Almennar upplýsingar

icon

Heilsugæslan er opin 8:00 - 17:00



Svarað er í sima 8:00 til 16:00
icon

Bráð erindi



1700 síminn og netspjall Heilsuveru veita ráðgjöf og geta komið erindum í farveg milli kl. 8 og 17. 1700 síminn er opinn allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru er opið frá kl. 8 til 22.

Viltu skrá þig hjá okkur?

Má bjóða þér að skrá þig rafrænt á Heilsugæsluna Mjódd?

Heilsugæslan Mjódd  þjónar einkum íbúum neðra Breiðholts, það er hverfi 109, Bökkum, Stekkjum og Seljahverfi, en öllum er velkomið að skrá sig á stöðina.

 

Er erindið brátt?

Heyrðu í okkur áður en þú kemur í síma 1700 eða á netspjalli á heilsuvera.is

Hvað viltu gera?

Um þjónustuna

Nánari upplýsingar um stöðina og þjónustu hennar eru í flipunum hér fyrir ofan: Læknisþjónusta,  Móttaka, Heilsuverndin, Sálfræðiþjónusta og Um stöðina.

 

Með rafrænum skilríkjum er hægt að bóka tíma, endurnýja lyf og senda einfaldar fyrirspurnir á mínum síðum á Heilsuvera.is

Örugg gagnaskil

Hægt er að senda gögn með öruggum hætti til Heilsugæslunnar Mjódd með Signet transfer. Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki. Hlekkur í örugg gagnaskil

Við tökum vel á móti þér

Hvað hentar þér best?

Það eru nokkrar leiðir að þjónustu læknanna okkar.

Hvaða leið hentar þér best?

Læknar stöðvarinnar

Hjá okkur starfa sérfræðingar í heimilislækningum en einnig almennir læknar, sérnámslæknar og unglæknar.

  • Eydís Óska Jónasdóttir, sérnámslæknir
  • Hafsteinn Freyr Hafsteinsson, heimilislæknir, fagstjóri lækninga
  • Halla Björnsdóttir, sérnámslæknir
  • Hjördís Ýr Bogadóttir, sérnámslæknir - í leyfi
  • Ína Rós Helgadóttir, heimilislæknir
  • Kári Sigurðarson, heimilislæknir
  • Rúnar G. Stefánsson,  læknir
 

Bráð erindi

Fyrsta skrefið er að hafa samband síma 1700 eða á netspjalli á heilsuvera.is

 

1700 síminn er opinn allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru er opið frá kl. 8 til 22.

 

Hjúkrunarfræðingur mun leiðbeina þér um næstu skref og þau sem þurfa að koma fá tíma samdægurs eða daginn eftir

 

Móttakan er opin virka daga á dagvinnutíma og þar er tekið á móti bráðaerindum og veitt smáslysaþjónusta.

 

Í móttökunni starfa hjúkrunarfræðingar og læknar stöðvarinnar.

Ráðgjöf hjúkrunarfræðinga

Hjúkrunarfræðingar veita ráðgjöf  í 1700 símanum sem er opinn allan sólarhringinn og á netspjalli á heilsuvera.is frá kl. 8:00 til 22:00 

 

Þar leitar fólk aðstoðar  og ráðgjafar þegar um er að ræða veikindi, vanlíðan, óþægindi eða slys. 

Bókuð móttaka

Hægt að bóka tíma í móttöku hjúkrunarfræðinga.

 

Í bókaðri móttöku er tekið á móti erindum sem eru ekki bráð s.s. ferðamannaheilsuvernd, sárameðferð, saumatökur og smáaðgerðir. Framkvæmdar eru rannsóknir og mælingar, t.d. mælingar á blóðþrýstingi, blóðsykri, heyrn og sjón.

 

Hjúkrunarfræðingar sinna einnig erindum sem flokkast undir heilsuvernd, forvarnir og lífsstíl.

