Nú er komin áætlun um skimanir fyrir brjóstakrabbameini hjá konum á landsbyggðinni vorið 2021.
Hér má sjá þau bæjarfélög og dagsetningar þar sem skimað verður. Brjóstaskimunin fer fram á heilsugæslustöðvum þessara staða.
- Borgarnes - 1. mars til 9. mars
- Hvammstangi - 15. mars og 16. mars
- Blönduós - 17. mars til 19. mars
- Sauðárkrókur - 22. mars til 26. mars
- Siglufjörður - 3. maí til 7. maí
- Höfn í Hornafirði - 17. maí til 19. maí.
Einkennalausar konur sem fengið hafa boðsbréf í skimun fyrir brjóstakrabbameini eru hvattar til að panta tíma í skimun. Samkvæmt skimunarleiðbeiningum landlæknis er konum á aldrinum 40 til 69 ára boðin skimun á tveggja ára fresti og 70 til 74 ára á þriggja ára fresti.
Ólíkt því sem áður var að þá fara tímapantanir fram hjá Samhæfingarstöð krabbameinsskimana í síma 513-6700, á milli kl. 8:30 og 12:00, alla virka daga. Einnig er hægt að panta tíma með því að senda tölvupóst á krabbameinsskimun@heilsugaeslan.is
Haustið 2021 verða aðrir staðir heimsóttir og allt árið er skimað fyrir krabbameini í brjóstum á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Lestu meira:
- Nýr bæklingur frá Embætti landlæknis - Skimun fyrir brjóstakrabbameini :
- Heilsuvera.is - Skimun fyrir brjóstakrabbameini