Boðið verður upp á nýja hóptíma með fræðslu um sykursýki 2 í Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins frá haustinu. Markmiðið með tímunum er að auka þekkingu og skilning á sjúkdómnum.
Í hóptímunum verður farið í skilgreiningu sjúkdómsins, þróun hans og fjallað um hvaða áhrif hækkaður blóðsykur hefur á heilsu. Einnig hvernig eftirliti og stuðningi er háttað. Loks verður rætt um ýmsar leiðir til að efla heilsu og bæta líðan.
Fræðslan fer fram í hóptímum og verða 15 til 20 einstaklingar í hverjum tíma. Hóptímarnir eru ætlaðir öllum einstaklingum sem langar til að fræðast um sykursýki 2.
Hóptímarnir fara fram hjá Heilsubrú í Þönglabakka 6, 109 Reykjavík. Nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Greitt er 500 króna þátttökugjald við skráningu.
Næstu hóptímar:
- Þriðjudagur 29.ágúst klukkan 9:00
- Þriðjudagur 12. september klukkan 9:00
- Þriðjudagur 26.september klukkan10:00
- Þriðjudagur 10.október klukkan 14:00