Má bjóða þér að skrá þig rafrænt á Heilsugæsluna Mjódd?
Heilsugæslan Mjódd þjónar einkum íbúum neðra Breiðholts, það er hverfi 109, Bökkum, Stekkjum og Seljahverfi, en öllum er velkomið að skrá sig á stöðina.
Má bjóða þér að skrá þig rafrænt á Heilsugæsluna Mjódd?
Heilsugæslan Mjódd þjónar einkum íbúum neðra Breiðholts, það er hverfi 109, Bökkum, Stekkjum og Seljahverfi, en öllum er velkomið að skrá sig á stöðina.
Lyfjaendurnýjun er í gegnum sjálfvirkan símsvara 513-6002 alla virka daga frá kl. 9:00 til 11:00.
Ef þú nærð ekki að skilja eftir skilaboð er hringt til baka í númerið sem hringt var úr.
Líka er hægt að óska eftir endurnýjun á mínum síðum Heilsuveru.
Þú getur bókað tíma hjá lækni með því að hringja í síma 513-6000 á föstudegi til að fá tíma í vikunni á eftir.
Ef erindið er brátt getur þú haft samband í síma 1700 eða á netspjalli á heilsuvera.is
1700 síminn er opinn allan sólarhringinn og netspjall Heilsuveru er opið 8 til 22.
Á þekkingarvefnum Heilsuvera.is er fræðsluefni um sjúkdóma, forvarnir og fyrirbyggjandi leiðir til heilbrigðara og betra lífs.
Blóðtaka er alla virka daga frá kl. 8:00 til 9:30.
Bóka þarf tíma í blóðgjöf og alltaf þarf beiðni frá lækni að liggja fyrir.
Þvagsýni afhendast fyrir hádegi í afgreiðslu Heilsugæslunnar Mjódd, 2. hæð, Þönglabakka 6.
Alltaf skal koma með fyrsta morgunþvag (miðbunuþvag) nema annað hafi verið tekið fram. Þvagsýni þarf að vera í þar til gerðu íláti og merkt nafni og kennitölu.
Nánari upplýsingar um stöðina og þjónustu hennar eru í flipunum hér fyrir ofan: Læknisþjónusta, Móttaka, Heilsuverndin, Sálfræðiþjónusta og Um stöðina.
Með rafrænum skilríkjum er hægt að bóka tíma, endurnýja lyf og senda einfaldar fyrirspurnir á mínum síðum á Heilsuvera.is
Hægt er að senda gögn með öruggum hætti til Heilsugæslunnar Mjódd með Signet transfer. Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki. Hlekkur í örugg gagnaskil
Það eru nokkrar leiðir að þjónustu læknanna okkar.
Hvaða leið hentar þér best?
Heimilislæknar á stöðinni eru með bókaða viðtalstíma frá kl. 8 - 16 og er hver tími 20 mínútur.
Þú getur bókað tíma hjá lækni með því að hringja í síma 513-6000 á föstudegi til að fá tíma í vikunni á eftir.
Ef erindið er brátt getur þú haft samband í síma 1700 eða á netspjalli á heilsuvera.is
Er erindið brátt?
Heyrðu í okkur áður en þú kemur í síma 1700 eða á netspjalli á heilsuvera.is
Þau sem þurfa að koma fá tíma samdægurs eða daginn eftir.
Síðdegisvaktin opin milli kl. 16 og 17 mánudaga til föstudaga..
Vinsamlega pantið tíma.
Í símaviðtali svara læknar stuttorðum fyrirspurnum, veita einfaldar ráðleggingar og/eða gefa upplýsingar um niðurstöður rannsókna.
Oft er þægilegra að senda stuttar fyrirspurnir í gegnum mínar síður á Heilsuvera.is. Milli kl. 8 og 16 er líka alltaf hægt að fá símasamband við hjúkrunarfræðing í síma 513-6000.
Símaviðtöl við lækna eru pöntuð í síma 513-6000.
Hægt er að óska eftir lyfjaendurnýjun rafrænt á Heilsuvera.is eða í síma. Þar er hægt að endurnýja lyf sem tekin eru að staðaldri og ávísað hefur verið af læknum stöðvarinnar.
Venjulega eru þessar lyfjaendurnýjanir tilbúnar til afgreiðslu í lyfjaverslunum eftir kl. 16:00 sama dag.
Rafræn lyfjaendurnýjun
Einfaldast er að óska eftir lyfjaendurnýjun á Heilsuvera.is. Þú þarft að hafa rafræn skilríki.
Lyfjaendurnýjun í síma
Lyfjaendurnýjun er í gegnum sjálfvirkan símsvara 513-6002 alla virka daga frá kl. 9:00 til 11:00.
Ef þörf er á veikindavottorði vegna skóla eða vinna er hægt að sækja um það á heilsuvera.is.
Hafa skal samband við lækni vegna lengri veikinda og annarra vottorða.
Heimilislæknar gera tilvísanir til sérgreinalækna ef þarf vegna mála sem þeir hafa haft aðkomu að.
