Almennar upplýsingar

icon

Heilsugæslan er opin 8:00 - 16:00



Svarað er í sima 8:00 til 16:00
icon

Bráð erindi



1700 síminn og netspjall Heilsuveru veita ráðgjöf og geta komið erindum í farveg milli kl. 8 og 17. 1700 síminn er opinn allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru er opið frá kl. 8 til 22.

Er erindið brátt?

Heyrðu í okkur áður en þú kemur í síma 1700 eða á netspjalli á heilsuvera.is

Síðdegisvakt

Síðdegisvakt er alla virka daga. Nauðsynlegt er að hafa samband símleiðis til að fá pláss á síðdegisvaktinni. 

Viltu skrá þig hjá okkur?

Má bjóða þér að skrá þig rafrænt á Heilsugæsluna Mosfellsumdæmi?

Hvað viltu gera?

Örugg gagnaskil

Hægt er að senda gögn með öruggum hætti til Heilsugæslunnar Mosfellsumdæmi með Signet transfer. Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki. Hlekkur í örugg gagnaskil

Öll eru velkomin á stöðina

Heilsugæslan Mosfellsumdæmi þjónar fyrst og fremst Mosfellsbæ, Kjalarnesi og Kjósarhreppi, en öll eru velkomin á stöðina. Skráning er í gegnum mínar síður á island.is.

 

Nánari upplýsingar um stöðina og þjónustu hennar  eru í flipunum hér fyrir ofan: Læknisþjónusta, Hjúkrunarþjónusta, Heilsuverndin, Sálfræðiþjónusta og Um stöðina.

 

Með rafrænum skilríkjum er hægt að endurnýja lyf og senda einfaldar fyrirspurnir á mínum síðum á Heilsuvera.is

Við tökum vel á móti þér

Hvað hentar þér best?

Það eru nokkrar leiðir að þjónustu læknanna okkar.

Hvaða leið hentar þér best?

Læknar stöðvarinnar

Hjá okkur starfa sérfræðingar í heimilislækningum en einnig almennir læknar, sérnámslæknar og læknar í sérnámsgrunni. 

 

  • Alexander Sigurðsson, sérnámslæknir í heimilislækningum
  • Anton Blom Onshuus læknir
  • Björn G. Snær Björnsson heimilislæknir 
  • Friðrik Sigurbergsson, sérfræðingur í heimilislækningum (í leyfi)
  • Hlynur Þorsteinsson, sérfræðingur í heimilislækningum
  • Jórunn Harpa Ragnarsdóttir, sérfræðingur í heimilislækningum
  • Stefán Sigurkarlsson, sérfræðingur í heimilislækningum (í leyfi)
  • Una Egilsdóttir, sérnámslæknir í heimilislækningum (í leyfi)
  • Zenel Demiri, læknir 

Bráð erindi

Fyrsta skrefið er að hafa samband síma 1700 eða á netspjalli á heilsuvera.is

 

1700 síminn er opinn allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru er opið frá kl. 8 til 22.

 

Hjúkrunarfræðingur mun leiðbeina þér um næstu skref og þau sem þurfa að koma fá tíma samdægurs eða daginn eftir

 

Móttakan er opin virka daga á dagvinnutíma og þar er tekið á móti bráðaerindum og veitt smáslysaþjónusta.

 

Í móttökunni starfa hjúkrunarfræðingar og læknar stöðvarinnar.

Ráðgjöf hjúkrunarfræðinga

Hjúkrunarfræðingar veita ráðgjöf  í 1700 símanum sem er opinn allan sólarhringinn og á netspjalli á heilsuvera.is frá kl. 8:00 til 22:00 

 

Þar leitar fólk aðstoðar  og ráðgjafar þegar um er að ræða veikindi, vanlíðan, óþægindi eða slys. 

Bókuð móttaka

Hægt að bóka tíma í móttöku hjúkrunarfræðinga.

 

Í bókaðri móttöku er tekið á móti erindum sem eru ekki bráð s.s. ferðamannaheilsuvernd, sárameðferð, saumatökur og smáaðgerðir. Framkvæmdar eru rannsóknir og mælingar, t.d. mælingar á blóðþrýstingi, blóðsykri, heyrn og sjón.

 

Hjúkrunarfræðingar sinna einnig erindum sem flokkast undir heilsuvernd, forvarnir og lífsstíl.

