Almennar upplýsingar

icon

Símatími er frá kl. 9:00 til 11:00 alla virka daga.



icon

Þjónusta



Hópfræðsla, ráðgjöf og meðferð, annað hvort á staðnum eða í fjarþjónustu.

Heilsubrú er flutt í Þönglabakka 1

Við erum flutt í Þönglabakka 1 og þar erum við á 2. hæð.

Við hlökkum til að taka á móti ykkur á nýjum stað.

Ný Heilsubrú

Heilsubrú er miðlæg þjónustueining hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Þar er þjónusta sem styður og bætir við þjónustu heilsugæslustöðva.

 

Fyrsta skefið er oftast að skrá sig í hópfræðslu. Fjölbreyttir hóptímar og námskeið eru í boði og fólk velur sjálft sína fræðslu.

 

Framhaldið gæti verið viðtal við fagaðila og /eða meðferð. Í sumum tilvikum þarf tilvísun frá starfsfólki á heilsugæslustöðvum í þessa þjónustu.

Þjónusta á Heilsubrú

Kvenheilsa 

 

Kvenheilsuteymið veitir fræðslu og ráðgjöf en sinnir einnig sjúkdómum og heilsufarsvanda sem eingöngu eru til staðar hjá konum.

 

Allar konur geta skráð sig í hópfræðslu, sem er fyrsta skrefið. Eftir þátttöku í hóptímum er hægt taka næstu skref varðandi greiningu og meðferð innan eða utan Heilsubrúar. Sjá hóptíma sem eru í boði

 

Einnig er í boði að fá ráðgjöf um getnaðarvarnir. Þar er mögulegt að fá uppáskrift og uppsetningu getnaðarvarna. Skráning fer fram á mínum síðum á heilsuvera.is.

 

Andleg líðan

 

Heilsubrú býður upp á hugræna atferlismeðferð (HAM) og kynningartími er fyrsta skrefið. Sjá námskeið sem eru í boði

 

Sérhæfð mæðravernd

 

Ljósmæður á heilsugæslustöðvum vísa konum í þjónustuna eftir þörfum. 
Einnig eru í boði námskeið sem henta öllum verðandi foreldrum. Sjá námskeið sem eru í boði

 

Næringarráðgjöf

 

Heilbrigðisstarfsfólk á heilsugæslustöðvum vísar einstaklingum í viðtöl hjá næringarfræðingi.

 

Sykursýki 2

 

Boðið er upp á hópfræðslu um sykursýki 2. Sjá hóptíma sem eru í boði

 

Heimastöð

 

Heilsubrú er heimastöð lyfjafræðinga sem veita þjónustu á heilsugæslustöðvum og skólahjúkrunarfræðinga í framhaldsskólum.

Námskeið hjá Heilsubrú

Smellið á heiti námskeiðs til að fá nánari upplýsingar og opna skráningarform.

Verðandi foreldrar

HAM námskeið og núvitund

Önnur námskeið

 

magnifier
PersonelPersonelTelefonEmail
Arna Garðarsdóttir513-5170
Ása Sæunn Eiríksdóttir513-5170
Ásdís Eckardt513-5170
Berglind Guðmundsdóttir513-5170
Berglind Lilja Guðlaugsdóttir513-5170
Edda Ýr Guðmundsdóttir513-5170
Elín Birna Skarphéðinsdóttir513-5170
Erla Gerður Sveinsdóttir513-5170
Ester María Ólafsdóttir513-5170
Eva Guðjónsdóttir513-5170
Guðrún Ágústa EyjólfsdóttirÍ leyfi
Gyða Ingólfsdóttir513-5000
Hannesína Sch. Skarphéðinsdóttir513-5170
Haraldur Sigurður Þorsteinsson513-5170
Íris Dröfn Björnsdóttir513-5170
Íris Helgudóttir513-5170
Jórunn OddsdóttirÍ leyfi
Óla Kallý Magnúsdóttir513-5170
Rakel Ólafsdóttir513-5170
Sigrún Kristjánsdóttir513-5170
Sólrún Ólína Sigurðardóttir513-5170
Stefanía Ösp Guðmundsdóttir513-5170
Steinunn Zophoníasdóttir513-5170
Svava Björk JónasdóttirÍ leyfi