Fræðsla um sykursýki

Sjúkdómurinn sykursýki 2

Í fræðslunni er farið í skilgreiningu á sjúkdómnum sykursýki 2 og þróun hans. Fjallað verður um hvaða áhrif hækkaður blóðsykur hefur á heilsu. Einnig hvernig eftirliti og stuðningi er háttað. Loks verður rætt um ýmsar leiðir til að efla heilsu og bæta líðan.

Markmiðið er að auka þekkingu og skilning á sjúkdómnum sykursýki 2.

Það eru 15-20 einstaklingar á hverju námskeiði.

Fræðslan hentar öllum einstaklingum sem langar til að fræðast um sykursýki 2. 

Umsjón

Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hefur umsjón með fræðslunni.

Leiðbeinandi er Íris Dröfn Björnsdóttir, hjúkrunarfræðingur,
 

Fyrirkomulag

Fræðslan eru haldin í Þönglabakka 1, 109 Reykjavík, 2. hæð. (Það er sami inngangur og fyrir Læknasetrið, Gáska sjúkraþjálfun og Tannlækna Mjódd).  

Greitt er 5.195 kr. þátttökugjald við skráningu hér á vefnum.

Staðfestingarpóstur er sendur á netfang þátttakanda við skráningu.

Mikilvægt er að tilkynna forföll tímanlega.

Hafið samband á heilsubru@heilsugaeslan.is ef staðfestingarpóstur berst ekki og ef forföll verða.

Dagsetningar og skráning

Næsta fræðsla er haldin: 

  • Miðvikudagurinn 12. febrúar kl. 14:00 - 16:00