Bóka þarf tíma hjá heimilislækni vegna tilvísana.
Hjá okkur starfa sérfræðingar í heimilislækningum en einnig almennir læknar, sérnámslæknar og unglæknar.
Fyrsta skrefið er að hafa samband síma 1700 eða á netspjalli á heilsuvera.is
1700 síminn er opinn allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru er opið frá kl. 8 til 22.
Hjúkrunarfræðingur mun leiðbeina þér um næstu skref og þau sem þurfa að koma fá tíma samdægurs eða daginn eftir
Móttakan er opin virka daga á dagvinnutíma og þar er tekið á móti bráðaerindum og veitt smáslysaþjónusta.
Í móttökunni starfa hjúkrunarfræðingar og læknar stöðvarinnar.
Hjúkrunarfræðingar veita ráðgjöf í 1700 símanum sem er opinn allan sólarhringinn og á netspjalli á heilsuvera.is frá kl. 8:00 til 22:00
Þar leitar fólk aðstoðar og ráðgjafar þegar um er að ræða veikindi, vanlíðan, óþægindi eða slys.
Hægt að bóka tíma í móttöku hjúkrunarfræðinga.
Í bókaðri móttöku er tekið á móti erindum sem eru ekki bráð s.s. ferðamannaheilsuvernd, sárameðferð, saumatökur og smáaðgerðir. Framkvæmdar eru rannsóknir og mælingar, t.d. mælingar á blóðþrýstingi, blóðsykri, heyrn og sjón.
Hjúkrunarfræðingar sinna einnig erindum sem flokkast undir heilsuvernd, forvarnir og lífsstíl.
Við fylgjumst með heilsu og þroska frá móðurkviði til unglingsára í mæðravernd, ung- og smábarnavernd og heilsuvernd skólabarna.
Á fullorðinsárum bjóðum við aðstoð við heilsueflingu með ráðgjöf, eftirliti og bólusetningum og heilsuvernd sem er ætluð eldri borgurum.
Heilsuverndin hefst á mæðravernd.
Mæðraverndarþjónustan er ókeypis og verðandi mæður geta annað hvort farið á heilsugæslustöð í sínu hverfi eða valið aðra stöð og skráð sig á hana.
Ljósmæður stöðvarinnar:
Viðtöl og skoðanir eru í boði frá upphafi meðgöngu og fram að fæðingu. Fyrsta viðtal við ljósmóður er gjarnan í síma fljótlega eftir að þungun er staðfest. Fjöldi mæðraskoðana fer svo eftir aðstæðum, oftast 8-10 skipti. Milli skoðana er hægt að fá símaráðgjöf hjá ljósmóður.
Ung- og smábarnavernd tekur við af mæðravernd þegar fjölskyldan kemur heim og heimaþjónustu ljósmæðra lýkur.
Fyrstu vikurnar eftir fæðingu fara hjúkrunarfræðingar stöðvarinnar í vitjanir heim til fjölskyldunnar. Foreldrar eru því beðnir um að hafa samband við hjúkrunarfræðing fljótlega eftir að heim er komið. Fyrsta læknisskoðun á heilsugæslustöðinni er svo við 6 vikna aldur.
Síðan eru reglubundnar skoðanir hjá hjúkrunarfræðingi og lækni til skólaaldurs. Þá fylgjumst við með vexti og þroska barnanna og bólusetjum. Í skoðunum ráðleggjum við m.a. um brjóstagjöf, svefnvandamál, aga og uppeldi, matarræði og slysavarnir. Auk þess er alltaf hægt að fá samband við hjúkrunarfræðing ef spurningar vakna varðandi barnið.
Hjúkrunarfræðingar í ung- og smábarnavernd:
Heilsuvernd skólabarna tekur við þegar ung- og smábarnavernd lýkur.
Skólahjúkrunarfræðingar sjá um heilsuvernd skólabarna á þjónustusvæði stöðvarinnar.
Hægt er að fá símasamband við skólahjúkrunarfræðingana í gegnum skiptiborð skólanna.
Heilsuverndin tekst á við heilsuáskoranir fullorðinsára í heilsueflandi móttöku.
Þar aðstoðum við þig við heilbrigðan lífsstíl með mælingum, ráðgjöf og stuðningi.
Oft kemur heilsueflandi móttaka til aðstoðar í framhaldi af viðtali við lækni en þú getur líka haft samband við hjúkrunarfræðing á stöðinni þinni ef þú þarft á þessari þjónustu að halda.
Hjúkrunarfræðingar í heilsueflandi móttöku:
Við höfum það að leiðarljósi að mæta fólki þar sem það er statt og gera því kleift að búa sem lengst á eigin heimili.
Hafðu samband við okkur og pantaðu viðtal hjá hjúkrunarfræðingi í Heilsuvernd eldra fólks.
Í viðtölum eru m.a. veittar upplýsingar um þá þjónustu sem eldri borgurum stendur til boða í nærsamfélaginu. Við greinum áhættuþætti varðandi heilsufar og ráðleggjum um fyrirbyggjandi aðgerðir og meðhöndlun sjúkdóma svo eldra fólk viðhaldi sem lengst andlegri, líkamlegri og félagslegri færni sinni.
