Opnað hefur verið fyrir skráningu á nýja fræðslu fyrir foreldra einhverfra barna og unglinga, sem haldin verður mánaðarlega til skiptis í húsnæði Geðheilsumiðstöðvar barna og í fjarkennslu á Teams.
Í þessari klukkutíma fræðslu verður farið verður yfir málefni sem tengjast einhverfu, eins og hvað það þýðir að vera einhverfur og hvers þarf að taka tillit ef maður á barn með einhverfu. Málin eru rædd með virðingu fyir fjölbreyttum taugaþroska og þátttakendum gefst tækifæri til að spyrja spurninga.
Hægt er að kynna sér nánari upplýsingar um námskeiðið og skrá sig til þátttöku á námskeiðsvefnum okkar.
Fræðsla fyrir foreldra einhverfra barna og unglinga

08.04.2025