Má bjóða þér að skrá þig rafrænt á Heilsugæsluna Mosfellsumdæmi?
Almennar upplýsingar
Contact us
Svarað er í sima 8:00 til 16:00
Bráð erindi
1700 síminn og netspjall Heilsuveru veita ráðgjöf og geta komið erindum í farveg milli kl. 8 og 17. 1700 síminn er opinn allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru er opið frá kl. 8 til 22.
Síðdegisvakt er alla virka daga. Nauðsynlegt er að hafa samband símleiðis til að fá pláss á síðdegisvaktinni.
Viltu skrá þig hjá okkur?
Hvað viltu gera?
Lyfjaendurnýjun er alla virka daga frá kl. 9:00 til 11:00 í síma 513-6052.
Líka er hægt að óska eftir endurnýjun á mínum síðum Heilsuveru.
Þú getur bókað tíma í heilsuveru eða með því að hringja á stöðina.
Ef þú getur ekki beðið eru samdægurstímar, skyndimóttaka eða síðdegisvakt möguleiki.
Það er alltaf hægt að fá símasamband við hjúkrunarfræðing sem kemur erindi þínu í farveg eða leiðbeinir þér með önnur úrræði
Opnunartími fyrir blóðtöku og móttöku annarra sýna er frá kl. 8:00 til 10:00.
Panta þarf tíma í rannsókn og alltaf þarf beiðni að liggja fyrir.
Allir sem þurfa að fara í blóðtöku eiga kost á blóðsýnatöku á stöðinni eða að fara með tilvísun á rannsóknarstofu Landspítala Háskólasjúkrahúss.
Örugg gagnaskil
Hægt er að senda gögn með öruggum hætti til Heilsugæslunnar Mosfellsumdæmi með Signet transfer. Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki. Hlekkur í örugg gagnaskil
Allir eru velkomnir á stöðina
Heilsugæslan Mosfellsumdæmi þjónar fyrst og fremst Mosfellsbæ, Kjalarnesi og Kjósarhreppi, en allir eru velkomnir á stöðina. Skráning er í gegnum mínar síður á island.is.
Nánari upplýsingar um stöðina og þjónustu hennar eru í flipunum hér fyrir ofan: Læknisþjónusta, Hjúkrunarþjónusta, Heilsuverndin, Sálfræðiþjónusta og Um stöðina.
Með rafrænum skilríkjum er hægt að bóka tíma, endurnýja lyf og senda einfaldar fyrirspurnir á mínum síðum á Heilsuvera.is
Við tökum vel á móti þér
Hvað hentar þér best?
Það eru nokkrar leiðir að þjónustu læknanna okkar.
Hvaða leið hentar þér best?
Heimilislæknar á stöðinni eru með bókaða viðtalstíma frá kl. 8 - 16 og er hver tími 20 mínútur.
Þú bókar tíma í gegnum mínar síður á Heilsuveru eða með því að hringja á stöðina.
Síðdegisvakt er á stöðinni mánudaga til föstudaga.
Nauðsynlegt er að hafa samband símleiðis til að fá pláss á síðdegisvaktinni.
Í símaviðtali svara læknar stuttorðum fyrirspurnum, veita einfaldar ráðleggingar og/eða gefa upplýsingar um niðurstöður rannsókna.
Oft er þægilegra að senda stuttar fyrirspurnir í gegnum í mínar síður í Heilsuveru. Milli kl. 8 og 16 er líka alltaf hægt að fá símasamband við hjúkrunarfræðing í síma 513-6050.
Símaviðtöl við lækna stöðvarinnar eru pöntuð í síma 513-6050.
Hægt er að óska eftir lyfjaendurnýjun rafrænt eða í síma. Þar er hægt að endurnýja lyf sem tekin eru að staðaldri og ávísað hefur verið af læknum stöðvarinnar.
Venjulega eru þessar lyfjaendurnýjanir tilbúnar til afgreiðslu í lyfjaverslunum eftir kl. 16:00 sama dag.
Rafræn lyfjaendurnýjun
Einfaldast er að óska eftir lyfjaendurnýjun í Heilsuvera.is. Þú þarft að hafa rafræn skilríki.
