Börnum undir 4 ára aldri boðið upp á bólusetningu við inflúensu

Mynd af frétt Börnum undir 4 ára aldri boðið upp á bólusetningu við inflúensu
31.10.2024
Foreldrar barna á aldrinum 6 mánaða til 4 ára eru hvattir til að koma með börn sín í bólusetningu við inflúensu á sinni heilsugæslustöð. Nú eru börn á bilinu sex mánaða til fjögurra ára í fyrsta skipti í forgangshópi, eins og fólk 60 ára og eldra og fólk með undirliggjandi sjúkdóma. Börn á þessum aldri eru margfalt líklegri til að þurfa að fara á spítala vegna inflúensusmits en aðrir.

Ekki er til bóluefni sem má nota á börn undir sex mánaða aldri en bólusetning móður á meðgöngu skilar mótefnum til barns sem talin eru veita vernd í að minnsta kosti sex mánuði, eins og lesa má um á fræðsluvef Heilsuveru.

Bólusetningar við inflúensu eru hafnar á öllum heilsugæslustöðvum. Bókanir fyrir tíma í bólusetningu eru í gegnum Mínar síður á vefnum Heilsuveru, en einnig er hægt að bóka með símtali við næstu heilsugæslustöð.

Sex sinnum líklegri til að enda á spítala

Börn undir fjögurra ára aldri sem smitast af inflúensu eru um sex sinnum líklegri til að þurfa að fara á spítala en fólk almennt og því til mikils að vinna að börn séu bólusett. Bóluefni veitir ekki 100% vörn og börn geta því fengið inflúensu þrátt fyrir bólusetningu.

Upplýsingar um áhættuhópa og nánari upplýsingar um bóluefni við inflúensu má finna á vef embættis landlæknis.