Uppbygging námskeiðs
Námskeiðið hefur sýnt góðan árangur hjá konum. Það er ætlað konum með líkamsþyngdarstuðul (BMI-stuðul) 30 kg/m² og yfir.
Heildræn nálgun sem byggir á hugrænni atferlismeðferð (HAM), þjálfun svengdarvitundar (AAT), hreyfingu, slökun og heilbrigðu mataræði.
Námskeiðið stendur í 15 vikur, hóptímar eru 14 og einstaklingstímar þrír. Hóptímar eru að meðaltali 3-4 sinnum í mánuði í tvo tíma í senn og byggja á hópefli, fræðslu, fyrirlögn heimavinnu, gönguferðum, teygjum og slökun.
Árangursmat
Meðan á námskeiði stendur eru lagðir fyrir kvarðar sem meta lífsgæði, lífsstíl og einkenni þunglyndis. Hæð er mæld í upphafi og þyngd reglulega á námskeiðstíma.
Þátttakendur þurfa að:
- Mæta í alla tíma
- Vinna og skila heimaverkefnum
- Boða forföll í tíma til leiðbeinenda
Markmið námskeiðs
Aðstoða þátttakendur við að breyta lífsstíl til frambúðar með því að breyta hugarfari, matarvenjum og hreyfingu og draga þannig úr líkum á neikvæðum heilsufarsáhrifum sem offita getur valdið.