Lyfjaendurnýjun í síma
Lyfjaendurnýjun er alla virka daga frá kl. 9:00 til 11:00 í síma 513-6052.
Ef þörf er á veikindavottorði vegna skóla eða vinnu þarf að tilkynna veikindin á heilsugæslustöðina sem fyrst eftir að veikindi hefjast.
Í stuttum veikindum er tekið á móti beiðnum um veikindavottorð vegna skóla í síma 513-6050.
Hafa skal beint samband við lækni vegna lengri veikinda og annarra vottorða s.s. vinnuveitendavottorða.
Heimilislæknar gera tilvísanir til sérgreinalækna ef þarf vegna mála sem þeir hafa haft aðkomu að.
Þegar farið er til sérgreinalækna vinsamlegast biðjið þá um að senda heimilislækni læknabréf.
Læknar stöðvarinnar
Hjá okkur starfa sérfræðingar í heimilislækningum en einnig almennir læknar, sérnámslæknar og unglæknar.
Eftirfarandi læknar eru starfandi við stöðina:
- Alexander Sigurðsson, sérnámslæknir í heimilislækningum
- Friðrik Sigurbergsson, sérfræðingur í heimilislækningum (í leyfi)
- Hlynur Þorsteinsson, sérfræðingur í heimilislækningum
- Jórunn Harpa Ragnarsdóttir, sérfræðingur í heimilislækningum
- Stefán Sigurkarlsson, sérfræðingur í heimilislækningum
- Una Egilsdóttir, sérnámslæknir í heimilislækningum (í leyfi)
- Zenel Demiri, læknir (í leyfi)
Við erum á vaktinni allan daginn
Ráðgjöf hjúkrunarfræðinga
Hægt er að fá símaráðgjöf hjá hjúkrunarfræðingi frá kl. 8:00 til 16:00, alla virka daga í síma 513-6050.
Ef hjúkrunarfræðingurinn er upptekinn tekur móttökuritari niður skilaboð og haft er samband um leið og færi gefst.
Einnig bendum við á símaráðgjöf hjúkrunarfræðinga heilsugæslunnar allan sólarhringinn alla daga í síma 1700 og í netspjalli á heilsuvera.is frá kl. 8:00 til 22:00.
Skyndimóttaka fyrir smáslys og bráð veikindi
Það er líka hægt að koma í móttökuna á dagvinnutíma.
Öllum erindum sem koma á vaktina er sinnt, annaðhvort með því að veita þjónustuna á staðnum eða vísa í þann farveg sem við á í hverju tilviki.
Bókuð móttaka
Einnig er hægt að bóka tíma í móttöku hjúkrunarfræðinga.
Til dæmis fyrir sáraskiptingar og bólusetningar o.fl.
Hjúkrunarfræðingar
Í hjúkrunarþjónustu starfa sérfræðingar í heilsugæsluhjúkrun og einnig almennir hjúkrunarfræðingar.
- Anna Eiríksdóttir, hjúkrunarfræðingur
- Auður Agla Bergsveinsdóttir, hjúkrunarfræðingur
- Dagmar Heiða Reynisdóttir, hjúkrunarfræðingur
- Elín Þórunn Stefánsdóttir, heilsugæsluhjúkrunarfræðingur
- Helga Einarsdóttir, hjúkrunarfræðingur
- Inga Björk Valgarðsdóttir, heilsugæsluhjúkrunarfræðingur
- Jórunn Edda Hafsteinsdóttir, heilsugæsluhjúkrunarfræðingur
- Lilja Dögg Ármannsdóttir, heilsugæsluhjúkrunarfræðingur
- Thelma Ýr Guðjónsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Heimahjúkrun
Heimahjúkrun fyrir Mosfellsumdæmi er nú veitt frá Heimahjúkrun HH
Heilsuvernd mæðra, ung- og smábarna, skólabarna, eldra fólks og allra hinna
Við fylgjumst með heilsu og þroska frá móðurkviði til unglingsára í mæðravernd, ung- og smábarnavernd og heilsuvernd skólabarna.
