Til þess að koma í veg fyrir bit er mikilvægt að huga forvörnum. Ýmis ráð geta reynst gagnleg til þess að fyrirbyggja bit af völdum lúsmýs. Þar má til dæmis nefna:
- Loka öllum gluggum vel fyrir nóttina og setja þétt flugnanet fyrir glugga til þess að koma í veg fyrir að lúsmý komist inn í híbýli.
- Sofa í náttfötum og sokkum til að hylja húðina.
- Hafa viftu í gangi að næturlagi til að koma hreyfingu á loftið. Þá getur lúsmýið ekki athafnað sig.
- Klæðast langerma bol og síðum buxum í ljósaskiptum.
- Bera
á sig krem eða úða sem fælir skordýr í burtu. Mælt er með vörum sem innihalda
DEET. Slíkar vörur fást í apótekum. Mikilvægt er að hafa í huga að börn eiga
ekki að nota vörur sem innihalda meira en 10% DEET.
Ef fólk verður vart við bit eru ýmis ráð sem hægt er að prófa heima til þess að draga úr einkennum.
- Kaldir bakstrar minnka bólgur og draga úr óþægindum.
- Passa að klóra ekki húðina, það getur aukið hættu á sýkingu.
- Parasetamol getur dregið úr verkjum og óþægindum. Mikilvægt er að fylgja leiðbeiningum um notkun á lyfi.
- Væg sterakrem geta dregið úr einkennum. Slík krem fást í apótekum án lyfseðils. Sterakrem eru ekki ætluð til langtímanotkunar eða á stór húðsvæði.
- Ofnæmislyf eins og Loretin eða Histasin draga úr bólgu og kláða. Hægt er að fá slík lyf í apótekum án lyfseðils. Mikilvægt er að fylgja leiðbeiningum um notkun á lyfi.
- Ýmis krem og smyrsli sem kæla húðina og draga úr kláða er hægt að nálgast í apótekum.
Ef almenn ráð duga ekki
Í sumum tilvikum geta bit af völdum lúsmý orðið það slæm að almenn ráð duga ekki. Við alvarlegum ofnæmiseinkennum eins og öndunarerfiðleikum, bólgu á hálsi, svima, hröðum hjartslætti eða meðvitundarskerðingu á strax að leita á bráðamóttöku eða hringja í 112.
Ef bit
hverfa ekki á nokkrum dögum eða versna jafnvel er ráðlagt að fá mat
heilbrigðisstarfsmanns. Það sama á við ef
fólk fær flensulík einkenni og bólgna eitla. Hægt er að leita á
heilsugæsluna á dagvinnutíma. Bæði er hægt að bóka tíma eða óska eftir símtali frá
lækni eða hjúkrunarfræðingi. Einnig er hægt að senda fyrirspurn á Mínum síðum á
Heilsuvera.is og fá ráðgjöf á netspjallinu.
Á Heilsuvera.is er einnig að finna fræðsluefni um skoradýrabit.
Höfundur er Margrét Björnsdóttir, fagstjóri hjúkrunar, Heilsugæslunni Garðabæ.
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu.