Starfsfólk Upplýsingamiðstöðvar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins mun veita ráðgjöf vegna veikinda og slysa í síma 1700 og á netspjallinu á Heilsuveru yfir allar hátíðarnar. Í neyð er fólki bent á að hringja í síma 112.
Svarað verður í síma 1700 allan sólarhringinn yfir bæði jól og áramót. Netspjallið á Heilsuveru verður opið alla daga frá klukkan 8 til 22, fyrir utan aðfangadag og gamlársdag þegar svarað verður á netspjallinu til klukkan 18.
Við minnum á þekkingarvef Heilsuveru, þar sem hægt er að lesa sér til um fjölbreytt málefni sem tengjast heilsu.
Athugið að ekki verður hægt að senda skilaboð á heilsugæslustöðvar í gegnum Mínar síður á Heilsuveru á helgidögum yfir hátíðarnar.
Starfsfólk Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins óskar skjólstæðingum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.