með vexti og þroska barnanna og bólusetjum. Í skoðunum ráðleggjum við m.a. um brjóstagjöf, svefnvandamál, aga og uppeldi, matarræði og slysavarnir. Auk þess er alltaf hægt að fá samband við hjúkrunarfræðing ef spurningar vakna varðandi barnið.
Heilsuvernd skólabarna tekur við þegar ung- og smábarnavernd lýkur.
Hjúkrunarfræðingar og læknar á heilsugæslustöðinni sjá um heilsuvernd skólabarna á þjónustusvæði stöðvarinnar.
- Álfhólsskóli, Digranesi
Hjúkrunarfræðingur: Helga Jensen
- Álfhólsskóli, Hjalla
Hjúkrunarfræðingur: María Bergmann Guðjónsdóttir
- Smáraskóli við Dalsmára,
Hjúkrunarfræðingur: Unnur Guðjónsdóttir
Hægt er að fá símasamband við skólahjúkrunarfræðingana í gegnum skiptiborð skólanna.
Heilsuverndin tekst á við heilsuáskoranir fullorðinsára í heilsueflandi móttöku.
Þar aðstoðum við þig við heilbrigðan lífsstíl með mælingum, ráðgjöf og stuðningi.
Oft kemur heilsueflandi móttaka til aðstoðar í framhaldi af viðtali við lækni en þú getur líka haft samband við hjúkrunarfræðing á stöðinni þinni ef þú þarft á þessari þjónustu að halda.
Við höfum það að leiðarljósi að mæta fólki þar sem það er statt og gera því kleift að búa sem lengst á eigin heimili.
Hafðu samband við okkur og pantaðu viðtal hjá hjúkrunarfræðingi í Heilsuvernd eldra fólks.
Í viðtölum eru m.a. veittar upplýsingar um þá þjónustu sem eldri borgurum stendur til boða í nærsamfélaginu. Við greinum áhættuþætti varðandi heilsufar og ráðleggjum um fyrirbyggjandi aðgerðir og meðhöndlun sjúkdóma svo eldra fólk viðhaldi sem lengst andlegri, líkamlegri og félagslegri færni sinni.
Þeir sem eru 70 ára og eldri eru hvattir til að panta tíma hjá okkur í almennt eftirlit þar sem heimilislæknir fer yfir lyfjalista, mælir blóðþrýsting, blóðsykur og fleira ef þarf.
Þjónusta sálfræðinga
Læknar stöðvarinnar vísa til sálfræðinga þannig að fyrsta skrefið er að panta tíma hjá heimilislækni.
HAM námskeið
Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins býður upp á hugræna atferlismeðferð (HAM) fyrir fulllorðna.
HAM námskeið í hópi henta mörgum en ekki öllum og því er byrjað á kynningartíma fyrir þau sem hafa áhuga á að fara á HAM námskeið.
Nánari upplýsingar
Samvinna fyrir þig
Heilsugæslan Hvammi þjónar einkum íbúum Kópavogs sem búa austan Digranesvegar og Bröttubrekku, sunnan Kópavogslækjar (Fífuhvamms) og sunnan Nýbýlavegar (með Hólmum). en allir eru velkomnir á stöðina.
Við veitum samfellda þjónusta með hag einstaklingsins og fjölskyldunnar í huga. Fagleg afstaða er tekin til allra erinda og annað hvort leyst úr þeim eða ráðlagt um önnur úrræði.
Þjónustan byggir á sérþekkingu starfstétta og þverfaglegri samvinnu.
Um heilsugæslustöðina
Heilsugæslustöðvum er stýrt af svæðisstjóra.
Fagstjórar lækninga og hjúkrunar leiða faglegt starf.
- Svæðisstjóri og fagstjóri hjúkrunar: Sigrún Kristín Barkardóttir
- Fagstjóri lækninga: Guðmundur Karl Sigurðsson er í leyfi og Baldur H. Möller leysir hann af.
- Skrifstofustjóri: Guðbjörg Guðmundsdóttir
Við viljum vita hvað þér finnst um þjónustu okkar.
Þú getur sent okkur tölvupóst eða talað beint við starfsfólkið.
Ábendingar um hvað betur má fara hjálpa okkur að gera enn betur.
Personel | Personel | Telefon | |
---|---|---|---|
Anna Sigríður Sigmundsdóttir | 513-5800 | ||
Baldur Helgi Möller | 513-5850 | ||
Brynhildur Guðmundsdóttir | 513-5850 | ||
Daðína Rós Hreinsdóttir | 513-5850 | ||
Dagný Guðmundsdóttir | 513-5850 | ||
Einar Bragi Árnason | 513-5850 | ||
Fjóla Dís Markúsdóttir | 513-5850 | ||
Gígja Hrönn Eiðsdóttir | 513-5850 | ||
Guðbjörg Guðmundsdóttir | 513-5850 | ||
Guðný Ásgeirsdóttir | 513-5850 | ||
Hallfríður Bjarnadóttir | 513-5850 | ||
Harpa Björnsdóttir | Í leyfi | ||
Helga Jensen | 513-5850 | ||
Hildur Brynja Sigurðardóttir | 513-5850 | ||
Kolbrún Matthíasdóttir | 513-5850 | ||
Kristín Ólafsdóttir | 513-5850 | ||
Lilja Dís Ragnarsdóttir | 513-5850 | ||
Margrét Gísladóttir | 513-5850 | ||
María Bergmann Guðjónsdóttir | 513-5850 | ||
Martina Ilievska | 513-5850 | ||
Mekkín Barkardóttir | 513-5850 | ||
Ólöf Jónsdóttir | 513-5850 | ||
Sigríður Lilja Signarsdóttir | 513-5850 | ||
Sigrún Kristín Barkardóttir | 513-5850 | ||
Sigurbjörg H. Baldursdóttir | 513-5850 | ||
Sigurður Sölvi Svavarsson | 694-7071 | ||
Telma Ingibjörg Sigurðardóttir | 513-5850 | ||
Thelma Margrét Andersen | 513-5850 | ||
Unnur Guðjónsdóttir | 513-5850 |