Geðheilsumiðstöð barna stendur fyrir fræðsluerindi um málþroskaröskun DLD þriðjudaginn 8. apríl næstkomandi milli klukkan 13 og 14 í Vegmúla 3.
Þar mun Hrafnhildur Halldórsdóttir talmeinafræðingur fjalla um birtingarmynd DLD, tengsl þess við aðrar taugaþroskaraskanir og mikilvægi snemmtækrar íhlutunar.
Erindið er ætlað:
- Fagfólki í kennslu, til dæmis kennurum og skólastjórnendum.
- Fagfólki í heilbrigðisþjónustu, til dæmis sálfræðingum í skólaþjónustu, tilvísendum og talmeinafræðingum.
Aðgangur er ókeypis en óskað er eftir því að áhugasamir skrái sig.