- Svarþjónusta á heilsuvera.is til að eyða óvissu
- Öflug brjóstamiðstöð opnar innan skamms á Landspítala
Umfangsmiklar og mikilvægar breytingar voru gerðar á skipulagi, stjórn og framkvæmd skimunar fyrir krabbameinum um síðustu áramót, samkvæmt ákvörðun heilbrigðisráðherra, sem byggja á tillögum frá Embætti landlæknis og skimunarráði. Landspítali, í samvinnu við Sjúkrahúsið á Akureyri, tók þá að sér framkvæmd skimunar fyrir krabbameini í brjóstum og sérskoðun á brjóstum og leghálsi en heilsugæslan um land allt fékk það hlutverk að annast framkvæmd skimana fyrir krabbameini í leghálsi. Heilsugæslan ákvað í kjölfarið að semja við danska rannsóknarstofu um sýnagreiningu. Í öllum þessum verkefnum eru gæði þjónustunnar höfð að leiðarljósi og í hvívetna leitast við að tryggja heilsu og öryggi skjólstæðingahópsins.
Íslensk heilbrigðisþjónusta stendur saman að baki þessu heildarverkefni sem snýr að vandasamri og viðkvæmri yfirfærslu margvíslegra verkefna frá Krabbameinsfélagi Íslands yfir til Heilsugæslunnar, Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri. Yfirfærslan hefur því miður ekki verið hnökralaus, ýmissa hluta vegna, og skapað bæði áhyggjur og óöryggi í samfélaginu. Í ljósi umræðu síðustu daga um þetta nýja fyrirkomulag vilja Heilsugæslan og Landspítali taka fram að aðstandendum verkefnisins þykir mjög miður að óvissa hafi skapast um þessa mikilvægu þjónustu. Við slíkt verður ekki búið og keppast nú allir aðilar verkefnisins við að bæta þar úr með fjölbreyttum hætti.
Þar má nefna að Heilsugæslan mun nú setja aukið afl í netspjall við skjólstæðinga á Heilsuvera.is og bjóða þar upp á sérstaka svarþjónustu hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra um skimanir fyrir legháls- og brjóstakrabbameinum. Landspítali mun leggja Heilsugæslunni lið í þessari svarþjónustu, eftir því sem þörf krefur. Mikilvægt er að fólk sem upplifir óvissu eða óöryggi hafi samband við netspjallið á Heilsuvera.is þar sem markmiðið er að svara sértækum spurningum hvers og eins.
Markmiðið með nýja fyrirkomulaginu er að bæta aðgengi að skimun bæði legháls- og brjóstakrabbameina í þéttu samstarfsneti mismunandi aðila íslenskrar heilbrigðisþjónustu. Verklagið er samkvæmt því sem mælt er með í alþjóðlegum skimunarleiðbeiningum til að tryggja frekar öryggi og gæði þjónustunnar og er jafnframt í samræmi við framtíðarsýn og meginmarkmið heilbrigðisstefnu til ársins 2030. Embætti landlæknis fer með stjórn hópleitarinnar og ber ábyrgð á henni, sinnir gæðaeftirliti og heldur skimunarskrá.
Meðal fleiri framfaraskrefa í þessu verkefni var að sett var á fót Samhæfingarstöð krabbameinsskimana, sem meðal annars hefur það verkefni að boða fólk í reglubundna skimun og veita upplýsingar um niðurstöður skimana. Samhæfingarstöðin heyrir undir Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins en starfar á landsvísu. Einnig má nefna að innan skamms verður opnuð öflug brjóstamiðstöð Landspítala á Eiríksstöðum í Reykjavík þar sem þessum mikilvæga og viðkvæma hópi skjólstæðinga verður sinnt af kostgæfni. Sá stóri áfangi verður mikið gleðiefni fyrir heilbrigðisþjónustuna í landinu.
Virðingarfyllst,
Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala