Námskeið fyrir verðandi foreldra í boði Soroptimistaklúbbs Reykjavíkur, haldið á vegum Geðheilsumiðstöðvar barna - Fjölskylduteymi 0-5 ára
Fjölskylduteymi 0-5 ára býður verðandi foreldrum upp á tengslamiðað námskeið þar sem meðal annars er fjallað um:
- Áhrif reynslu foreldra úr eigin uppeldi
- Samskipti og tengslamyndun
- Þroska barna, grát þeirra og svefn
- Líðan foreldra í barneignaferli og parasamskipti
Allir verðandi foreldrar eru velkomnir með maka, vin eða öðrum stuðningsaðila.
Heppilegur tími til að hefja námskeið er eftir 25. viku. Mikilvægt er að skuldbinda sig til að mæta í alla tímana.
- Fríður Guðmundsdóttir, sálfræðingur
- Soffía Bæringsdóttir, fjölskyldufræðingur og doula
Nánari upplýsingar á namskeid.gmb@heilsugaeslan.is