Þeir sem eru 70 ára og eldri eru hvattir til að panta tíma hjá okkur í almennt eftirlit þar sem heimilislæknir fer yfir lyfjalista, mælir blóðþrýsting, blóðsykur og fleira ef þarf.
Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar annast sýnatöku fyrir skimun vegna krabbameins í leghálsi.
Skimanir eru á stöðinni til skiptis aðra hvora viku á miðvikudögum eftir hádegi og föstudögum fyrir hádegi.
Ef það er komið að þér í skimun má panta tíma á mínum síðum heilsuveru eða með símtali.
Lestu meira um leghálskrabbameinsskimun
Hreyfiseðill er meðferðarúrræði við sjúkdómum, sem vitað er að regluleg hreyfing getur haft umtalsverð áhrif á.
Heimilislæknar, ljósmæður, hjúkrunarfræðingar og sálfræðingar vísa til sjúkraþjálfara. Ef þú heldur að hreyfiseðill henti þér, pantar þú fyrst tíma hjá þínum lækni.
Læknar stöðvarinnar vísa til sálfræðinga þannig að fyrsta skrefið er að panta tíma hjá heimilislækni.
Sólveig Eyfeld Unnarsdóttir sálfræðingur sinnir meðferð og ráðgjöf fyrir börn og unglinga.
Svavar Már Einarsson sálfræðingur sinnir meðferð og ráðgjöf fyrir fullorðna
Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins býður upp á hugræna atferlismeðferð (HAM) fyrir fulllorðna.
Nánari upplýsingar:
Heilsugæslan Mjódd þjónar einkum íbúum neðra Breiðholts, það er hverfi 109, Bökkum, Stekkjum og Seljahverfi, en allir eru velkomnir a stöðina.
Við veitum samfellda þjónusta með hag einstaklingsins og fjölskyldunnar í huga. Fagleg afstaða er tekin til allra erinda og annað hvort leyst úr þeim eða ráðlagt um önnur úrræði.
Þjónustan byggir á sérþekkingu starfstétta og þverfaglegri samvinnu.
Heilsugæslustöðvum er stýrt af svæðisstjóra.
Fagstjórar lækninga og hjúkrunar leiða faglegt starf.
Starfsmenn | Starfsheiti | Sími | Netfang |
---|---|---|---|
Aleksandra Pantic | Hjúkrunarfræðingur | 513-6000 | |
Brynhildur Hall | Sjúkraliði | 513-6000 | |
Daði Reynir Kristleifsson | Sjúkraþjálfari | 513-6000 | |
Erla Sigurkarlsdóttir | Móttökuritari | 513-6000 | |
Eva Kristín Hreinsdóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-5000 | |
Eydís Ósk Jónasdóttir | Sérnámslæknir í heimilislækningum | 513-6000 | |
Guðrún Jakobsdóttir | Hjúkrunarfræðingur/ljósmóðir | 513-6000 | |
Guðrún Sigurðardóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-6000 | |
Gunnhildur Thelma Rósmundsdóttir | Læknanemi | 513-6000 | |
Hafsteinn Freyr Hafsteinsson | Svæðisstjóri og Fagstjóri lækninga | 513-6000 | |
Halla Björnsdóttir | Sérnámslæknir í heimilislækningum | 513-6000 | |
Harpa Metúsalemsdóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-6000 | |
Helen Valdís Sigurðardóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-6000 | |
Hjördís Ýr Bogadóttir | Sérnámslæknir í heimilislækningum | 513-6000 | |
Hlín Árnadóttir | Hjúkrunarfræðingur/ljósmóðir | 513-6000 | |
Hulda Björg Óladóttir | Fagstjóri hjúkrunar | 513-6000 | |
Ingigerður Sunna Sigurðardóttir | Móttökuritari | 513-6000 | |
Ína Rós Helgadóttir | Heimilislæknir | 513-6000 | |
Íris Friðriksdóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-6000 | |
Jóhann Guðmundsson | Unglæknir | 513-6000 | |
Kristbjörg Eva Heiðarsdóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-6000 | |
Kristín Rún Friðriksdóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-6000 | |
Laufey Berglind Egilsdóttir | Móttökuritari | 513-6000 | |
María Björk Jónsdóttir | Heilsugæsluritari | 513-6000 | |
Perla Torfadóttir | Skrifstofustjóri | 513-6000 | |
Ragna K. Rúnarsdóttir | Félagsráðgjafi | 513-6000 | |
Ragnheiður I. Þórólfsdóttir | Móttökuritari | 513-6000 | |
Rúnar Guðmundur Stefánsson | Læknir | 513-6000 | |
Sólveig Eyfeld Unnardóttir | Sálfræðingur | 513-6000 | |
Sunneva Björk Valdimarsdóttir | Móttökuritari | 513-6000 | |
Svavar Már Einarsson | Sálfræðingur | 513-6000 | |
Þórunn Einarsdóttir | Hjúkrunarfræðingur | Í leyfi |