Lyfjafræðingar veita góð ráð um lyfjamál

Mynd af frétt Lyfjafræðingar veita góð ráð um lyfjamál
27.01.2025

Klínískir lyfjafræðingar hafa nú verið ráðnir á til starfa á meirihluta heilsugæslustöðva Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH). Þeir veita skjólstæðingum ýmsa þjónustu tengt lyfjanotkun og aðstoða við niðurtröppum á ávanabindandi lyfjum.

Alls hafa níu heilsugæslustöðvar HH ráðið klíníska lyfjafræðinga til starfa en auk þess eru lyfjafræðingar starfandi hjá Heimahjúkrun HH og miðlægt á skrifstofu stofnunarinnar. Með fjölgun lyfjafræðinga er hægt að auka enn gæði lyfjameðferðar, draga úr lyfjatengdum skaða og minnka óþarfa notkun á lyfjum.

Klínískir lyfjafræðingar eru öflug viðbót við aðrar heilbrigðisstéttir sem starfa hjá HH. Á þeim stöðvum þar sem þeir eru starfandi geta skjólstæðingar óskað eftir tíma hjá lyfjafræðingnum til að ræða um sína lyfjanotkun. Einnig geta læknar og hjúkrunarfræðingar bent skjólstæðingum á að heppilegt gæti verið að ræða við lyfjafræðing.

Mæta þörfum skjólstæðinga

Í viðtali hjá klínískum lyfjafræðingi er til dæmis hægt að ræða um áhyggjur af notkun á tilteknum lyfjum. Fyrir þau sem taka fleiri en eitt lyf er hægt að fara yfir listann með tilliti til þess hvernig áhrif lyfin gætu haft þegar þau eru tekin saman og mögulegar aukaverkanir. Þá er hægt að fá fræðslu þegar byrjað er á nýrri lyfjameðferð og skoða hvort þau lyf sem eru tekin eru ennþá nauðsynleg.

„Okkar reynsla hefur sýnt hversu mikilvægt það er að nálgast lyfjameðferð skjólstæðinga á heildrænan hátt. Oft er nauðsynlegt að endurmeta meðferðina með hliðsjón af aldri einstaklingsins og samsetningu þeirra lyfja sem hann tekur. Jafnframt skiptir miklu máli að mæta þörfum skjólstæðinga með persónulegri ráðgjöf um lyf og lyfjameðferð. Markmið þjónustunnar er fyrst og fremst að bæta gæði lyfjameðferðar og stuðla að betri heilsu fyrir skjólstæðinga okkar,“ segir Anna Bryndís Blöndal, fagstjóri lyfjaþjónustu hjá HH.

Starfa á heilsugæslustöðvum

Í dag eru eftirfarandi heilsugæslustöðvar HH með klíníska lyfjafræðinga:

Þá mun hefur lyfjafræðingur verið ráðinn til starfa á eftirtaldar stöðvar, en hefur störf þann 1. mars: