Heilsugæslan Garðabæ - Móttökuritari

Heilsugæslan Garðabæ leitar að skemmtilegum, jákvæðum og lífsglöðum starfsmanni sem finnst gaman að taka á móti fólki í starf móttökuritara. Um er að ræða starf í lifandi umhverfi þar sem reynir á samskiptahæfni og þjónustulund viðkomandi. Ef þér finnst gaman að tala við fólk og veita framúrskarandi þjónustu þá viljum við gjarnan fá að heyra frá þér.

Um er að ræða 60% ótímabundið starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. september n.k. eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Símsvörun, bókanir og móttaka skjólstæðinga
  • Uppgjör í lok dags
  • Afgreiðsla tímapantana í afgreiðslu
  • Almenn upplýsingagjöf um starfsemi stöðvarinnar
  • Flokkun á pósti
     

Hæfnikröfur

  • Heilbrigðisritaramenntun og/eða nám sem nýtist í starfi
  • Reynsla af móttökuritarastarfi æskileg
  • Reynsla af Sögukerfi kostur
  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar, rík þjónustulund og jákvætt hugarfar
  • Nákvæm og skipulögð vinnubrögð
  • Metnaður og sjálfstæði í starfi
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Góð almenn enskukunnátta æskileg

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt að óska eftir hreinu sakavottorði.

Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 60%
Umsóknarfrestur er til og með 07.08.2024

Nánari upplýsingar veitir

Anna Garðarsdóttir Edwald - Anna.Gardarsdottir@heilsugaeslan.is - 513-5500

HH Garðabæ
Garðatorgi 7
210 Garðabær

Sækja um starf »