Heilsuvernd mæðra, ung- og smábarna, skólabarna, eldra fólks og allra hinna

Við fylgjumst með heilsu og þroska frá móðurkviði til unglingsára í mæðravernd, ung- og smábarnavernd og heilsuvernd skólabarna

Á fullorðinsárum bjóðum við aðstoð við heilsueflingu með ráðgjöf, eftirliti og bólusetningum og heilsuvernd sem er ætluð eldri borgurum.

Heilsuvernd og heilsuefling

Leghálsskimun

Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar annast sýnatöku fyrir skimun vegna krabbameins í leghálsi.

Skimanir eru á stöðinni til skiptis aðra hvora viku á miðvikudögum eftir hádegi og fimmtudögum eftir hádegi.

Ef það er komið að þér í skimun má panta tíma á mínum síðum heilsuveru eða með símtali. 

 

Lestu meira um leghálskrabbameinsskimun

Hreyfiseðill

Hreyfiseðill er meðferðarúrræði við sjúkdómum, sem vitað er að regluleg hreyfing getur haft umtalsverð áhrif á.

Heimilislæknar, ljósmæður og hjúkrunarfræðingar vísa til sjúkraþjálfara. Ef þú heldur að hreyfiseðill henti þér, pantar þú fyrst tíma hjá þínum lækni.


Sjúkraþjálfari stöðvarinnar er Margrét H. Indriðadóttir

Þjónusta sálfræðinga

Læknar stöðvarinnar vísa til sálfræðinga þannig að fyrsta skrefið er að panta tíma hjá heimilislækni.

 

HAM námskeið

Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins býður upp á hugræna atferlismeðferð (HAM) fyrir fulllorðna. 

 

Nánari upplýsingar:

Samvinna fyrir þig

Heilsugæslan Mosfellsumdæmi þjónar einkum Mosfellsbæ, Kjalarnesi og Kjósarhreppi, allir eru velkomnir á stöðina.

Við veitum samfellda þjónusta með hag einstaklingsins og fjölskyldunnar í huga. Fagleg afstaða er tekin til allra erinda og annað hvort leyst úr þeim eða ráðlagt um önnur úrræði.

Þjónustan byggir á sérþekkingu starfstétta og þverfaglegri samvinnu.

Um heilsugæslustöðina

magnifier
StarfsmennStarfsheitiSímiNetfang
Alexander SigurðssonSérnámslæknir í heimilislækningum513-6050
Anna EiríksdóttirHjúkrunarfræðingur513-6050
Anton Blom OnshuusLæknir513-6050
Auður Agla BergsveinsdóttirHjúkrunarfræðingur513-6050
Björn Snær BjörnssonLæknir513-6050
Brynja SigurgeirsdóttirHjúkrunarfræðingur513-6050
Dagmar Heiða ReynisdóttirHjúkrunarfræðingur513-6050
Elín Hekla KlemenzdóttirMóttökuritari513-6050
Elín Þórunn StefánsdóttirHjúkrunarfræðingur 513-6050
Friðrik SigurbergssonHeimilislæknirÍ leyfi
Helena Xiang JóhannsdóttirLæknir513-6050
Helga EinarsdóttirHjúkrunarfræðingur513-6050
Hlynur ÞorsteinssonHeimilislæknir513-6050
Inga Björk ValgarðsdóttirHjúkrunarfræðingur513-6050
Jóna Kristín LúthersdóttirMóttökuritari513-6050
Jórunn Edda HafsteinsdóttirSvæðisstjóri og Fagstjóri hjúkrunar513-6050
Jórunn Harpa RagnarsdóttirFagstjóri lækninga513-6050
Katrín Sif SigurgeirsdóttirLjósmóðir513-6050
Lilja Dögg ÁrmannsdóttirHjúkrunarfræðingur513-6050
Linda María ÞorsteinsdóttirSálfræðingur513-6050
Margrét H. Indriðadóttir Sjúkraþjálfari513-6050
Sara Rún RóbertsdóttirMóttökuritari513-6050
Sigrún HafsteinsdóttirMóttökuritari513-6050
Sigurlaug S. EinarsdóttirSkrifstofustjóri513-6050
Sóley HauksdóttirHjúkrunarfræðingur513-6050
Stefán SigurkarlssonHeimilislæknirÍ leyfi
Sveinn KarlssonLæknanemi513-6050
Thelma Ýr GuðjónsdóttirHjúkrunarfræðingur 513-6050
Tinna ÍvarsdóttirLjósmóðir513-6050
Una EgilsdóttirSérnámslæknir í heimilislækningumÍ leyfi
Veronika Rós LúðvíksdóttirMóttökuritari513-6050
Viktor Díar JónassonSálfræðingur513-6050
Zenel DemiriLæknir513-6050