Á fullorðinsárum bjóðum við aðstoð við heilsueflingu með ráðgjöf, eftirliti og bólusetningum og heilsuvernd sem er ætluð eldri borgurum.
Heilsuvernd og heilsuefling
Heilsuverndin hefst á mæðravernd.
Mæðraverndarþjónustan er ókeypis og verðandi mæður geta annað hvort farið á heilsugæslustöð í sínu hverfi eða valið aðra stöð og skráð sig á hana.
Ljósmæður stöðvarinnar eru:
- Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, ljósmóðir
- Kristrún Kjartansdóttir, hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir
Viðtöl og skoðanir eru í boði frá upphafi meðgöngu og fram að fæðingu. Fyrsta viðtal við ljósmóður er gjarnan í síma fljótlega eftir að þungun er staðfest. Fjöldi mæðraskoðana fer svo eftir aðstæðum, oftast 7-10 skipti. Milli skoðana er hægt að fá símaráðgjöf hjá ljósmóður.
Ung- og smábarnavernd tekur við af mæðravernd þegar fjölskyldan kemur heim og heimaþjónustu ljósmæðra lýkur.
Fyrstu vikurnar eftir fæðingu fara hjúkrunarfræðingar stöðvarinnar í vitjanir heim til fjölskyldunnar. Foreldrar eru því beðnir um að hafa samband við hjúkrunarfræðing fljótlega eftir að heim er komið. Fyrsta læknisskoðun á heilsugæslustöðinni er svo við 6 vikna aldur.
Síðan eru reglubundnar skoðanir hjá hjúkrunarfræðingi og lækni til skólaaldurs. Þá fylgjumst við með vexti og þroska barnanna og bólusetjum. Í skoðunum ráðleggjum við m.a. um brjóstagjöf, svefnvandamál, aga og uppeldi, matarræði og slysavarnir. Auk þess er alltaf hægt að fá samband við hjúkrunarfræðing ef spurningar vakna varðandi barnið.
Hjúkrunarfræðingar í ung- og smábarnavernd:
- Elín Þórunn Stefánsdóttir, heilsugæsluhjúkrunarfræðingur
- Jóhanna Rut Snæfeld, hjúkrunarfræðingur
- Jórunn Edda Hafsteinsdóttir, heilsugæsluhjúkrunarfræðingur
- Kristrún Kjartansdóttir, hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir
Heilsuvernd skólabarna tekur við þegar ung- og smábarnavernd lýkur.
Hjúkrunarfræðingar og læknar á heilsugæslustöðinni sjá um heilsuvernd skólabarna á þjónustusvæði stöðvarinnar
Helgafellsskóli - Inga Björk Valgarðsdóttir, heilsugæsluhjúkrunarfræðingur
Klébergsskóli - Anna Eiríksdóttir, hjúkrunarfræðingur
Krikaskóli - Elín Þórunn Stefánsdóttir, heilsugæsluhjúkrunarfræðingur
Kvíslarskóli - Telma Ýr Guðjónsdóttir, hjúkrunarfræðingur Lágafellsskóli - Jóhanna Rut Snæfeld, heilsugæsluhjúkrunarfræðingur
Varmárskóli - Lilja Dögg Ármannsdóttir, hjúkrunarfræðingur og Thelma Ýr Guðjónsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Hægt er að fá símasamband við skólahjúkrunarfræðingana í gegnum skiptiborð skólanna.
Heilsuverndin tekst á við heilsuáskoranir fullorðinsára í heilsueflandi móttöku.
Við bjóðum upp á móttöku fyrir fólk sem er of þungt (BMI >30) og/eða er með sykursýki af tegund 2.
Heilsueflandi móttaka er samvinnuverkefni lækna og hjúkrunarfræðinga á stöðinni en er í umsjón Önnu Eiríksdóttur
hjúkrunarfræðings.
Móttakan er opin eftir hádegi á miðvikudögum og fimmtudögum og fyrir hádegi á föstudögum.
Í fyrsta viðtali fer fram upplýsingasöfnun og mælingar á hæð, þyngd, blóðþrýstingi, púls og blóðsykri. Líkamsþyngdarstuðull (BMI) er reiknaður út og skjólstæðingum leiðbeint um hvernig halda skuli matardagbók. Gert er ráð fyrir að fyrsti tíminn sé 40 mínútur á lengd.
