Helgi Þorsteinsson nýr framkvæmdastjóri fjármála og rekstrar

Mynd af frétt Helgi Þorsteinsson nýr framkvæmdastjóri fjármála og rekstrar
19.10.2023
Helgi Þorsteinsson hefur verið ráðinn í stöðu framkvæmdastjóra sviðs fjármála og rekstrar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og mun hann taka til starfa bráðlega. Helgi tekur við stöðunni af Jónasi Guðmundssyni.

Helgi kemur til Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins frá Símanum, þar sem hann hefur gegnt stöðu leiðtoga fjárstýringar. Hann hefur starfað hjá Símanum í rúmlega tvo áratugi. Helgi er menntaður viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og með MBA-próf frá Háskólanum í Reykjavík. Þá hefur hann lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

Starfsfólk Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins býður Helga velkominn til starfa.