Ekki er ljóst hvenær dreifing bóluefna vegna COVID-19 hefst. Það er því ótímabært að tala um hvenær bólusetning hefst hér á landi. Vonir eru bundnar við að hún geti hafist á fyrri hluta næsta árs.
Það er ekki hægt að panta í bólusetningu. Allir munu fá boð í bólusetningu þegar kemur að þeim.
Búið er birta reglugerð um forgangsröðun við bólusetningu vegna COVID-19. Tilgangur reglugerðarinnar er að ákveða forgangsröðunina á grundvelli málefnalegra sjónarmiða.
Sóttvarnalæknir ber ábyrgð á skipulagningu og samræmingu bólusetningar, þar á meðal röðun í forgangshópa.
Heilsugæslustöðvar sjá um framkvæmd bólusetninganna en geta ekki sett einstaklinga í forgangshóp.
Nánari upplýsingar eru á vefnum covid.is
- Upplýsingar um bóluefni vegna COVID-19
Vinsamlega hringið ekki í heilsugæslustöðvar vegna þessa. Enginn þarf að óttast að verða útundan þegar að bólusetningunni kemur.