Heilsuvernd mæðra, ung- og smábarna, skólabarna, eldra fólks og allra hinna

Við fylgjumst með heilsu og þroska frá móðurkviði til unglingsára í mæðravernd, ung- og smábarnavernd og heilsuvernd skólabarna

Á fullorðinsárum bjóðum við aðstoð við heilsueflingu með ráðgjöf, eftirliti og bólusetningum og heilsuvernd sem er ætluð eldri borgurum.

Heilsuvernd og heilsuefling

Leghálsskimun

Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar annast sýnatöku fyrir skimun vegna krabbameins í leghálsi.

Skimanir eru á stöðinni til skiptis aðra hvora viku á miðvikudögum eftir hádegi og föstudögum fyrir hádegi.

Ef það er komið að þér í skimun má panta tíma á mínum síðum heilsuveru eða með símtali. 

 

Lestu meira um leghálskrabbameinsskimun

Hreyfiseðill

Hreyfiseðill er meðferðarúrræði við sjúkdómum, sem vitað er að regluleg hreyfing getur haft umtalsverð áhrif á.

Heimilislæknar, ljósmæður, hjúkrunarfræðingar og sálfræðingar vísa til sjúkraþjálfara. Ef þú heldur að hreyfiseðill henti þér, pantar þú fyrst tíma hjá þínum lækni.

Þjónusta sálfræðinga

Læknar stöðvarinnar vísa til sálfræðinga þannig að fyrsta skrefið er að panta tíma hjá heimilislækni.

 

Sólveig Eyfeld Unnarsdóttir sálfræðingur sinnir meðferð og ráðgjöf fyrir börn og unglinga. 

Svavar Már Einarsson sálfræðingur sinnir meðferð og ráðgjöf fyrir fullorðna

HAM námskeið

Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins býður upp á hugræna atferlismeðferð (HAM) fyrir fulllorðna.

 

HAM námskeið í hópi henta mörgum en ekki öllum og því er byrjað á kynningartíma fyrir þau sem hafa áhuga á að fara á HAM námskeið. 

 

Nánari upplýsingar

Samvinna fyrir þig

Heilsugæslan Mjódd  þjónar einkum íbúum neðra Breiðholts, það er hverfi 109, Bökkum, Stekkjum og Seljahverfi, en allir eru velkomnir a stöðina.

Við veitum samfellda þjónusta með hag einstaklingsins og fjölskyldunnar í huga. Fagleg afstaða er tekin til allra erinda og annað hvort leyst úr þeim eða ráðlagt um önnur úrræði.

Þjónustan byggir á sérþekkingu starfstétta og þverfaglegri samvinnu.

Um heilsugæslustöðina

magnifier
PersonelPersonelTelefonEmail
Aleksandra Pantic513-6000
Brynhildur Hall513-6000
Daði Reynir Kristleifsson513-6000
Erla Sigurkarlsdóttir513-6000
Eva Kristín Hreinsdóttir513-5000
Eydís Ósk Jónasdóttir 513-6000
Guðrún Jakobsdóttir513-6000
Guðrún Sigurðardóttir513-6000
Gunnhildur Thelma Rósmundsdóttir 513-6000
Hafsteinn Freyr Hafsteinsson513-6000
Halla Björnsdóttir513-6000
Helen Valdís Sigurðardóttir513-6000
Hjördís Ýr BogadóttirÍ leyfi
Hlín Árnadóttir513-6000
Hulda Björg Óladóttir513-6000
Ingigerður Sunna Sigurðardóttir 513-6000
Ína Rós Helgadóttir513-6000
Íris Friðriksdóttir513-6000
Jóhann Guðmundsson513-6000
Kári Sigurðsson513-6000
Kristbjörg Eva Heiðarsdóttir513-6000
Kristín Rún Friðriksdóttir513-6000
Laufey Berglind Egilsdóttir513-6000
Lúðvík Ólafsson513-6000
María Björk Jónsdóttir513-6000
Perla Torfadóttir513-6000
Ragnheiður I. Þórólfsdóttir513-6000
Rúnar Guðmundur Stefánsson513-6000
Sólveig Eyfeld Unnardóttir513-6000
Sunneva Björk Valdimarsdóttir513-6000
Svavar Már Einarsson513-6000
Þórunn Einarsdóttir513-6000