Eftirfylgnitímar eru 20 mínútna langir einu sinni í mánuði að jafnaði og þá eru mælingarnar endurteknar og farið yfir matardagbókina. Einstaklingsmiðuð fræðsla er veitt í hverjum tíma.
Gert er ráð fyrir að skjólstæðingar séu í föstu eftirliti hjá sínum lækni á þriggja mánaða fresti.
Starfsemi móttökunnar byggir á klínískum leiðbeiningum frá Embætti landlæknis um sykursýki af tegund 2.
Við höfum það að leiðarljósi að mæta fólki þar sem það er statt og gera því kleift að búa sem lengst á eigin heimili.
Hafðu samband við okkur og pantaðu viðtal hjá hjúkrunarfræðingi í Heilsuvernd eldra fólks.
- Helga Einarsdóttir hjúkrunarfræðingur
Í viðtölum eru m.a. veittar upplýsingar um þá þjónustu sem eldri borgurum stendur til boða í nærsamfélaginu. Við greinum áhættuþætti varðandi heilsufar og ráðleggjum um fyrirbyggjandi aðgerðir og meðhöndlun sjúkdóma svo eldra fólk viðhaldi sem lengst andlegri, líkamlegri og félagslegri færni sinni.
Þeir sem eru 70 ára og eldri eru hvattir til að panta tíma hjá okkur í almennt eftirlit þar sem heimilislæknir fer yfir lyfjalista, mælir blóðþrýsting, blóðsykur og fleira ef þarf.
Leghálsskimun
Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar annast sýnatöku fyrir skimun vegna krabbameins í leghálsi.
Skimanir eru á stöðinni til skiptis aðra hvora viku á miðvikudögum eftir hádegi og fimmtudögum eftir hádegi.
Ef það er komið að þér í skimun má panta tíma á mínum síðum heilsuveru eða með símtali.
Lestu meira um leghálskrabbameinsskimun
Hreyfiseðill
Hreyfiseðill er meðferðarúrræði við sjúkdómum, sem vitað er að regluleg hreyfing getur haft umtalsverð áhrif á.
Heimilislæknar, ljósmæður og hjúkrunarfræðingar vísa til sjúkraþjálfara. Ef þú heldur að hreyfiseðill henti þér, pantar þú fyrst tíma hjá þínum lækni.
Sjúkraþjálfari stöðvarinnar er Margrét H. Indriðadóttir
Þjónusta sálfræðinga
Læknar stöðvarinnar vísa til sálfræðinga þannig að fyrsta skrefið er að panta tíma hjá heimilislækni.
- Linda María Þorsteinsdóttir sinnir meðferð og ráðgjöf fyrir börn og unglinga Nánari upplýsingar um sálfræðiþjónustu við börn og unglinga
- Viktor Díar Jónasson sinnir meðferð og ráðgjöf fyrir fullorðna Nánari upplýsingar um sálfræðiþjónustu fyrir fullorðna
HAM námskeið
Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins býður upp á hugræna atferlismeðferð (HAM) fyrir fulllorðna.
Nánari upplýsingar:
Samvinna fyrir þig
Heilsugæslan Mosfellsumdæmi þjónar einkum Mosfellsbæ, Kjalarnesi og Kjósarhreppi, allir eru velkomnir á stöðina.
Við veitum samfellda þjónusta með hag einstaklingsins og fjölskyldunnar í huga. Fagleg afstaða er tekin til allra erinda og annað hvort leyst úr þeim eða ráðlagt um önnur úrræði.
Þjónustan byggir á sérþekkingu starfstétta og þverfaglegri samvinnu.
Um heilsugæslustöðina
Heilsugæslustöðvum er stýrt af svæðisstjóra.
Fagstjórar lækninga og hjúkrunar leiða faglegt starf.
- Svæðisstjóri og fagstjóri hjúkrunar: Jórunn Edda Hafsteinsdóttir
- Fagstjóri lækninga: Jórunn Harpa Ragnarsdóttir
- Skrifstofustjóri: Sigurlaug S. Einarsdóttir